Fréttablaðið - 22.12.2007, Síða 84
52 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
Í
þúsundir ára hefur mað-
urinn tilbeðið sólina. Hún
færir birtu og yl og frá
upphafi skildi mannskepn-
an að án gjafa sólarinnar
væri ekkert líf mögulegt.
Dýrkun hennar var því næsta eðli-
leg í umkomuleysi mannskepn-
unnar frá örófi. Stjörnurnar voru
á sama hátt eins og geistlegur
leiðar vísir framtíðarinnar.
Forn menningarsamfélög gerðu
meira en að líta til himins með
óttablandinni virðingu. Menn per-
sónugerðu trú sína og spunnu upp
flóknar sögur um tengsl þeirra á
milli á ferð þeirra um himingeim-
inn. Stjörnumerkin urðu til sem
persónugervingur þess sem verða
vildi og sólin var þar guðdómleg í
hásæti. Hún var skapari alls lífs;
hún var ljós heimsins og frelsari
mannkyns. Hún var guð. Stjörnu-
merkin voru áfangastaðir þessa
frelsara og voru táknaðir með
dýrahringnum og sérkennum árs-
tíðanna. Vatnsberinn táknaði til
dæmis vorregnið og vakti vonir
um komandi uppskeru.
Sólguðinn Jesús Kristur
Því er haldið fram að sóldýrkun
mannskepnunnar lifi enn góðu lífi.
Í raun sé kristin trú aðeins byggð
á sóldýrkun og sólguðinn okkar sé
Jesús. Sagan um fæðingu Jesú sé
ekki byggð á sagnfræðilegum
staðreyndum. Sama megi segja
um líf hans, boðskap og krafta-
verk og að nánast allar þær sögur
sem sagðar eru í guðspjöllum
Biblíunnar séu byggðar á eldri
sögum um sólguði og frelsara sem
komu til jarðar til að færa mann-
fólkinu eilíft líf. Sannast sagna
geta sagnfræðingar samtíma hans
einskis um líf hans og starf. Það
má kalla undarlegt þegar umfang
lífsstarfs Jesú er haft í huga.
Draga mætti þá ályktun að þeir
sem höfðu atvinnu af því að skrá
niður atburði líðandi stundar
tækju eftir þessum unga manni,
sem fór svo mikinn.
Röksemdafærslan felst í því að
rekja hvað kristin trú á sammerkt
með trúarbrögðum fornra menn-
ingarsamfélaga. Efasemdirnar
eru ekki nýjar af nálinni en hafa
fengið endurnýjun lífgjafa í heim-
ildarmyndinni Zeitgeist sem fer
mikinn í netheimum þar sem millj-
ónir manna hafa kynnt sér boð-
skapinn. Líkingarnar eru stuðandi
og kenningin á sér marga fylgj-
endur. Aðrir, þeir trúuðu, smella í
góm og tala um niðurrif trúvill-
inga sem beina spjótum sínum að
því allra heilagasta; kjarna krist-
innar trúar.
Zeitgeist
Sögur fornra menningar samfélaga
um frelsis- og sólguði eru margar
sláandi líkar og augljóslega
byggðar á undrum náttúrunnar,
gangi sólarinnar og árstíðunum.
Ár hvert deyr náttúran og leggst í
dvala en þó aðeins í stutta stund í
einu. Það er eðlilegt að þessi undur-
samlega hringrás náttúrunnar
gefi dauðlegum von um að hið
sama eigi við líf manna og dýra.
Flestir eiga þessir frelsarar
sameiginlegt að móðir þeirra var
hrein mey, þeir fæddust á afvikn-
um og fátæklegum stað, þeir voru
synir guðs, voru handteknir og
dæmdir til dauða, voru kallaðir
lambið og ljós heimsins og þeir
voru sagðir hafa dáið fyrir syndir
Sóldýrkendur nútímans
Jólin voru að fornu hátíð til að fagna endurfæðingu sólarinnar. Trúin á guðlegt vald hennar er ævaforn enda er hún lífgjafi jarðarinnar.
Maðurinn persónugerði sólina og því er haldið fram að frelsarinn Jesús Kristur sé arfur þeirrar trúar. En eru kenningar um slíkt aðeins
niðurrif trúvillinga; rökleysa sem beint er að kjarna kristinnar trúar? Eða er sannleikskorn að finna, spyr Svavar Hávarðsson.
SÓL- OG FRELSISGUÐIR FYRIR KRISTSBURÐ
HELGIMYND AF FRELSARANUM Helgimynd frá sjöttu öld af Jesú Kristi í klaustursafni
heilagrar Katrínar á Sínaífjalli í Egyptalandi.
Fæddur 25. desember.
Eingetinn og fæddur af hreinni mey.
Móðurinni birtist engill sem boðaði
fæðingu sonarins.
Englakór söng honum til dýrðar við
fæðingu.
Stjarna í austri boðaði fæðingarstað
hans.
Þrír konungar leituðu hans og fundu
nýfæddan.
Um þrítugt var hann skírður af Anup
skírara.
Við skírnina breyttist nafn hans
í Horus karast. Það er skrifað HR
KRST sem þýðir hinn smurði.
Hann hafði tólf lærisveina.
Hann ferðaðist um og gerði krafta-
verk.
■ Læknaði sjúka.
■ Gekk á vatni.
Hann var nefndur:
■ Ljós heimsins
■ Lamb guðs
■ Sannleikurinn
■ Guðs einkasonur
■ Góði hirðirinn
Hann var svikinn af einum af læri-
sveina sinna
Hann var krossfestur.
Reis upp á þriðja degi.
OSIRIS - ISIS
Egypski guðinn Osiris var fyrst dýrk-
aður líklegast í kringum 3000 fyrir
Krist. Osiris var, eins og hinn kristni
guð, hluti af heilagri þrenningu.
Þrenningin samanstóð af hinum
himneska guði, hinum jarðneska
guði (konungi Egypta) og fálka. Til
samanburðar er hinn þríeini guð
kristninnar Guð, Jesús (sonurinn)
og hinn heilagi andi (oft táknaður í
formi dúfu). Hórus var sonur Osiris
á jörðu sem Osiris hafði eignast
með Isis.
HÓRUS - SÓLGUÐ EGYPTA
OSIRIS
Egyptaland
frá 3000 f.Kr. 2500
1 f.Kr.
ALCESTIS Pherae frá 600 f.Kr.
2000 1500
BEL
Babílónía
frá 1200 f.Kr.
ATTIS Phrygia frá 1170 f.Kr.
THEMMUZ
Sýrland
frá 1160 f.Kr.
DIONYSUS Grikkland frá 1100 f.Kr.
KRISNA Indland frá 1000 f.Kr.
HESUS Evrópa
frá 834 f.Kr.
INDRA
Tíbet
frá 725 f.Kr.
BALI Asía frá 725 f.Kr.
IAO Nepal frá 622 f.Kr. QUEXALCOTE Mexico frá 587 f.Kr.
PROMETHEUS Grikkland frá 550 f.Kr.
MÍTRA Persía frá 400 f.Kr.
QUIRINUS Róm frá 506 f.Kr.
WITTOBA Travancore frá 552 f.Kr.
Sirius
(Betlehem-
stjarnan)
Konungarnir þrír
(Óríonsbeltið)
Sólin (ljós
heimsins)
Afstaða stjarnanna á aðfangadag
jóla 24. desember: Sólin, Síríus
og stjörnurnar þrjár sem í beinni
röð mynda belti Óríons. Þetta eru
stjörnurnar Alnítak, Alnílam og
Mintaka og hafa oft verið nefndar
fjósakonurnar þrjár á íslensku.
Þær hafa um aldir verið kallaðar
konungarnir þrír. Stjörnurnar,
í beinni línu við Síríus, benda
í átt að sólarupprás á jóladag
– fæðingu ljóssins eða fæðingu
sólarinnar. Goðsögnin um vitring-
ana þrjá, eða konungana þrjá, er
talin komin frá þessari uppröðun
stjarnanna.
KONUNGARNIR ÞRÍR - VITRINGARNIR ÞRÍR
Er eitt af elstu táknum mannkyns-
sögunnar. Krossinn táknar sólina
og för hennar innan stjörnu-
merkjanna tólf á einu ári.
Hún táknar mánuðina tólf og
árstíðirnar fjórar. Í tákninu má
sjá sólstöður og jafndægur.
Krossinn var annað og meira
að mati Zeitgeist-manna en bara
verkfæri fornmanna til að fylgjast
með ferðum sólarinnar. Krossinn
var heiðið trúartákn sem kristnir
menn gerðu að sínu. Þess vegna
hafi listaverk frá fyrstu árum
kristninnar ávallt sýnt höfuð
Krists á krossi. Ásjóna Jesú
er sólin sjálf, ljós heimsins
eða endurborinn frelsari sem
sýnir sig á hverjum morgni.
Geislum sólarinnar stafar af höfði
hans. Þaðan er þyrnikórónan komin
yfirfærð í stað geisla sólarinnar.
DÝRAHRINGURINN - KROSS HEIÐNINNAR
Framhald á síðu 54