Fréttablaðið - 13.01.2008, Síða 102
22 13. janúar 2008 SUNNUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
Ég vil verða
læknir!
Ég vil verða einræðisherra
yfir öllum hnettinum og
setja alla sem ekki styðja
mig í erfiðar vinnubúðir!
...bara af því að
strákurinn er með smá
metnað!
Verkfræðingur!
Annaðhvort ættu þeir að stækka
búðina eða ráða aðeins fljótara
afgreiðslufólk.
VÍTI
...svo hljóp hann yfir
engið þar til hann...
Klikk!
sturt
Klikk!
Þetta er bók, Hannes,
þú þarft ekki að setja
mig á pásu til að fara
á klósettið.
Hvað er á listanum mínum
í dag?
Snjór...!?!
Það var ekki
á listanum
mínum.
Dísöss!
Maður má hvergi
reykja nú til dags!
Kaffihús
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
4
.2
27
„Verslunarfagnámið veitti mér
tækifæri til að takast á við meira
krefjandi verkefni“
Lára Guðmundsdóttir útskrifaðist úr Verslunarfagnámi frá
Verslunarskólanum sl. vor og fékk hún verðlaun fyrir loka-
verkefnið sitt. Hún starfar nú sem verslunarstjóri.
„Verslunarfagnámið er stórkostlegt tækifæri til að efla sig
í starfi og takast á við meira krefjandi verkefni. Námið nýtist
mér mjög vel í starfi mínu sem verslunarstjóri“
segir Lára Guðmundsdóttir
Ef þú vilt efla þig sem einstakling og fagmann,
þá höfum við nám fyrir þig.
Kynningarfundur verður miðvikudaginn 16. janúar
kl. 20.00 hjá Mími-símenntun, Skeifunni 8.
Allir velkomnir.
Verslunarfagnám hefst hjá Mími-símenntun í lok janúar.
Nánari upplýsingar á www.mimir.is
MÍMIR
símenntun
Verslunarfagnám
Mímir - símenntun • Skeifunni 8 • Sími 580 1800 • www.mimir.is
Auglýsingasími
– Mest lesið
Það er alltaf gaman
að fylgjast með
skemmtilegri kosn-
ingabaráttu. Mér
hefur reyndar
aldrei fundist for-
setakosningar í
Bandaríkjunum neitt
ofboðslega áhugaverðar,
fyrr en nú. Í fyrsta skipti virðast
nefnilega vera ágætislíkur á því að
það setjist ekki miðaldra, hvítur
karlmaður í forsetastólinn í Hvíta
húsinu. Ekki svo að skilja að ég
hafi nokkuð á móti hvítum, mið-
aldra karlmönnum, en það er nú
kannski kominn tími á tilbreytingu
eftir rúm 230 ár. Það er jú heill
hellingur af fólki af öðrum kyn-
þáttum í Bandaríkjunum – svo ekki
sé minnst á það að þar er fullt af
konum! Þess vegna vona ég að ann-
aðhvort Barack Obama eða Hillary
Clinton ná kjöri. Bæði af því að þau
eru þess verðug, og líka af því að
hann yrði fyrsti svarti forsetinn og
hún fyrsti kvenforsetinn.
Bandaríkin, líkt og heimurinn
allur, eru þó greinilega enn að venj-
ast þeirri tilhugsun að kona geti
stjórnað. Fréttirnar af því að Hill-
ary Clinton hafi brostið í grát (sem
voru að vísu svolítið ýktar) fóru
eins og eldur í sinu um allt og sitt
sýndist hverjum. Ég tók eftir því
að margir, meira að segja hérna á
Íslandi, voru á þeirri skoðun að
svona lagað gengi nú ekki. Land
eins og Bandaríkin gæti sko ekki
haft þjóðhöfðingja sem grætur. Ég
sá því jafnvel fleygt í einhverjum
fréttamiðlum að hún íhugaði nú að
hætta við framboðið, vegna eins
ósigurs og brostinnar raddar.
En af hverju ætti forseti Banda-
ríkjanna ekki að geta grátið eins og
annað fólk? Nú er ég kannski ekk-
ert að tala um að það væri viðeig-
andi af þjóðhöfðingja að gráta við
hvert tækifæri sem gefst, en ósköp
þykir mér samt eðlilegt og mann-
eskjulegt að komast við í þeim
aðstæðum sem Hillary var í á þess-
um tíma. Ég get ekki séð hvernig
það ætti að hafa nokkur áhrif á
getu hennar til þess að stjórna
landinu. En þetta er þó gömul tugga
þeirra sem ekki vilja konur í áhrifa-
stöður – þær eru svo tilfinninga-
samar.
STUÐ MILLI STRÍÐA Kosningar og tilfinningasemi kvenna
ÞÓRUNN ELÍSABET BOGADÓTTIR FYLGIST MEÐ FORSETAKOSNINGUM