Fréttablaðið - 31.12.2007, Page 60
52 31. desember 2007 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Enska úrvalsdeildin:
Manchester City-Liverpool 0-0
Derby - Blackburn 1-2
1-0 Matt Oakley (27,) 1-1 Roque Santa Cruz (39.),
1-2 David Bentley (42.).
Iceland Express-deild karla:
Leik Snæfells og Þórs Akureyri sem fara átti fram
í gær var frestað vegna veðurs. Hann hefur verið
settur á að nýju 2. janúar.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Guðný Björk Óðinsdóttir,
Margrét Lára Viðarsdóttir og
Guðbjörg Gunnarsdóttir fóru til
reynslu hjá bandaríska úrvals-
deildarliðinu FC Indiana rétt
fyrir jól. Valsstúlkurnar tóku
tvær æfingar með þessi feiki-
sterka félagsliði þar sem þær
æfðu þó aðallega með strákum
vegna fría. Guðný skoraði tvö
mörk í 8-4 tapi í æfingaleik gegn
strákunum en henni leist ágæt-
lega á félagið.
„Þeir eru reyndar ekkert svo
góðir,“ sagði Guðný kímin um
meistaraflokk karlaliðs FC
Indiana. „Þetta var mjög fínt
annars og aðstæðurnar eru góðar.
Mér skilst að félagið vilji semja
við okkur en ég er ekki viss um
að ég myndi gera það ef það
byðist. Mig langar eiginlega bara
til að vera í Val,“ sagði Guðný
sem ætlar þó ekki að útiloka neitt
eins og er. - hþh
Guðný Björk Óðinsdóttir:
Skoraði tvö
gegn strákunum
GUÐNÝ Stóð sig vel úti í Bandaríkjunum.
NFL New England Patriots varð
um helgina annað liðið í sögu
NFL-deildarinnar til að vinna alla
leiki sína í deildarkeppninni.
Patriots lagði New York Giants
38-35 í lokaleik sínum og full-
komnaði þar tímabil sitt með
sextánda sigurleiknum. Miami
Dolphins vann alla fjórtán leiki
sína árið 1972 áður en fyrirkomu-
lagi deildarinnar var breytt 1978.
Leikstjórnandi Patriots, Tom
Brady, bætti einnig met yfir
flestar snertimarkssendingar á
einu tímabili en þær urðu 50
talsins. Peyton Manning sendi 49
slíkar fyrir Indianapolis Colts
árið 2004. Þá bætti Randy Moss
20 ára gamalt met Jerry Rice yfir
flest snertimörk útherja. Moss
skoraði 23 snertimörk á tímabil-
inu og bætti metið um eitt mark.
Úrslitakeppnin í NFL hefst í
janúar. - hþh
New England Patriots:
Tapaði ekki leik
MAGNAÐUR Brady býr sig undir að kasta
í lokaleik deildarkeppninnar um helgina.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Franska dagblaðið
L’Equipe greindi frá því í gær að
Jose Mourinho hefði samþykkt að
taka við AC Milan eftir tímabilið.
Mourinho hætti sem stjóri
Chelsea í september og hefur enn
ekki fundið sér nýtt starf en
hefur lýst yfir áhuga á því að
stýra liði á Ítalíu. Fyrstu kaup
Mourinho yrðu svo endurfundir
við Didier Drogba sem lýsti yfir
óánægju með að missa stjórann
frá Chelsea.
Blaðið segir einnig að Carlo
Ancelotti, sem stýrir nú AC
Milan, muni taka við Barcelona af
Frank Rijkaard sem er undir
mikilli pressu þessa dagana. - hþh
José Mourinho:
Á leið til Milan
ásamt Drogba?
FÓTBOLTI Marel Baldvinsson byrj-
aði að mæta fimm ára gamall á
æfingar hjá Blikum og eftir nokk-
urra ára flakk í atvinnumennsku
er hann nú alfarið kominn heim.
Hann skrifaði undir þriggja ára
samning við Breiðablik í gær og
er ánægður með vistaskiptin.
„Það er ljúft að vera kominn
heim í Blikana. Það eru spennandi
tímar framundan hér, það er allt í
kringum þetta sem mælir með því.
Hér er besta aðstaðan á landinu,
góður þjálfari, flottur heima völlur,
líflegir stuðningsmenn og góður
leikmannahópur,“ sagði hinn 27
ára gamli framherji.
Hann var í tvö og hálft ár hjá
Stabæk í Noregi áður en hann
gekk í raðir Lokeren í Belgíu.
Þaðan lá leiðin heim 2006 áður en
hann fór til Molde. Þar fann hvorki
hann né fjölskylda hans sig og
ákvað því að koma aftur heim.
Þrátt fyrir áhuga annarra liða
ákvað Marel að krota undir í Kópa-
voginum.
„Ég skoðaði það sem bauðst og
hvort að þeir kostir væru spenn-
andi knattspyrnulega séð. Sumir
voru það en ég leit svo á að það
væru ekki síður spennandi hlutir í
gangi hér. Svo er ég auðvitað upp-
alinn hér,“ sagði Marel sem fór
rólega í yfirlýsingar um markmið-
in í Kópavoginum.
„Við skulum fara rólega í yfir-
lýsingar um titla en ég sé ekki af
hverju við ættum ekki að geta
blandað okkur í toppbaráttuna.
Það ætti að vera hægt að byggja á
því sem var gert vel síðasta
sumar,“ sagði Marel.
Marel lék síðast með Blikum
sumarið 2006 þegar hann fór á
kostum. Hann skoraði þá ellefu
mörk í þrettán leikjum og varð
markakóngur deildarinnar. Hann
hefur alls leikið 28 leiki með Blik-
um í efstu deild á Íslandi og skor-
að í þeim sautján mörk.
Hann segist kominn til að vera
og hyggst koma sér fyrir á Íslandi.
„Gámurinn með dótinu er á leið-
inni og ég er alfarið kominn heim.
Ég held að þetta sé komið ágætt í
atvinnumennskunni núna og ég
muni bara einbeita mér að Blikun-
um,“ sagði Marel sem er ánægður
með uppganginn í knattspyrnunni
á Íslandi.
„Umgjörðin hér heima hefur
breyst og ég lít ekkert á það sem
skref niður á við að koma heim.
Fótboltinn er í uppgangi og svo
líður manni alltaf best heima,
þrátt fyrir veðurfarið,“ sagði
Marel brosmildur.
Einar Kristján Jónsson, formað-
ur knattspyrnudeildar Breiða-
bliks, lýsti yfir mikilli ánægju
með að fá Marel aftur í sínar raðir.
Hann staðfesti einnig að Magnús
Páll Gunnarsson myndi að öllum
líkindum framlengja samning sinn
við Blika en viðræður við hann
eru á lokastigi. - hþh
Ég er alfarið kominn heim
Framherjinn Marel Baldvinsson skrifaði í gær undir þriggja ára samning við
uppeldisfélag sitt, Breiðablik. Hvalreki á fjörur Blika sem ætla sér stóra hluti
næsta sumar. „Það eru spennandi tímar framundan hjá Blikum,“ segir Marel.
KOMINN AFTUR Í BLIKATREYJUNA Marel
handsalar samninginn í gær með Einari
Jónssyni, formanni knattspyrnudeildar
Breiðabliks. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SÍÐASTA YFIRFERÐ Marel skoðar samninginn áður en hann skrifar undir. Samningur-
inn er til þriggja ára. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
> Grétar tryggði AZ Alkmaar sigur
Grétar Rafn Steinsson skoraði sigurmark AZ Alkmaar
gegn Heracles Almelo í hollensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gær. Grétar lék allan leikinn í vörn AZ og skoraði
sigurmarkið á 71. mínútu við mikinn fögnuð sextán
þúsund áhorfenda á heimavelli Alkmaar. Þetta var fyrsta
mark Grétars á tímabilinu en liðinu hefur ekki gengið
sem skyldi undanfarið. Með
sigrinum komst það þó upp
í níunda sæti deildarinnar
og á nú tvo leiki til góða
á liðin í næstu sætum
fyrir ofan.
Handknattleiksdeild Hauka lagði í gær inn
kæru á borð HSÍ á framkvæmd úrslitaleiks
félagsins gegn Fram í N1-deildarbikar karla
í handbolta. Leikurinn fór fram á laugardag-
inn og þau mistök voru gerð að eitt marka
Framara í fyrri hálfleik var tvískráð á stöðu-
töflunni. Fram vann leikinn 30-28.
„Framkvæmd leiksins er ekki í lagi og ein-
faldlega ólögleg. Þetta er grátlegt fyrir bæði
félög og HSÍ þar sem mótið var glæsilegt í
alla staði,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari
Hauka, við Fréttablaðið í gær. Framarar
fengu auk heiðursins 500 þúsund krónur
og sæti í Evrópukeppni á næstu leiktíð fyrir
sigurinn. Haukar fengu 250 þúsund krónur
fyrir annað sætið.
Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri
HSÍ, sagði að málið færi nú fyrir dómstól
HSÍ og sína leið í gegnum kerfið. „Það
eiga sér stað mannleg mistök og þetta er
leiðindaatvik. Auðvitað hörmum við það og
þetta skyggir á hversu vel mótið heppnaðist.
Þetta fer nú sína leið í gegnum dómstól-
ana,“ sagði Einar og bætti við að ef kæmi til
þess að spila þyrfti leikinn aftur yrði erfitt að
finna tíma til þess fyrr en í vor.
Aron er mjög ósáttur við að ekkert
skyldi vera aðhafst í mál- inu á meðan
á leiknum stóð. „Ábyrgðin
liggur hjá fram-
kvæmdaraðila leiks-
ins. Það eru dómarar,
eftirlitsmaður og tímavörður til
staðar svo það er nóg af mönnum
þarna. Hlutlausir aðilar gerðu athugasemdir
við þetta og það er magnað að ekkert sé
viðhafst í málinu,“ sagði Aron sem er ekki í
vafa um að leikurinn hefði þróast á annan
veg ef mistökin hefðu verið leiðrétt.
„Leikurinn er í járnum í lokin. Þegar við
erum að jafna í síðari hálfleik erum við í
raun að komast yfir og það hefur sálræn
áhrif á alla leikmenn. Menn taka
ákvarðanir út frá stöðu leiks-
ins og þetta hefur gríðarleg
áhrif á leikinn,“ sagði Aron
sem segir eðlilegt að spila
þurfi leikinn aftur.
„Það segir sig sjálft að
það þurfi að spila leikinn
aftur. Það er ekki hægt
að útdeila titli, peninga-
verðlaunum og
Evrópusæti á þessu.
Dómarar og fleiri gera
mistök í hita leiksins
en þetta er út fyrir
þann ramma,“ sagði
Aron.
HANDKNATTLEIKSDEILD HAUKA: KÆRIR FRAMKVÆMD ÚRSLITALEIKSINS Í DEILDARBIKARNUM GEGN FRAM
Magnað að ekkert skuli vera aðhafst í málinu
FÓTBOLTI Liverpool og Manchester
City gerðu markalaust jafntefli í
ensku úrvalsdeildinni í gær. Liver-
pool mistókst þar með að minnka
forystu toppliðanna en leikmenn
liðsins geta sjálfum sér um kennt.
Þeir fengu urmul marktæki-
færa en engu líkara er að þeir hafi
geymt skotskóna heima á Anfield.
Liverpool átti um tuttugu skot að
marki City en miðvarðarparið
Richard Dunne og Micah Richards
átti stórleik auk Joe Hart mark-
manns. Það varð til þess að gest-
irnir náðu ekki að skora, ekki frek-
ar en baráttuglaðir heimamenn.
City átti aðeins fjögur skot að
marki og fór vart yfir miðju í síð-
ari hálfleik en barðist vel fyrir
stiginu. Jamie Carragher fór fyrir
vörn Liverpool og stöðvaði marg-
ar sóknarlotur heimamanna sem
eru líklega sáttari með stigið en
gestirnir.
„Við erum ögn pirraðir yfir
þessu. Við sköpuðum okkur mörg
marktækifæri, spiluðum vel og
héldum boltanum innan liðsins á
löngum stundum. Ég er ánægður
með liðið mitt en óánægður með
úrslitin,“ sagði Rafael Benítez,
knattspyrnustjóri Liverpool.
„Við fengum nógu mörg tæki-
færi til að vinna leikinn gegn mjög
góðu liði sem er erfitt heim að
sækja. Leikmennirnir lögðu sig
alla fram í verkefnið en það dugði
ekki til að þessu sinni. Það er gott
að halda hreinu á útivelli en eftir
svona mörg skot á markið átti að
klára leikinn,“ sagði Benítez.
Dunne var að öðrum ólöstuðum
maður leiksins en hann bjargaði
sínum mönnum hvað eftir annað á
ögurstundu. „Þetta var mjög erfitt.
Liverpool hefur verið gagnrýnt
fyrir að spila ekki nógu vel en það
sýndi í dag hvað í því býr. Sem
betur fer stóðum við okkar plikt í
vörninni og það skilaði sér í þess-
um leik,“ sagði
Dunne.
Blackburn lagði
Derby
Derby endaði
árið á tapi og
situr sem fastast
á botni deild-
arinnar með
aðeins sjö
stig. Árið
2008 verð-
ur erfitt
fyrir Paul
Jewell,
stjóra liðsins,
en Steve
Howard
brenndi af víta-
spyrnu fyrir
Derby eftir að
liðið komst í 1-0.
Leikmenn Black-
burn nýttu sér
það og skoruðu tvö mörk í fyrri
hálfleiknum og unnu að lokum
2-1.
„Við sýndum mikinn dug
í að koma sterkir til baka
og ef við hefðum nýtt
eitthvert af þessum
færum hefðum við
unnið stærra,“ sagði
Mark Hughes, stjóri
Blackburn, eftir sig-
urinn. Blakcburn er í
níunda sæti deildar-
innar, stutt frá bar-
áttunni um Evrópu-
sæti. - hþh
Liverpool og Manchester City gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í gær:
Leikmenn Liverpool gleymdu skotskónum
STERKUR Richard
Dunne er hér á undan
Fernando Torres í
boltann, eins og svo
oft í leiknum í gær.
NORDICPHOTOS/GETTY