Fréttablaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 32
32 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
DIANE SAWYER FRÉTTAKONA ER
62 ÁRA
„Fylgdu alltaf því sem þú
hefur ástríðu fyrir og það
mun vísa þér á áfangastað.“
Diane Sawyer fréttakona hjá
Sextíu mínútum er þekkt fyrir
dirfsku sína í fréttamennsku
og er óhrædd við að takast á
við eldfim mál.
Árið 1872 var fyrst byrjað að
tala um að brúa sunnlensku
stórföllin, Ölfusá og Þjórsá. Á
Þingi 1879 voru veittar 100
þúsund krónur til brúarbygg-
inga en í fyrstu var talað um
að gera flugferjur eða svif-
ferjur á árnar.
Árið 1891 hófst brúar-
smíðin af alvöru, en byrjaði
þó illa því enskur maður sem
vann að smíðinni drukknaði
þegar efnispramma hvolfdi og bæði maður og
stálstykkin á prammanum fóru í ána. Við þetta
tafðist verkið og enn frekar þegar í ljós kom að
stöplar brúarinnar, sem höfðu verið steyptir, voru
ekki nógu háir til að mestu klakahrannir kæm-
ust undir og að burðarstangirnar voru of langar.
Þó fór svo að smíði brúarinnar lauk í september
sama ár, en verkið hófst í júní.
Við vígsluna flutti Magnús
Stephensen landshöfðingi
tölu og að lokum var Brúar-
drápa Hannesar Hafstein flutt.
Samdar voru reglur um um-
ferð um Ölfusárbrúna, þar
sem meðal annars var bann-
að að fara yfir brúna ríðandi á
hraða yfir klyfjahraða og skil-
greint hve margir laushestar
máttu vera í rekstri yfir brúna.
Árið 1944 fór mjólkurbíll frá Reykjavík með
annan í togi yfir brúna og vegna þyngsla slitnaði
brúarstrengur og bílarnir féllu báðir í Ölfusá.
Í kjölfarið var ný Ölfusárbrú var byggð og þjónar
hún enn sínum tilgangi.
Heimildir: Guðmundur Kristinsson. Saga Selfoss.
Selfosskaupstaður, 1991.
ÞETTA GERÐIST: 22. DESEMBER 1945
Ný Ölfusárbrú tekin í notkun
MERKISATBURÐIR
1897 Í turni Dómkirkjunnar
í Reykjavík er sett upp
stundaklukka sem
Thomsen kaupmaður gaf
og er hún þar enn.
1919 Síðustu dómar eru kveðn-
ir upp í Landsyfirrétti.
1947 Stjórnarskrá Ítalíu er sam-
þykkt af stjórnlagaþinginu.
1987 Ný lögreglusamþykkt fyrir
Reykjavík gengur í gildi og
leysir af hólmi aðra, sem
var meira en hálfrar aldar
gömul.
1988 New York-samningarnir
eru undirritaðir milli
Kúbu, Angóla og Suður-
Afríku þar sem Samein-
uðu þjóðirnar fá stjórn
Namibíu.
1989 Ion Iliescu verður forseti
Rúmeníu.
Geisladiskur með flutningi Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands, Schola Cant-
orum og einsöngvara á óratóríunni
Eddu I eftir Jón Leifs er nú kominn út
í fyrsta sinn.
Diskurinn fékk fullt hús á tónlistar-
vefnum Classics Today sem kallar út-
gáfuna stórviðburð. Flutningur og út-
gáfa er talið sannkallað þrekvirki enda
gríðarlega kröfuhart og eitt það viða-
mesta eftir Jón Leifs. Ekki síst fyrir
kórinn en hlutverk hans var lengi talið
nánast ósyngjandi.
Hörður Áskelsson hafði veg og
vanda af því að æfa kórinn, Schola
Cantorum, sem flutti verkið ásamt
Sinfóníuhljómsveit Íslands og ein-
söngvurunum Gunnari Guðbjörnssyni
og Bjarna Thor Kristinssyni undir
stjórn Hermans Bäumer. Diskur inn er
gefinn út hjá sænsku BIS-útgáfunni,
en samstarf hennar og Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar við útgáfu á verkum
Jóns Leifs hefur vakið mikla athygli
tónlistarunnenda um allan heim. „Það
varð ákveðin vitundarvakning þegar
Hjálmar H. Ragnarsson fór að kynna
tónlistina markvisst bæði heima og
erlendis fyrir rúmum fimmtán árum.
Síðan hefur fólk verið að uppgötva
hvað Jón Leifs var merkilegt tón-
skáld. Mér finnst hún eins konar til-
raun til að lýsa Íslandi í tónum. Maður
sér fyrir sér eldfjöll, jarðskjálfta
og hrikalegar náttúruhamfarir, sem
greinilega falla í kramið hjá erlend-
um tónlistarunnendum,“ segir Árni
Heimir Ingólfsson, tónlistarstjóri Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands, og bætir
við að vinsældir hafi einnig aukist í
kjölfar útgáfu.
„Sænska BIS tónlistarútgáfan
ákvað upp á sitt einsdæmi að taka
upp og gefa út öll verk Jóns með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands upp úr 1990.
Þegar hafa komið út átta diskar og
Schola Cantorum og Mótettukór Hall-
grímskirkju hafa starfað með okkur á
fimm þeirra. Þess vegna lá beint við
að Schola Cantorum yrði beðið um að
flytja þetta. Þau þekkja orðið tónlist-
ina vel og það eru fáir kórar í heimin-
um sem myndu ráða við þessa tónlist.
Hún jafnast á við Everest fyrir fjall-
göngumann,“ segir Árni Heimir.
Óratórían átti að vera í fjórum hlut-
um og er samin við texta Eddu kvæð-
anna. Skáldið kláraði fyrsta og annan
hluta og var hálfnaður við þann þriðja
þegar hann lést. „Hann lauk við fyrsta
hluta árið 1939 og skömmu síðar byrj-
aði hann á öðrum hluta. Síðan voru
tveir kaflar úr Eddu I fluttir á tón-
skáldaþingi í Kaupmannahöfn árið
1952 en fengu svo slæmar viðtökur
að Jón stakk verkinu ofan í skúffu og
gat eiginlega ekki hugsað sér að bæta
neinu við. Síðan liðu meira en tíu ár
þangað til hann tók upp pennann aftur.
Þá var þetta kapphlaup við tímann því
Jón átti ekki nema nokkur ár eftir
ólifuð,“ útskýrir Árni Heimir.
Árið 1982 flutti Pólýfónkórinn þrjá
hluta af Eddu I og Árni Heimir segir
að þá hafi borið meira á umburð-
arlyndi gagnvart tónlistinni. Þegar
verkið var síðan frumflutt í heild
sinni í fyrra var tvísýnt hvort flutn-
ingurinn yrði að veruleika. „Vinnan í
kringum svona frumflutning er gríð-
arlega mikil. Undirbúningur stóð yfir
í fimm ár enda höfðum við aðeins
handrit Jóns Leifs, sem voru næst-
um því ólæsileg. Þetta var bara eitt-
hvert pár. Síðan þurfti að útsetja alla
parta og tölvusetja áður en tónlistar-
fólkið fékk sinn hluta í hendurnar. Því
næst tók við æfingarferli hjá kórn-
um sem tók heilt ár, en við þurftum að
bæta fjórtán manns við kórinn,“ segir
Árni Heimir og heldur áfram: „Við
erum ótrúlega þakklát söngvurunum
sem tóku þátt í flutningnum, þar sem-
verkið er skrifað fyrir atvinnusöngv-
ara og reynir mikið á í tæplega einn
og hálfan tíma.“ Fram undan eru æf-
ingar og frumflutningur á Eddu II og
Árni Heimir segist vona að framsýnir
menn í þjóðfélaginu ásamt stjórnmála-
mönnum sjái hvers konar menningar-
verðmæti eru þarna á ferð og styrki
þetta starf. „Svona verkefni eru gríð-
arlega dýr en það er von okkar og trú
að við getum frumflutt annan hluta
verksins í nýju tónlistarhúsi haustið
2010,“ segir Árni Heimir.
rh@frettabladid.is
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN OG SCHOLA CANTORUM: EDDA I GEFIN ÚT Í FYRSTA SINN
Verkið nánast ósyngjanlegt
LÝSIR ÍSLANDI Í TÓNUM Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
segir undirbúning á flutningi Eddu I, sköpun heimsins hafa tekið fimm ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bestu þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Katrínar I. Arndal
Hlíf I, áður Engjavegi 19, Ísafirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Fjórðungssjúkrahúsi
Ísafjarðar.
Helgi Júlíusson
Sigríður K. Júlíusdóttir Albert Ó. Geirsson
Gunnhildur Elíasdóttir
Kristín Júlíusdóttir Hrólfur Ólafsson
Haraldur Júlíusson Ingibjörg Einarsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og vinsemd við andlát og útför
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Jóns E. Hallssonar
Búðardal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Silfurtúns í Búðardal.
Guð veri með ykkur öllum.
Hallur S. Jónsson Kristín S. Sigurðardóttir
Lóa Björk Hallsdóttir Einar Þór Einarsson
Ingunn Þóra Hallsdóttir Ólafur Ingi Grettisson
Jón Eggert Hallsson
Helgi Rafn Hallsson Stella Kristmannsdóttir
Dagur Andri Einarsson
Sólveig Halla Einarsdóttir
Axel Ingi Ólafsson
Emil Grettir Ólafsson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Hafliði Jónsson
fyrrum garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar,
andaðist á Elliheimilinu Grund miðvikudaginn
19. desember.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hafsteinn Hafliðason.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur og tengdasonur,
Óskar Þór Sigurðsson
véltæknifræðingur, Lýsubergi 14,
Þorlákshöfn,
lést á Krabbameinsdeild Landspítalans þann 17. desem-
ber sl. Jarðsett verður í kyrrþey að ósk hins látna.
Ásta Margrét Grétarsdóttir
Birta og Bjarki
Guðrún Lísa Óskarsdóttir
Sjöfn Ólafsdóttir og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Áslaug Jónsdóttir
Hrísalundi 4 c, Akureyri,
lést á heimili sínu 20. desember.
Björn J. Jónsson Halldóra Steindórsdóttir
Sævar Ingi Jónsson Elín Gunnarsdóttir
Ingibjörg Jónsdóttir
Rósa Friðriksdóttir Ólafur Halldórsson
Atli Örn Jónsson Arnfríður Eva Jónsdóttir
Jón Már Jónsson Unnur Elín Guðmundsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
Ara Steinbergs Árnasonar
Lindasíðu 2, Akureyri.
Sérstakar þakkir til Runólfs Pálssonar læknis, starfs-
fólks á deild 13 E Landspítala, Lyflækningadeild
Sjúkrahúss Akureyrar og Heimahlynningu Akureyri
fyrir góða umönnun.
Guðrún Elísabet Aradóttir
Júlíus Fossberg Arason Fríður Leósdóttir
Ingunn Kristín Aradóttir Hinrik Karlsson
Jón Björn Arason Helga Guðjónsdóttir
Árni Arason Sveinbjörg Pálsdóttir
Rúnar Arason Dýrleif Skjóldal
afa- og langafabörn.