Fréttablaðið - 02.01.2008, Síða 8
8 2. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
RV
U
N
IQ
U
E
01
08
01
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Katrín Edda Svansdóttir,
sölumaður í þjónustuveri RV
Skrifstofuvörur
- á janúartilboði
Á tilboðií janúar 2008
Bréfabindi, ljósritunarpappír,
töflutússar og skurðarhnífur
1.398 kr. ks.
5 x 500 blöð í ks.
1. Hvað heitir nýr forseti
Kenía?
2. Framherjinn Marel
Baldvinsson skrifaði nýverið
undir samning við íslenskt
knattspyrnulið. Hvaða lið?
3. Hvað heitir Íslendingurinn
sem stóð fyrir jólasveinagöngu í
Peking á dögunum?
SVÖR Á SÍÐU 42
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
úrskurðað mann í gæsluvarðhald
þar til dómur fellur í máli hans í
Hæstarétti. Hann var dæmdur í
tólf mánaða fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjavíkur 4. desember
fyrir auðgunar-, fíkniefna- og
umferðarlagabrot, en áfrýjaði.
Maðurinn, sem á að baki langan
sakaferil, hefur setið í varðhaldi
síðan 11. september á þessu ári.
Fyrst vegna rannsóknarhags-
muna, síðan í síbrotagæslu og því
næst var honum haldið þar til
áfrýjunarfrestur var liðinn. Nú
hefur hann verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald þar til dómur
fellur í Hæstarétti, þó ekki lengur
en til 29. febrúar 2008. - sþs
Bíður dóms Hæstaréttar:
Síbrotamanni
haldið í gæslu
Hammond fram til formanns
Aleqa Hammond, sem fer með
utanríkismál í grænlensku landstjórn-
inni, hyggst sækjast eftir formennsku
í Siumut-flokknum á flokksþingi í
febrúar næstkomandi. Nái hún kjöri
verður hún fyrsta konan til að hljóta
þann frama.
GRÆNLAND
Gáfu bænum Nonnahús
Zontaklúbbur Akureyrar gaf Akur-
eyrarbæ Nonnahús í gær. Safnið er
helgað minningu Jóns Sveinssonar
rithöfundar og jesúítaprests, og hafa
Zontakonur í bænum rekið það í
hálfa öld. Minjasafnið á Akureyri tekur
nú við rekstri safnsins.
AKUREYRI
SLÓVENÍA, AP Á nýársdag varð
Slóvenía fyrst þeirra tólf ríkja
sem gengið hafa til liðs við Evr-
ópusambandið síðan árið 2004 til
að taka við formennskuhlutverk-
inu í því.
Áður en Slóvenía varð sjálfstætt
ríki með tæplega tvær milljónir
íbúa árið 1991 var landið nyrsti
hluti júgóslavneska sambands-
ríkisins. Af umsóknarríkjunum í
Mið- og Austur-Evrópu varð Sló-
venía fyrst til að uppfylla skilyrð-
in fyrir inngöngu í sambandið og
hún var fyrst nýju aðildarríkjanna
til að taka upp evruna fyrir ári.
Meðal helstu verkefna á for-
mennskumisserinu verður að
fylgja eftir fullgildingarferli
Lissabon sáttmálans svonefnda,
nýjustu uppfærslu stofnsáttmála
ESB, en stefnt er að því að hann
geti tekið gildi árið 2009. Þá hafa
Slóvenar það snúna verkefni að
reyna að fá bæði Serba og Kosovo-
Albana til að sættast á lausn á
framtíðarskipan Kosovo.
Slóvenski utanríkisráðherrann
Dmitrij Rupel segir smæð lands-
ins geta verið kost. „Margir segja
okkur að litlar þjóðir taki for-
mennskuna alvarlegar en stórar,“
tjáði hann AP-fréttastofunni. „Og
þannig nái þær árangri.“ - aa
Formennskuskipti í Evrópusambandinu:
Slóvenar til forystu
fyrstir nýliðaþjóða
ALPALÝÐVELDI Fánar Slóveníu og Evrópusambandsins blakta við hún á stjórnarbygg-
ingu í höfuðborginni Ljúblíana. NORDICPHOTOS/AFP
FÉLAGSMÁL „Við höfum barist fyrir þessu í fjölda ára.
Það hefur þó hvorki gengið né rekið þar til Jóhanna
tók við,“ segir Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri
Geðhjálpar, um átaksverkefni félagsmálaráðuneytis-
ins sem miðar að því að efla þjónustu við geðfatlaða.
„Verkefnið nær til 160 manns á landinu sem þurfa
á búsetu að halda á vegum svæðisskrifstofa eða
félagsþjónustu sveitarfélaga. Markmiðið er að veita
fólki íbúðir utan stofnana og styrkja þjónustu sem
talin er efla virkni fólks með geðfötlun. Átakið
nefnist Straumhvörf og er Ásta R. Jóhannesdóttir
þingkona formaður verkefnisins.
Þá hefur Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra undirritað samkomulag við hússjóð Öryrkja-
bandalagsins um kaup á 15 íbúðum í Reykjavík sem
notaðar verða í þágu geðfatlaðra. Íbúðirnar hafa
þegar verið teknar í notkun. Þar með hafa 27 manns
fengið húsnæði á árinu fyrir atbeina Straumhvarfa.
Sveinn segir að frá því í lok ársins 2006 og þar til
nú hafi 111 einstaklingar leitað til hans þar sem þeir
hafa ekki haft í önnur hús að venda. Enn sé mjög
margt ógert en þetta verkefni lofi góðu um
framhaldið. - kdk
Formaður Geðhjálpar segir að 111 hafi leitað til sín vegna húsnæðisleysis:
Nýjar íbúðir fyrir geðfatlaða
LÖGREGLUMÁL Brotist var inn í
vinnugám verktaka sem vinna við
að reisa verksmiðju Icelandic
Water Holdings við Hlíðarenda í
Ölfusi.
Að sögn varðstjóra lögreglunn-
ar á Selfossi fóru verktakar af
svæðinu daginn fyrir Þorláks-
messu og uppgötvaðist innbrotið
þegar þeir snéru aftur til vinnu á
fimmtudagsmorgun.
Í gámnum var mikið af
nýlegum verkfærum og var þeim
öllum stolið. Er tjónið talið í
hundruðum þúsunda. Lögreglan
biður alla þá sem telja sig hafa
upplýsingar um málið að hafa
samband í síma 480 1010. - ovd
Stálu öllu steini léttara:
Verkfærum
stolið í Ölfusi
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR SVEINN MAGNÚSSON
HÚSNÆÐISMÁL Fasteignaverð hefur
hækkað um ríflega 100 prósent
umfram verðlag frá árinu 2000,
samkvæmt drögum að greinar-
gerð og tillögum nefndar um
úrræði í húsnæðismálum. Verð-
þróun umfram kaupmátt launa
hefur leitt til þess að vaxandi
hópur fólks hefur ekki fjárhags-
legt bolmagn til að kaupa hús-
næði. Þrátt fyrir þetta eru aðeins
áform um fjölgun leiguíbúða í
fimm sveitarfélögum í landinu,
samkvæmt sömu skýrslu.
Tæplega 2.800 manns eru á bið-
listum eftir félagslegum leigu-
íbúðum, langflestir hjá sveitar-
félögunum, eða tæplega 1.500
manns. Lengsti biðlistinn er í
Reykjavík en þar bíða 750 manns
eftir leiguíbúð, í Kópavogi eru
tæplega 160 á biðlista og í Hafnar-
firði eru með tæplega 150 manns í
bið. Reykjanesbær og Akureyri
eru með tæplega 100 manns á
biðlista hvort sveitarfélag. Á
Akranesi, í Grindavík, Árborg, á
Blönduósi og í Skagafirði eru
tugir manna á biðlista en fólk er á
biðlista í samtals 24 sveitarfélög-
um.
Aðeins í fimm sveitarfélögum
eru áform um fjölgun leiguíbúða
á þessu ári, samkvæmt greinar-
gerðinni. Þessi sveitarfélög eru
Reykjavík, Kópavogur, Hafnar-
fjörður, Seltjarnarnes og Reyk-
hólahreppur. Síðastnefnda sveitar-
félagið er aðeins með tvo á biðlista
og Seltjarnarnes með fjóra.
Reykjavíkurborg á tæplega
2.000 íbúðir, Kópavogsbær tæp-
lega 312 og Hafnarfjörður 226.
Bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi
eiga 14 íbúðir og Reykhóla hreppur
á tíu. Reykjavík hefur 100 nýjar
íbúðir í bígerð hjá Félagsbústöð-
um auk ýmissa annarra úrræða.
Hafnarfjarðarbær gerir ráð fyrir
tuttugu íbúðum en keypti fimm
eða sex á þessu ári. Lúðvík Geirs-
son bæjarstjóri segir að bærinn
hafi fundið fyrir aukinni eftir-
spurn frá því í haust.
„Það hefur ekki farið fram hjá
okkur að leigumarkaðurinn er
miklu þrengri og erfiðari og verð-
ið hefur sprungið upp úr öllu
valdi. Við finnum á fólki að það er
þröngt og erfitt og við erum að
reyna að koma til móts við þann
vanda sem er að safnast upp,“
segir hann.
Gunnar I. Birgisson, bæjar-
stjóri Kópavogs, segir að bærinn
hafi keypt 20 til 40 íbúðir á ári síð-
ustu árin og stefni að því að kaupa
minnst tuttugu á þessu ári, það
fari þó eftir verði og hugsanlega
kaupi bærinn fleiri íbúðir ef fast-
eignaverð lækki. „Vandamálið er
hvað verðið hefur verið gífurlega
hátt,“ segir hann.
ghs@frettabladid.is
Fimm sveitarfélög áforma
að fjölga leiguíbúðum
Um 2.800 manns eru á biðlistum eftir félagslegum leigubúðum á landinu öllu. Reykjavík, Kópavogur,
Hafnarfjörður, Seltjarnarnes og Reykhólahreppur ætla að fjölga leiguíbúðum á þessu ári.
ÁFORM UM FJÖLGUN Fólk er á biðlista eftir félagslegum leiguíbúðum í 24 sveitar-
félögum í landinu. Reykjavík, Hafnarfjörður og Kópavogur ætla að fjölga íbúðum á
næsta ári ásamt Seltjarnarnesi og Reykhólahreppi. Biðlistarnir eru lengstir í stærstu
sveitarfélögunum þremur. Húsið á myndinni tengist efni fréttarinnar ekki beint.
VATÍKANIÐ, AP Friður á jörðu og
mikilvægi fjölskyldunnar voru
meginefni nýársávarps Benedikts
sextánda páfa. Hann leiddi messu
í Vatíkaninu á nýársdag.
Páfinn talaði um mikilvægi
„hinnar hefðbundnu fjölskyldu“,
sem byggðist á hjónabandi karls
og konu. Þá sagði hann mannkyn-
ið í heild vera stóra fjölskyldu og
gildi fjölskyldunnar væru
nauðsynleg til þess að ná fram
friði á jörðu. Einnig sagði hann að
þolinmæði þyrfti til þess að
friður næðist og friðurinn væri
umfram allt guðdómleg gjöf. - þeb
Nýársávarp páfans:
Friðurinn er
guðdómleg gjöf
LÖGREGLUMÁL Karlmaður var
hlaupinn uppi af lögreglumanni á
Akureyri á fimmtudagskvöldið
þegar hann reyndi að stinga af
eftir að honum hafði verið gefið
stöðvunarmerki við akstur.
Ók maðurinn að húsi í bænum
og reyndi að flýjan þaðan á
hlaupum. Þetta er fjórði ökumað-
urinn á stuttum tíma sem
hlaupinn er uppi á Akureyri og
grunaður um akstur undir
áhrifum fíkniefna. - ovd
Hljóp ökumanninn uppi:
Sá fjórði sem
reynir að flýja
VEISTU SVARIÐ?