Fréttablaðið - 31.12.2007, Page 72

Fréttablaðið - 31.12.2007, Page 72
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar Í dag er mánudagurinn 31. desember, 365. dagur ársins. 11.20 13.31 15.41 11.34 13.15 14.57 H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 7 – 2 1 3 6 Gleðilegt nýtt á r! Starfsfólk Glitnis óskar landsmön num öllum farsæ ldar á nýju ári og þakk ar viðskiptin á á rinu sem er að lí ða „...fyrst á visir.is“ ...ég sá það á visir.is Veður á árinu 2008 verður svipað og undanfarin ár nema heldur vætusamara á 17da júní og um verslunarmannahelgina. Af komu - mögu leikar halda áfram að vera góðir hjá þeim sem skilja að lífið er ekkert annað eitt allsherjar guðdómlegt viðskiptatækifæri. Árangur kvótakerfisins kemur endanlega í ljós á árinu þegar íslenski þorskurinn verður skráð- ur á heimsminjaskrá yfir dýr í útrýmingarhættu við hlið íslensku krónunnar. KJARASAMNINGAR munu ganga fljótt og vel nema hjá þeim óábyrgu stéttum sem hafa einsett sér að kollvarpa stöðugleikanum með því að krefjast launahækkana að fordæmi Kjararáðs. Mikil- vægur árangur næst í málefnum öryrkja og eldri borgara þegar felldur verður niður virðisauka- skattur á svefn- og þunglyndis- lyfjum. Í jafnréttismálum verða þær framfarir að einstaklingum verður nú leyft að giftast sjálfum sér til að fara ekki á mis við hjóna- afslátt. EMBÆTTAVEITINGAR verða óskeikular þegar deCode setur á markað uppfinningu sem nefnist „genometer“. Þetta mælitæki er svo hárnákvæmt að jafnvel gömul og uppþornuð munnvatnssýni á afturendum stjórnmálamanna duga til að gefa nákvæmar upp- lýsingar um genamengi og ættar- tengsl þeirra sem óhætt er að treysta fyrir opinberum embætt- um. LANDSVIRKJUN verður einka- vædd og mun Þjóðbankinn kaupa öll hlutabréf í fyrirtækinu og fá RUV ofh. í kaupbæti. Seinna á árinu kemur svo í ljós að rúss- neska mannúðarfyrirtækið GAZ- PROM í samvinnu við RIO TINTO fjármagnaði viðskiptin og fær í sinn hlut 90% eignaraðild. Íslands- vinurinn Vladimir Zhirinovskí tekur við af Friðriki Sófussyni sem forstjóri Landsvirkjunar. Arnold Schwarzenegger mun leika aðalhlutverkið í sjónvarps seríunni „Bjöggi Rússabani“ sem RUV ohf. lætur framleiða og fjallar um útrásarvíkinga. Tveir þekktir Íslendingar munu látast á árinu og verður annar þeirra þekktari en hinn. Útför þess þekktari verður gerð á kostnað tímaritsins Séð og heyrt. Forseti Íslands mun skýra frá því að hann hyggist bjóða sig fram aftur 2008, 2012, 2016, 2020 og 2024 en fullkomin óvissa ríkir áfram um forsetakosningarnar 2028. Að öðru leyti verða fastir liðir eins og venjulega. Sem sagt: Gott og gleðilegt nýtt ár! Spáð í 2008

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.