Fréttablaðið - 13.01.2008, Side 107
SUNNUDAGUR 13. janúar 2008 27
Dakota Blue Richards ólst upp við
sjávarsíðuna í bresku hippaborginni
Brighton hjá einstæðri móður en föð-
ur sinn hefur hún ekki hitt síðan hún
var sex ára gömul. Þar kynntist hún
fyrst ævintýraheimi Gyllta áttavit-
ans, sögum eftir verðlaunahöfundinn
Philip Pullman, en Dakota fer nú með
aðalhlutverkið í samnefndri kvik-
mynd leikstjórans Chris Weitz sem
sýnd er í íslenskum bíóhúsum. Þóra
Karítas náði tali af barnastjörnunni í
London.
„Ég hafði lesið allar bækurnar í þríleik Philip
Pullman með mömmu. Svo fórum við í
Þjóðleikhúsið í London og sáum leikhúsupp-
færslu af verkinu og ég sagði við mömmu að
mig langaði til að vera Lýra. Ég vildi ekkert
sérstaklega verða leikkona en mig langaði
bara að vera þessi stelpa,” segir hin skelegga
Dakota en draumurinn rættist þegar ráðist
var í að gera kvikmynd upp úr bókunum og
opnar prufur voru auglýstar víðs vegar um
Bretland. Dakota var valin úr hópi tíu þúsund
tólf ára stelpna.
„Vinkona mömmu vissi að mér var annt um
bækurnar og lét mömmu vita að það stæði til
að halda opnar prufur. Við þurftum að ferðast
til Cambridge í prufuna en mamma var búinn
að segja að ef það myndi rigna þennan dag þá
færum við ekki. Sem betur var engin rigning,“
segir Dakota og hlær. „Mamma sagði mér líka
að greiða ekki á mér hárið því þá yrði ég
svolítið úfin og öðruvísi en hinar stelpurnar.
Svo mætti ég þarna og þurfti að hanga í biðröð
með þúsundum stelpna úti í ísjökulkulda og ég
hugsaði með mér að ég ætti engan möguleika.
Ég hafði ekki einu sinni fengið hlutverkið sem
mig langaði til að leika í skólaleikritinu
heima.“
Elskar ævintýramyndir
Eftir að hafa farið í gegnum prufurnar hvernig
var þá upplifunin af því að eyða mörgum
mánuðum í búa til þessa risastóru mynd?
„Orð geta ekki lýst því hvernig það er að fá
að leika hlutverk sem þig hefur
alltaf dreymt um að leika. Ég
vissi ekki hvað ég átti að gera
þegar leikstjórinn hringdi í
mömmu og bauð mér
hlutverkið svo ég hoppaði
bara út um allt og öskraði.
Ég naut alls við gerð
myndarinnar því að Lýra er
svo frábær karakter eins
og allar persónurnar í
bókum Pullmans. Allt
sem hún fær að gera er
svo spennandi og
ótrúlega skemmtilegt.
Til dæmis að fara á bak
ísbirni og berjast við
alla strákana. Ég kann
líka vel við þann
eiginleika Lýru að hún
er uppreisnargjörn en
undir niðri er hún
samt mjög tryggur
vinur vina sinna og
ferðast á heimsenda
til að bjarga þeim.“
Ertu mikið fyrir að
horfa á ævintýra-
myndir?
„Ég elska ævin-
týramyndir því
þegar þú horfir á þær
upplifirðu æðisleg-
ustu, mest töfrandi
hluti sem hægt er að
hugsa sér en um leið
skelfilega og hræðilega
hluti en allt í öruggu skjóli
kvikmyndahússins.“
Fékk áritanir frá stjörnunum
Þar sem Gyllti áttavitinn er
fyrsta bíómynd Dakota liggur
beint við að spyrja hvort hún
hafi þegið ráð frá meðleikurun-
um sem eru ekki af verri
endanum en auk Dakota fara
Daniel Craig, Eva Green og
Nicole Kidman með veigamikil
hlutverk.
„Ég varð mér út um harð-
spjalds eintak af bókinni um Gyllta áttavitann
og fékk alla til að gefa mér eiginhandaráritun
síðasta daginn. Nicole skrifaði: Vertu sjálfri
þér trú, og ég held það sé mjög mikilvægt því
ef þú gerir það ekki gæti allt farið á versta
veg. Svo gáfu þau mér minn eigin gyllta
áttavita í gjöf síðasta tökudaginn.“
Nicole Kidman fer á kostum í kvikmyndinni
sem hin hörkulega fröken Coulter. Varstu
ekkert hrædd við hana?
„Ég verð að viðurkenna að ég var
hrædd til að byrja með. Hún leikur þetta
svo vel að það er mjög auðvelt að vera
hræddur við hana. Sérstaklega vegna
þess að í þeim atriðum sem hún er
sérstaklega ill þá breytist hún gjörsam-
lega þegar takan hefst. Hún svissar
bara frá því að vera Nicole sem ég
þekki í fríkið fröken Coulter. Það var
mjög ógnvekjandi sérstaklega fyrst
um sinn en svo fattaði ég bara að það
hjálpaði mér við að leika hræðsluvið-
brögð Lýru enn betur.“
Hvað kom þér á óvart við gerð
kvikmyndarinnar?
„Að þurfa að leika á móti grænum
skjá. Það var mjög erfitt því ég hafði
enga reynslu af neinu slíku áður.
Þegar þú leikur ertu vanalega að
bregðast við því sem mótleikarinn
gefur þér. Þeir segja sínar línur og
þú bregst við og segir þína línu og
þannig vinnið þið saman en þegar
þú leikur á móti grænum skjá er
ekkert til að bregðast við svo þú
verður að ímynda þér allt.“
En hvað lærðirðu og hvaða ráð myndir
þú gefa næstu leikurum sem byrja að
leika á þínum aldri?
„Ég myndi segja að maður ætti að njóta alls.
Ef þú nýtur þess ekki ættirðu ekki að vera að
gera þetta. Ef þú vilt byrja að leika verðurðu
að fara í prufur og ef þú færð höfnun þá má
ekki halda að maður sé lélegur heldur alltaf
vera ánægður með það hversu langt maður
hefur komist og vera stoltur af sjálfum sér.“
Var dauðhrædd við Nicole Kidman
RÍSANDI STJARNA Dakota Blue Richards leikur aðalhlut-
verkið í Gyllta áttavitanum sem nú er sýnd í kvikmynda-
húsum. Hún er aðeins þrettán ára en þykir sýna góða takta.
Lindsay Lohan er komin með
nýjan mann í sigtið. Ekki
er langt síðan fregnir
bárust af ástarævintýr-
um leikkonunnar á Ítalíu,
þar sem hún dvaldist yfir
áramótin, en Lohan
hefur ekki verið lengi
að leggja þau að baki.
Perezhilton.com
greinir frá því að
Lohan hafi sést með
leikaranum Adrien
Grenier í Los Angeles
í vikunni. Þau virtust
vera á rómantísku og
rólegu stefnumóti, á
Polo Lounge á Beverly
Hills-hótelinu.
„Engir papparass-
ar,“ segir heimildar-
maður síðunnar. „Þar
sem samband þeirra er
nýtt vilja þau halda því út
af fyrir sig,“ bætir hann
við. Fyrst sást til parsins
saman þegar Lindsay heim-
sótti íbúð Greniers í New
York í desember. Grenier
fer með aðalhlutverkið í
þáttaröðinni Entourage, þar
sem hann leikur leikarann
Vincent Chase. Sögusagn-
ir um samband hans og
Paris Hilton komust á
kreik síðastliðið haust,
eftir að þau sáust saman við
nokkur tækifæri. Þau vísuðu
bæði þeim sögum alfarið á
bug.
Lindsay með nýjan
mann upp á arminn
NÝR MAÐUR Lindsay Lohan
skemmti sér vel á Ítalíu yfir
áramótin, en hefur nú nýjan
mann í sigtinu.
Vince Vaughn segir í viðtali við
tímaritið Parade að hann og Jenni-
fer Aniston talist ennþá reglulega
við. „Vinátta mín og Jennifer er
svo frábær. Enn í dag tala ég mikið
og oft við hana. Ég tengist Jen á
ósvikinn, sannan hátt. Og ég met
hana mjög mikils,“ segir leikar-
inn. Hann og Aniston áttu í ástar-
sambandi eftir að þau kynntust
við tökur á myndinni The Break-
Up. Þau hættu saman í desember
árið 2006, og hafa bæði verið frek-
ar þögul um sambandið.
„Fólk sem lifir venjulegu lífi fer
á stefnumót, og stundum gengur
sambandið upp og stundum ekki.
Við fáum bara meiri athygli af því
að við erum þekkt. Ég reyni alltaf
að tala ekki um samböndin mín, og
hafa vinnuna að aðalumfjöllunar-
efni. Ég hef ekki talað mikið um
þessa hluti, því það er ekki það
sem ég vil vera þekktur fyrir,“
segir Vince.
Enn vinur Aniston
Stella McCartney eignaðist þriðja
barn sitt í síðustu viku. Hún á
fyrir tvö börn með eiginmanni
sínum, útgefandanum Alasdhair
Willis, Miller Alasdhair James,
tveggja ára, og Baily Linda
Olwyn, eins árs. Soninn sem þau
eignuðust nú á dögunum hafa
hjónin nefnt Beckett Robert Lee.
Talsmaður tískuhönnuðarins
segir að bæði móðir og barni
heilsist vel.
Stella var í vinnu nánast alla
meðgöngu sínu, og hyggst snúa
aftur til vinnu eftir nokkrar
vikur. Haust- og vetrarlína
hennar fyrir árin 2008/2009
verður sýnd á tískuvikunni í París
í næsta mánuði.
Hún er sem kunnugt er dóttir
bítilsins Sir Pauls McCartney og
Lindu Eastman heitinnar.
Þriðja barn
Stellu fætt
BECKETT KOMINN Í HEIMINN Stella
McCartney eignaðist soninn Beckett í
síðustu viku.
ÓSVIKIN TENGING
Vince Vaughn
segist enn
tengjast Jennifer
Aniston ósvikn-
um böndum og
er ennþá í miklu
sambandi við
þessa fyrrverandi
kærustu sína.
LONIER? Lohan
og Grenier
hafa umgeng-
ist hvort
annað frá því
í desember
og sáust á
rómantísku
stefnumóti í
síðustu viku.
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
3
94
28
1
/0
8
VERÐ FRÁ 67.000 KR.* Á MANN Í TVÍBÝLI
Björgvin Halldórsson, ásamt stórhljómsveit sinni og strengjasveit
Sinfóníuhljómsveitar Konunglegu óperunnar í Kaupmannahöfn, kemur fram
með mörgum af fremstu dægurlagasöngvurum og hljóðfæraleikurum Íslands
á stórtónleikum í Cirkusbygningen í Kaupmannahöfn, sumardaginn fyrsta,
24. apríl 2008.
Gestasöngvarar: Stefán Hilmarsson, Svala Björgvins, Sigga Beinteins,
Eyjólfur Kristjánsson, Regína Ósk o.fl.
Tónleikarnir verða undir borðhaldi og síðan er dansleikur til kl. 2:00 þar sem
Björgvin og hljómsveit hans, ásamt gestasöngvurum, halda uppi stuðinu.
+ Nánari upplýsingar á www.icelandair.is
*Innifalið í verði: Flug, flugvallarskattar, gisting á Hotel Du Nord og miði á tónleika og dansleik ásamt 3ja rétta kvöldverði (frá kl. 19:30 til 22:00)
í Cirkusbygningen 24. apríl. Hægt er að velja um gistingu á fleiri hótelum í Kaupmannahöfn og í allt að 4 nætur. Í boði eru flugferðir til Kaupmanna-
hafnar 23. eða 24. apríl og frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur 25., 26. eða 27. apríl. Eingöngu bókanlegt á netinu! Takmarkað sætaframboð!
Safnaðu
Vildarpunktum
Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir
ICELANDAIR Í SAMSTARFI
VIÐ WWW.KOBEN.IS KYNNA:
BO Í KÖBEN Í APRÍL 2008
UNDIR STJÓRN ÞÓRIS BALDURSSONAR