Fréttablaðið - 31.12.2007, Side 72
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Í dag er mánudagurinn 31.
desember, 365. dagur ársins.
11.20 13.31 15.41
11.34 13.15 14.57
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
7
–
2
1
3
6
Gleðilegt nýtt á
r!
Starfsfólk Glitnis
óskar landsmön
num öllum farsæ
ldar á
nýju ári og þakk
ar viðskiptin á á
rinu sem er að lí
ða
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is
Veður á árinu 2008 verður svipað og undanfarin ár nema heldur
vætusamara á 17da júní og um
verslunarmannahelgina. Af komu -
mögu leikar halda áfram að vera
góðir hjá þeim sem skilja að lífið er
ekkert annað eitt allsherjar
guðdómlegt viðskiptatækifæri.
Árangur kvótakerfisins kemur
endanlega í ljós á árinu þegar
íslenski þorskurinn verður skráð-
ur á heimsminjaskrá yfir dýr í
útrýmingarhættu við hlið íslensku
krónunnar.
KJARASAMNINGAR munu
ganga fljótt og vel nema hjá þeim
óábyrgu stéttum sem hafa einsett
sér að kollvarpa stöðugleikanum
með því að krefjast launahækkana
að fordæmi Kjararáðs. Mikil-
vægur árangur næst í málefnum
öryrkja og eldri borgara þegar
felldur verður niður virðisauka-
skattur á svefn- og þunglyndis-
lyfjum. Í jafnréttismálum verða
þær framfarir að einstaklingum
verður nú leyft að giftast sjálfum
sér til að fara ekki á mis við hjóna-
afslátt.
EMBÆTTAVEITINGAR verða
óskeikular þegar deCode setur á
markað uppfinningu sem nefnist
„genometer“. Þetta mælitæki er
svo hárnákvæmt að jafnvel gömul
og uppþornuð munnvatnssýni á
afturendum stjórnmálamanna
duga til að gefa nákvæmar upp-
lýsingar um genamengi og ættar-
tengsl þeirra sem óhætt er að
treysta fyrir opinberum embætt-
um.
LANDSVIRKJUN verður einka-
vædd og mun Þjóðbankinn kaupa
öll hlutabréf í fyrirtækinu og fá
RUV ofh. í kaupbæti. Seinna á
árinu kemur svo í ljós að rúss-
neska mannúðarfyrirtækið GAZ-
PROM í samvinnu við RIO TINTO
fjármagnaði viðskiptin og fær í
sinn hlut 90% eignaraðild. Íslands-
vinurinn Vladimir Zhirinovskí
tekur við af Friðriki Sófussyni
sem forstjóri Landsvirkjunar.
Arnold Schwarzenegger mun leika
aðalhlutverkið í sjónvarps seríunni
„Bjöggi Rússabani“ sem RUV ohf.
lætur framleiða og fjallar um
útrásarvíkinga. Tveir þekktir
Íslendingar munu látast á árinu og
verður annar þeirra þekktari en
hinn. Útför þess þekktari verður
gerð á kostnað tímaritsins Séð og
heyrt. Forseti Íslands mun skýra
frá því að hann hyggist bjóða sig
fram aftur 2008, 2012, 2016, 2020
og 2024 en fullkomin óvissa ríkir
áfram um forsetakosningarnar
2028. Að öðru leyti verða fastir
liðir eins og venjulega. Sem sagt:
Gott og gleðilegt nýtt ár!
Spáð í 2008