Fréttablaðið - 13.01.2008, Blaðsíða 28
HOLLT & GOTT ÞRÍR LYSTUGIR AÐALRÉTTIR
8 matur
MATARÆÐI
FYLLING:
4 meðalstórar kartöflur
(250 g)
1 lítil sæt kartafla (200 g)
2 gulrætur (150 g)
150 g spergilkál
1/2 rauð paprika
30 g bankabygg frá
Móður jörð
200 g rjómaostur
50 g enskur cheddar-
ostur
150 g ferskt spínat
2 stilkar fersk steinselja
1/4 múskathneta
salt á hnífsoddi
pipar á hnífsoddi
1 kúffull tsk. kókosolía
1 lítið vatnsglas
Skrælið sætu kartöfluna
og gulræturnar ef þarf.
Grænmetið skorið í bita,
nema spínatið. Léttsteikt í
kókosolíunni. Stráið salti
yfir. Hellið vatni á
pönnuna og bætið
rjómaosti út í. Þegar hann
hefur bráðnað, bætið við
cheddar-ostinum og
spínatinu. Rífið múskat-
hnetuna með grófu
rifjárni, klippið steinselj-
una út í og stráið pipar
yfir. Takið pönnuna af
hitanum og gerið deigið.
DEIG:
200 g gróft spelti
100 g mjúkt smjör
1/2 dl kalt vatn
salt á hnífsoddi
Setjið spelt í skál og stráið
salti yfir. Myljið smjörið
yfir og blandið varlega
saman með fingrunum.
Hellið vatninu út í og
þjappið deiginu varlega í
góða kúlu – ALLS EKKI
hnoða eða þjappa of
mikið. Stráið dálitlu spelti
á borðið, fletjið út deigið
og setjið í gott bökuform.
Ekki má gleyma að stinga
10-12 göt á botninn með
gaffli. Setjið fyllinguna í
deigið, rífið ost yfir og
bakið við 200 gráður á
yfir- og undirhita í 30 mín.
FRÖNSK DRESSING:
1 tsk. sterkt sinnep
Tæplega 1 tappi
balsamik-edik eða
rauðvínsedik
1 tsk. hunang
1/2 dl ólívuolía
Salt á hnífsoddi
Hrærið öllu vel saman
með gaffli, nema olíunni.
Bætið olíunni rólega
saman við og hrærið vel
um leið.
SALAT:
Fersk spínatblöð
Íssalat
Ristuð sólblómafræ,
furuhnetur og/eða
graskersfræ
Allt hráefnið sem Helena
notar er lífrænt. Rétturinn
UPPÁHALDS GRÆNMETISBAKAN MEÐ SALATI
Helena Stefánsdóttir, kvikmyndaleikstjóri og eigandi lífræna
kaffihússins Hljómalindar,
hefur verið grænmetisæta í
tuttugu og fimm ár.
Ayurveda-mataræðið teng-
ist tantra-jóga sem Helena
hefur stundað í sex ár. „Ég
borða ekki kjöt, fisk, egg,
lauk, hvítlauk eða sveppi og
neyti ekki áfengis. Þessar
tegundir draga úr áhrifum
hugleiðslu og hafa slæm
áhrif á mína andlegu heilsu.
Laukurinn hefur ákveðin
áhrif á miðtaugakerfið sem
fer ekki vel við andlega
ástundun á borð við jóga.
Hvítlauk nota ég hins vegar
sem lyf en ekki í mat,“ segir
Helena sem smám saman
missti áhugann á kjöti. „Þetta
var ekkert siðferðislegt á
þeim tíma en er það að vissu
leyti í dag. Þegar ég fór að
stunda jóga breyttist matar-
æðið í kjölfarið og það gerð-
ist nánast sjálfkrafa,“ segir
Helena og bætir við að fleiri
í fjölskyldunni borði eins.
„Maðurinn minn og yngsta
dóttir eru á sama mataræði.
Síðan á ég tvo unglinga sem
borða það sem þeim sýnist og
það er fullur skilningur á
því,“ segir Helena, en báðir
foreldrar hennar eru græn-
metisætur. „Ég er ekki
alin upp sem grænmetis-
æta, en ég og pabbi
erum oft með svipað-
ar pælingar og hann
er kominn á sama
fæði og ég. Mamma
er bara venjuleg græn-
metisæta,“ segir Hel-
ena sem býður lesendum upp
á dýrindis böku með salati.
„Ég bjó í Frakklandi í fimm
ár og þar lærði ég að gera
ýmsar bökur og salöt. Þær
eru í miklu uppáhaldi í fjöl-
skyldunni og eru á matseðl-
inum nokkrum sinnum í mán-
uði. Hins vegar eru oft laukur
og egg í þessum frönsku
bökum en ég sleppi því bara
og hef líka spelti í
stað hveitis,“ útskýrir Hel-
ena sem á það til að eyða
dágóðum tíma í eldhúsinu.
„Grænmetisfæði er fyrir
löngu orðið mér eðlilegt svo
ég er kannski ekki í neinni
tilraunastarfsemi. En það
kemur fyrir að ég eyði dágóð-
um tíma í eldhúsinu, þetta
fer svolítið eftir tímabilum í
lífi mínu,“ segir Helena sem
eldar ýmsa baunarétti, tófú,
grænmeti ásamt pastarétt-
um en segist þó alls ekki
vera eingöngu í holl-
ustunni. „Ég nota
langoftast lífrænt
hráefni. Samt leyfi
ég mér alveg
nammi og fransk-
ar eins og aðrir og
er langt í frá full-
komin þegar kemur
að mataræðinu,“ segir
Helena brosandi. - rh
Ayurvedískt
Bökur eru í miklu uppáhaldi á heimili Helenu þar sem gott franskt
salat tónar grænmeti og speltbotn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þórður Ólafsson smiður hefur verið grænmetis-æta í tæplega fimm ár
og er mun orkumeiri fyrir
vikið.
„Ég byrjaði að stunda jóga
og gerðist grænmetisæta í
kjölfarið. Síðan datt jógaiðk-
unin upp fyrir en síðan þá hef
ég hvorki fengið lyst á kjöti
né fiski,“ segir Þórður Ólafs-
son smiður.
Hann hefur safnað að sér
ýmsum grænmetisréttum til
að auka fjölbreytni í fæðinu
og meðal annars farið á mat-
reiðslunámskeið hjá Sollu í
Grænum kosti. „Uppistaðan í
mínu fæði er mjög fjölbreytt.
Ég borða mikið af mjólkur-
vörum auk þess sem brauð-
matur kemur líka við sögu. Í
kvöldmat elda ég til dæmis
pasta eða baunarétti, auk
þess sem mér finnst fljótlegt
og gott að fá mér grænmetis-
búrítos, eða grænmetisbuff.
Upp á síðkastið hef ég síðan
verið að elda þetta grænmetis-
lasanja sem ég bauð upp á
núna,“ útskýrir Þórður, sem
segist vera eina grænmetis-
ætan í fjölskyldunni. „Kær-
astan mín hefur neyðst til að
fara aðeins út í þetta þegar
við eldum saman. Stundum
eldar hún líka kjöt,“ segir
Þórður sem segist þó borða
steik um jólin. „Hnetusteikin
með jólameðlæti er í mestu
uppáhaldi hjá mér, en ég
borða hana samt bara til
hátíðabrigða,“ segir Þórður
sem fær oft spurningu um
hvort hann sé ekki oft slapp-
ur. Sannleikurinn sé hins
vegar allur annar. „Ég er
mun orkumeiri eftir að ég
gerðist grænmetisæta svo
það er ástæðan fyrir því að
ég er grænmetisæta auk þess
sem hún er að einhverju leyti
siðferðisleg,“ segir Þórður
og bætir við hlæjandi: „Síðan
eru nokkrir sem halda að ég
borði eingöngu grænmeti og
hafa þá spurt hvort eigi að
skutla mér á umferðareyju í
hádegismat, en sem betur fer
er mikið af góðum og hollum
mat í boði svo ég slepp við
það.“ - rh
BOÐIÐ SKUTL
á umferðareyju í hádeginu
Grænmetislasanja er gjarnan á borðum Þórðar Ólafssonar sem hefur
verið grænmetisæta síðastliðin fimm ár.
1 pakki spelt-lasanja
1 dós kókosmjólk
1 þokkalegt oststykki(einhver
bragðsterkur), magn eftir
smekk til dæmis nokkrar
ostsneiðar af venjuleg-
um osti líka.
10-12 stk. tómatar
Smá ólívuolía
2 stk. hvítlauksrif
1 búnt fersk basilíka
Salt og pipar eftir smekk
Kókosmjólk og bragðsterkur ostur
(til dæmis geitaostur) í matvinnsluvél og
hrært vel saman. Hvítlauksrifin skorin
smátt og hrært saman við olíuna,
basilíkuna, saltið og piparinn. Smá
olíu í botninn á eldföstu móti og
byrja síðan að fylla í þessari
röð:
Þunnt lag af kókosgumsinu,
síðan lasanja-plötur, og lag af
tómötum (skornir í skífur).
Dreifið smá af olíuhrærunni
með basilíkunni og byrjið upp á
nýtt. Setjið ostsneiðarnar efst.
Bakist við 200° í 25 mín., með álpappír
yfir og síðan í aðrar 7 mínútur án
SPELT-LASANJA MEÐ KÓKOSMJÓLK
Speltlasanja með
kókosmjólk.
A
A