Fréttablaðið - 22.12.2007, Side 120
88 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Bjarni Þór Viðarsson, leikmaður Everton og íslenska landsliðs-
ins, fékk langþráð tækifæri með enska liðinu í leik gegn Grét-
ari Rafni Steinssyni og félögum í AZ Alkmaar í Evrópukeppni
félagsliða í fyrrakvöld. Bjarni Þór byrjaði á varamannabekk
Everton í leiknum en kom inn á fyrir Steven Pienaar á 69.
mínútu og komst vel frá sínu.
„Það tók mig smá tíma að venjast aðstæðum en ég er
sáttur með leik minn. Það var frábær stemning á leiknum
og ég var búinn að bíða nokkuð lengi eftir þessu tæki-
færi,“ sagði Bjarni Þór en Everton-liðið hefur verið
á miklu skriði undanfarið og er taplaust í þrettán
leikjum í öllum keppnum. Næsta verkefni liðsins
er leikur gegn Englandsmeisturum Manchester
United og Bjarni Þór segir mikla eftirvæntingu ríkja í
herbúðum liðsins.
„Það er búið að ganga vel upp á síðkastið og það
er því rosalega góður mórall í liðinu og jafnframt mikil
eftirvænting fyrir leikinn gegn United,“ sagði Bjarni Þór,
sem er þó óviss um framhaldið hjá sér.
„Staða mín er í rauninni mjög góð þrátt fyrir að framhaldið sé
fremur óljóst. Ég klára núverandi samninginn minn við Everton
næsta sumar og það hafa enn sem komið er ekki farið fram
neinar viðræður um framlengingu á honum. Það eina sem ég
get gert er bara að æfa vel og halda áfram að bæta mig og sjá til
hvað gerist,“ sagði Bjarni, sem útilokar ekki að fara einhvert
í lán þegar félagsskiptaglugginn opnast í janúar.
„Það hafa einhverjar þreifingar átt sér stað í sam-
bandi við að ég fari sem lánsmaður til annars
félags og það held ég að væri alls ekki vitlaust
skref fyrir mig. Það er náttúrulega hund -
leiðinlegt að vera ekki að spila reglulega og
ef ég er ekki inni í myndinni hjá Everton
myndi ég fagna því að fá tækifæri til þess
að fara eitthvert á láni og fá að spila
reglulega,“ sagði Bjarni, sem var í láni
hjá Bournemouth í ensku 2. deildinni
í byrjun árs og skoraði eitt mark í sex
leikjum með liðinu.
BJARNI ÞÓR VIÐARSSON: LÉK SINN FYRSTA LEIK MEÐ AÐALLIÐI EVERTON Í FYRRAKVÖLD EN ER ÓVISS UM FRAMHALDIÐ
Hundleiðinlegt að vera ekki að spila reglulega
DEILDARBIKARINN
27. desember - kvennaflokkur
Fram - Grótta kl. 18.30
Valur - Stjarnan kl. 20.30
28. desember - karlaflokkur
Haukar - Valur kl. 18.30
Stjarnan - Fram kl. 20.30
29. desember - úrslit
Kvennaflokkur kl. 13.40
Karlaflokkur kl. 16.00
HANDBOLTI Sú nýbreytni er á hand-
boltavertíðinni í ár að keppt
verður í deildarbikarnum á milli
jóla og nýars. Fjögur efstu liðin í
N1-deildum karla og kvenna taka
þátt í mótinu og í húfi er Evrópu-
sæti og hálf milljón króna í verð-
launafé. Liðið sem lendir í öðru
sæti fær 250 þúsund krónur.
Stelpurnar hefja leik á fimmtu-
dag þegar liðin í fyrsta og fjórða
sæti deildarinnar mætast. Það
eru Fram og Grótta. Valur og
Stjarnan, sem eru í öðru og þriðja
sæti, spila síðari leik fimmtu-
dagsins.
Sami háttur er hafður á hjá
strákunum á föstudeginum þegar
topplið Hauka byrjar að spila við
Íslandsmeistara Vals og svo mæt-
ast Fram og Stjarnan.
Úrslitaleikirnir fara svo fram á
laugardag. Allir leikirnir fara
fram í Laugardalshöll. Aðgangs-
eyrir á alla sex leikina er aðeins
1.000 krónur. - hbg
N1-deildarbikarinn fer fram í fyrsta skipti á milli jóla og nýárs:
Liðin munu keppa um Evrópu-
sæti og hálfa milljón króna
MEISTARARNIR Í HÖLLINNI
Pálmar Pétursson og félagar
í Val tryggðu sér sæti í
deildar bikarnum á elleftu
stundu. Valsmenn mæta
Haukum á föstudaginn
og verður það eflaust
hörkurimma eins og
venjulega hjá þessum
tveim liðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Í gær var dregið í 32-liða
úrslit UEFA-bikarsins. Nokkuð er
um áhugaverðar viðureignir og til
að mynda mætast Íslendingaliðin
Brann og Everton.
Bolton á mjög erfitt verkefni
fyrir höndum gegn Atletico
Madrid rétt eins og Ólafur Ingi
Skúlason og félagar í Helsingborg
sem fengu PSV Eindhoven.
Rosenborg mætir Fiorentina og
Slavia Prag fær það verðuga
verkefni að spila gegn Tottenham.
Fyrri leikirnir verða spilaðir 13.
og 14. febrúar og þeir síðari 21.
febrúar. - hbg
UEFA-bikarinn:
Brann mætir
Everton
FER Á GOODISON PARK Kristján Örn
Sigurðsson og félagar í Brann þurfa að
mæta Everton á Goodison Park.
FRÉTTABLAÐIÐ/SCANPIX
FÓTBOLTI Manchester United
ákvað í gær að semja við hinn 24
ára gamla angólska framherja
Manucho. Hann mun gera þriggja
ára samning við United en hann
kemur frá angólska liðinu Pedro
Atletico.
Manucho hefur verið til reynslu
hjá félaginu síðustu þrjár vikur
en það var aðstoðarmaður
Fergusons, Carlos Queiroz, sem
fann leikmanninn.
Hann kemur til United í janúar
fái hann atvinnuleyfi. - hbg
Nýr framherji á Old Trafford:
Manucho til
Man. Utd
UEFA - BIKARINN
32-liða úrslit:
Aberdeen - Bayern München
AEK Aþena - Getafe
Bolton - Atletico Madrid
Zenit St. Petersburg - Villarreal
Galatasaray - Bayer Leverkusen
Anderlecht - Bordeaux
Brann - Everton
FC Zürich - Hamburg SV
Rangers - Panathinaikos
PSV Eindhoven - Helsingborg
Slavia Prag - Tottenham
Rosenborg - Fiorentina
Sporting Lisbon - Basel
Werder Bremen - Braga
Benifica - Nuremberg
Marseille - Spartak Moskva
> Framtíð Marels enn óljós
Ekki liggur enn fyrir hvar Marel Baldvinsson muni spila fót-
bolta næsta sumar. Hann hafði áður sagst ætla að ákveða
sig fyrir jól en hann tjáði Fréttablaðinu í gær
að líklega fengist engin niðurstaða í hans
mál fyrr en eftir jólahátíðina. Marel, sem
fékk sig lausan frá Molde á dögunum,
er sterklega orðaður við sitt gamla
félag Breiðablik, en vitað er að bæði
Fram og FH horfa hýru augu til
framherjans sterka.
FÓTBOLTI Sem fyrr er þétt spilað í enska boltanum um
jólin. Sjö leikir fara fram í dag, þrír á morgun og svo
er strax aftur spilað á annan í jólum. Jólavertíð
enskra knattspyrnumanna lýkur ekki fyrr en 2. jan-
úar.
Nokkrir áhugaverðir leikir fara fram í dag eins og
viðureign Liverpool og Portsmouth. Stórleikur dags-
ins er þó klárlega viðureign Lundúnaliðanna Arsenal
og Tottenham en rimmur liðanna eru oftar en ekki
mjög fjörlegar og mönnum iðulega heitt í hamsi.
Það er fínt ástand á Arsenal-liðinu og allir leik-
menn heilir heilsu fyrir utan Theo Walcott sem hefur
ekkert æft í vikunni vegna veikinda. Hjá Tottenham
er Didier Zokora fjarri góðu gamni þar sem hann er í
leikbanni. Ledley King gæti aftur á móti verið klár í
slaginn. Þetta verður í fyrsta sinn sem
Juande Ramos, stjóri Tottenham, upplifir
þennan Lundúnaslag og hann gerir sér vel
grein fyrir því að loftið verði lævi blandið.
„Það gerist í öllum löndum í álíka rimm-
um. Móðganir ganga á milli manna sem og
áhorfenda. Það er í góðu lagi svo framar-
lega sem því fylgir ekkert ofbeldi. Það
truflar mig samt ekkert hvað áhorfendur
segja um mig þar sem ég skil það hvort eð
er ekki,“ sagði Ramos léttur en Spurs hefur
ekki tekist að leggja Arsenal í síðustu sex-
tán viðureignum liðanna.
Portsmouth hefur átt ákaflega góðu gengi
að fagna á útivelli í vetur og unnið sex síð-
ustu útileiki sína. Verður því áhugavert að
sjá hvað liðið gerir gegn Liverpool á Anfield
en Liverpool má engan veginn við því að tapa
leiknum eftir tapið gegn
Manchester United um
síðustu helgi. Hermann
Hreiðarsson verður
væntanlega í byrjunar-
liði Portsmouth.
henry@frettabladid.is
Lundúnaslagur í dag
Það verður ekkert jólahlé í enska boltanum og stutt milli leikja yfir hátíðirnar.
Ballið byrjar í dag með sjö leikjum en þrír leikir fara síðan fram á Þorláks-
messu. Topplið Arsenal tekur á móti Tottenham í stórleik dagsins.
HEITUR Willi-
am Gallas
og félagar í
liði Arsenal
hafa fagn-
að mikið
á árinu og
ekki enn
tapað á
heimavelli.
NORDIC PHOTOS/
GETTY IMAGES
ENSKI BOLTINN
Leikir dagsins:
Arsenal-Tottenham kl. 12.45
Aston Villa-Man. City kl. 15.00
Bolton-Birmingham kl. 15.00
Fulham-Wigan kl. 15.00
Liverpool-Portsmouth kl. 15.00
Middlesbrough-West Ham kl. 15.00
Reading-Sunderland kl. 15.00
FÓTBOLTI Flest bendir til þess að
David Beckham muni mæta á
æfingar hjá Arsenal fljótlega.
Beckham þarf að vera í formi
ætli hann sér að komast í
landsliðhóp Fabio Capello fyrir
æfingaleikinn gegn Sviss sem fer
fram á Wembley 6. febrúar.
„Við munum aðstoða hann við
að komast í form og vera tilbúinn
í átökin,“ sagði Arsene Wenger,
stjóri Arsenal, við BBC. „Það er
mjög líklegt að hann komi til
æfinga hjá okkur í janúar en það
er ekki frágengið.“
Það myndi henta Beckham
ákaflega vel að æfa með Arsenal
þar sem æfingasvæði félagsins er
mjög nálægt húsinu hans í
London.
Beckham er mikið í mun að
komast í landsliðið enda er hann
aðeins einum landsleik frá 100.
„Vonandi nær hann 100. Ef ekki
100 þá 120 en hann er á þeim
aldrei að hann þarf að vera í
formi,“ sagði Wenger um hinn 32
ára gamla Beckham. - hbg
David Beckham:
Æfir líklega
með Arsenal
DAVD BECKHAM Fær væntanlega grænt
ljós á að æfa með Arsenal.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Gummersbach hefur
klófest austurríska landsliðs-
manninn Viktor Szilagyi frá
Þýskalandsmeisturum Kiel.
Szilagyi mun ganga í raðir
Gummersbach næsta sumar.
Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir
Alfreð Gíslason og félaga enda er
Szilagyi mjög sterkur miðju-
maður sem getur einnig leikið
sem skytta en Gummersbach
hefur sárlega vantað sterkan
miðjumann síðan Daniel Narcisse
fór til Frakklands.
Það er því loksins eitthvað að
gerast í leikmannamálunum hjá
félaginu. Gummers-
bach nældi einnig í
franskan landsliðs-
mann á dögunum
sem mun leysa
Guðjón Val
Sigurðsson af
hólmi og
Alfreð
Gíslason sagði
við Frétta-
blaðið á
dögunum að
von væri á 2-
3 nýjum
mönnum í
viðbót. - hbg
Gummersbach fær liðsstyrk:
Alfreð nælir í
Szilagyi