Fréttablaðið - 13.01.2008, Page 96

Fréttablaðið - 13.01.2008, Page 96
12 matur MATARSLETTUR héðan og þaðan finnst engum aðlað- andi. Til þess að máltíðin og matarupplifun fullorðinna og barna sé góð er nauðsynlegt að hafa eldhúsið hreint. Þar á meðal ísskápinn. Einnig borg- ar sig að vera með ílát undir afganga og matvörur sem er búið að taka úr upprunalegum umbúðum eða vel innpakkað í álpappír og eða plastfilmu. Það kemur í veg fyrir að aðrar matvörur taka í sig lykt og bragð frá öðrum mat. Góður jógúrthristingur missir ein- hvernveginn sjarmann þegar hann er farinn að taka í sig bragð frá siginni ýsu síðan í gær. NAUÐSYNLEGT ER AÐ ÞVO VEL allt græn- meti áður en það fer á diskinn. Þeir sem ekki nenna að skafa og skræla gul- rætur og rófur með hníf geta nú farið í hanska og skrúbbað mold og óhrein- indi burt milli hand- anna. Kartöfluhansk- ar úr Duka í Kringlunni kosta 490 krónur. MEÐ ÞVÍ AÐ GUFU- SJÓÐA MAT hald- ast öll þau næringar- efni og vítamín í matn- um sem annars tapast út í soðvatnið. Einfalt er að setja vatn í pott og raða svo græn- meti og fiskbitum á gufusigti sem fer yfir pott- inn svo maturinn soðnar í gufunni. Byggt og búið Kringlunni 1.436 krónur. NÆRINGARFRÆÐINGAR ráðleggja fólki að borða minnst fimm skammta af ávöxtum og grænmeti á dag og með þess- um eplahníf er fljótlegt að skera niður eplið og losna við kjarnann um leið. Duka Kringlunni 2.250 krónur. 6 cl eplasafi 2 cl sítrónusír- óp Áfengislaus hefðardrykkur KOKTEILLINN HEFÐARDRYKKUR Fallegur áfengislaus fordrykkur sem hægt er að dreypa á með góðri samvisku. Glasið fyllt upp með engiferöli. Borið fram í kampavínsglasi. Mynta og epli til skrauts. Uppskriftin er frá Alexandre Pintorocha á Hótel 101 á Hverfisgötu í Reykjavík. Þegar verið er að blanda hristinga er um að gera að nota hugmyndaflugið. Notast má við frosna ávexti, grænmeti, safa, mjólkurvörur eða hrísmjólk, möndlumjólk, sojamjólk, mysuprótín, ýmsar olíur eins og hörfræolíu og kókosolíu og fleira. Í raun má blanda hverju sem er en mikilvægt er þó að huga að samsetningunni og næringarinni- haldi. Helga Mogensen hjá Manni lifandi mælir með frosnum berjum, grænum salötum og kryddjurtum og nefnir að gott sé að nota spínat í þessa drykki þar sem það er stútfullt af járni, kalki og A- og C-vítamínum. Einnig gefur hún uppskrift að mangóhristingi en mangóávöxturinn býr yfir meltingarensím- um. Hafa má drykk- ina í einfaldara lagi en þó gómsæta. Hjá eEnergía í Smáralind er boðið upp á ýmiss konar skyrdrykki og orkudrykki og fengum við tvær upp- skriftir þaðan sem allir ættu að geta útbúið. - hs HOLLT &GOTT! 1 2 3 1. Energía+ drykkurinn er fullur af orku. 2. Spínat- og mangóhristingur frá Manni Lifandi. 3. Dansari er meðal annars með melónu - og ástaraldinsskyri. UPPSKRIFTIR FRÁ GUÐNÝJU HJÁ ENERGIA Í SMÁRALIND UPPSKRIFTIR FRÁ HELGU MOGENSEN HJÁ MANNI LIFANDI SPÍNATHRISTINGUR ½ poki spínat 4 perur eða frosinn banani Smá lífrænn eplasafi Allt sett í blandara og blandað vel saman. Til að fá sætari drykk er gott að setja 1-2 döðlur saman við. Til að hafa hann örlítið grænni má setja handfylli af steinselju. Einnig má gera drykkinn matarmeiri með því að setja mysu- prótein saman við. MANGÓHRISTINGUR SEM HENTAR VEL BÖRNUM 1-2 dl möndlumjólk eða hrísmjólk Væn lúka af frosnum mangó. Blanda vel saman saman og mýkja með því að setja hálfan banana saman við. Þessi er ferskur og afar bragðgóður. ENERGIA+ : 2 stórar skeiðar jarðarberjaskyr ½ banani nokkur jarðarber ¼ magic Allt sett í blandara og hrært vel. DANSARI: 2 stórar skeiðar melónu- og ástar- aldinsskyr u.þ.b. ½ appelsína Sett í blandara og hrært vel. margt smátt HEILSA MEÐ HRISTINGI Kosturinn við heilsudrykki og hristinga er að þeir eru einfaldir, fljótlegir og sneisafullir af næringarefnum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.