Fréttablaðið - 15.01.2008, Side 4
4 15. janúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
SPÁNN, AP Spænsk stjórnvöld
staðfestu formlega í gær að kosið
yrði til þings í landinu 9. mars
næstkomandi. Eftir sérstakan
ríkisstjórnarfund þar sem lútandi
tilskipun var samþykkt fór Jose
Luis Rodriguez Zapatero með
hana á fund konungs til staðfest-
ingar. Þar með hófst kosningabar-
átta sem þegar stefnir í að verða
naumur slagur milli flokkafylk-
inganna til hægri og vinstri.
Sitjandi ríkisstjórn Sósíalista-
flokksins vonast eftir endurkjöri
en Lýðflokkurinn, sem missti
völdin í kjölfar hryðjuverkaárás-
anna í Madríd í mars 2004, vonast
til að komast aftur til valda. - aa
Kosningar boðaðar á Spáni:
Naumur slagur
flokkafylkinga
HJÁ KONUNGI Zapatero forsætisráðherra
(t.h.) fór í gær á fund Jóhanns Karls
konungs til að fá hann til að staðfesta
tilskipun um boðun kosninga.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSTÓLAR
E-töflusmyglari áfram inni
Gæsluvarðhald yfir þýskum manni
sem tekinn var 22. desember síðast-
liðinn með 23.000 e-töflur á Kefla-
víkur flugvelli var í gær framlengt um
sex vikur, eða til 25. febrúar.
Vilja millilandaflugvöll
Ísfirðingar vilja að samgönguyfirvöld
geri Flugstoðum ohf. kleift að gera
úrbætur á flugvellinum vestra svo
hann verði millilandaflugvöllur. „Með
því móti verður Ísafjarðarflugvöllur
samkeppnishæfur við aðra flugvelli á
landinu,“ segir bæjarstjórnin.
ÍSAFJÖRÐUR
LÖGREGLUMÁL Rannsókn lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu á
máli fimm Litháa er réðust á
fjóra lögreglumenn aðfaranótt
föstudags er lokið. Málið hefur
verið sent til embættis ríkissak-
sóknara.
Lögreglumennirnir fjórir,
svokallaður götuhópur úr
fíkniefnadeild, voru við skyldu-
störf á Laugavegi þegar menn-
nirnir fimm réðust á þá. Málið
sem lögreglumennirnir voru að
vinna í var alls ótengt árásar-
mönnunum. Árásin var gróf og
þurfti að flytja alla lögreglu-
mennina á slysadeild, tvo þeirra
með sjúkrabíl. - jss
Götuhópur fíkniefnadeildar:
Árásarmál sent
til saksóknara
SKIPULAGSMÁL Húsafriðunarnefnd
ákvað í gær að beita skyndifriðun á
Laugavegi 4 og 6. Friðunin gildir í
tvær vikur.
„Þetta var gert af því að þrátt
fyrir samþykkt nefndarinnar frá
áttunda janúar síðastliðnum að
leggja til við menntamálaráðherra
að friða húsin þá héldu menn áfram
að rífa,“ segir Nikulás Úlfar Más-
son, forstöðumaður Húsafriðunar-
nefndar.
Samkvæmt samningi Reykja-
víkur borgar við eigendur Lauga-
vegar 4 og 6, Kaupang ehf., á borg-
in að vera búin að fjarlægja húsin í
síðasta lagi á föstudag. Á vegum
borgarinnar hefur Minjavernd hf.
unnið að því að taka niður viðbygg-
ingar við upphaflegu húsin.
„Reykjavíkurborg sá sig knúna
til að halda þetta samkomulag og
til að koma í veg fyrir að húsin
yrðu hreinlega horfin af lóðunum
þegar komið væri að því að mennta-
málaráðherra tæki sína ákvörðun
urðum við að beita þessu ákvæði í
lögum um skyndifriðun,“ útskýrir
Nikulás. „Reykjavíkurborg var
búin að gefa það út að hún myndi
halda áfam að rífa þar sem Húsa-
friðunarnefnd hefði ekki skyndi-
friðað en nú verður alfarið að hætta
að rífa og tæta.“
Eftir að Húsafriðunarnefnd
ákvað 8. janúar að leggja til við
menntamálaráðherra að húsin á
Laugavegi 4 og 6 yrðu friðuð var
Reykjavíkurborg og húseigendun-
um gefinn frestur til 24. janúar til
að koma að sínum sjónarmiðum
áður en tillagan verður send Þor-
gerði Katrínu Gunnarsdóttur.
„Nefndin sendir málið síðan
áfram til ráðherra, sem hefur þá
samkvæmt þessu ekki nema rétt
rúmlega helgi til að ákveða hvort
þessi hús verða friðuð eða ekki,“
segir Nikulás og vísar þar til þess
að skyndifriðunin rennur út 28.
janúar. „Vissulega fær ráðherra
dálítið ströng tímamörk em menn
verða þá væntanlega að vinna
hraðar.“
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri segir skyndifriðunina í gær í
rökréttu framhaldi af tillögu Húsa-
friðunarnefndar frá 8. janúar um
friðun húsanna. Nú verði að bíða
ákvörðunar menntamálaráðherra.
„Minjavernd mun nú ganga frá
svæðinu og ég hef óskað eftir því
að öryggisgæslufyrirtæki verði
fengið til þess að vakta húsin á
meðan þau eru á okkar ábyrgð,“
segir borgarstjóri. gar@frettabladid.is
Tveggja vikna friðun
ákveðin á Laugavegi
Húsafriðunarnefnd greip til tveggja vikna skyndifriðunar á Laugavegi 4 og 6
til að stöðva niðurrif borgaryfirvalda. Spjót standa nú á menntamálaráðherra,
sem fær fjóra daga til að taka ákvörðun um það hvort húsin skuli friðuð.
SAMGÖNGUMÁL Grímseyjarferjan
Sæfari kom til Akureyrar um
klukkan fimm í gær. Lagði hún af
stað frá Hafnarfirði seinni part
laugardags og sóttist ferðin norður
seint vegna veðurs og ofhitnunar í
legu um öxul frá vél að skrúfum.
Var því tekin sú ákvörðun að sigla
aðeins á annarri vél skipsins.
Að sögn G. Péturs Matthías-
sonar, upplýsingafulltrúa Vega-
gerðarinnar, er bilunin hluti af því
sem kom í ljós við reynslusiglingu
13. desember síðastliðinn. „Við
héldum að þetta yrði ekki vanda-
mál en þetta er greinilega eitthvað
sem menn þurfa að skoða,“ segir
G. Pétur. Hann segir að hugsan-
lega þurfi að lyfta vélinni upp og
steypa undir hana til að rétta hana
af.
Til stendur að gera lokaendur-
bætur á Sæfara hjá Slippnum á
Akureyri en Slippurinn átti lægsta
tilboð í endurbæturnar upp á
tæpar þrettán milljónir. Setja þarf
nýja innganga á skipið, kælingu í
efri lest, gámafestingar á dekk og
skipta um stál í byrðingi auk fleiri
smærri verka. Er miðað við að
verkið taki þrjár vikur svo skipið
geti fljótlega hafið reglulegar sigl-
ingar milli Grímseyjar og
Dalvíkur. Ekki er ljóst hvort bilun-
in hafi áhrif þar á.
Jón Halldór Gunnarsson er skip-
stjóri á Sæfara og hafði G. Pétur
eftir honum að skipið reyndist
betur á sjó nú en þegar Jón sigldi
því frá Írlandi. - ovd
Grímseyjarferjan Sæfari komin norður til Akureyrar í lokaendurbætur:
Bilun og veður töfðu Sæfara
GRÍMSEYJARFERJAN SÆFARI Hugsanlega
þarf að lyfta vélinni.
FLUG Flugi Icelandair og Iceland
Express seinkaði lítillega í gær
vegna veðurs. Seinkanir voru þó
ekki verulegar; mest um tvær
klukkustundir á flugi til Lundúna.
„Það eru einhverjar seinkanir
en ekki neinar að ráði,“ segir
Matthías Imsland, framkvæmda-
stjóri Iceland Express, sem telur
farþega sýna seinkunum skilning.
„Þetta truflar okkur mjög lítið
núna.“
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, segir flugi
hafa seinkað lítillega í gærmorg-
un. „Þetta er kannski um klukku-
tíma seinkun.“ Hann bjóst ekki
við neinum stórtöfum. - ovd
Tafir á Keflavíkurflugvelli:
Tafir á flugi
vegna veðurs
! #
$
%
&
& '
# (! %'
)
#
$
*+, -+, .+, /+,
01
/+, 23+, 22+, 22+, 4+, 4+, 01
.+,5 01
4+,
01
2*+,5 01
2/+, 67+, 01
!"#$%#&" %
$ '()*
" ))#* #
$)& *# +%+#)
+*)&, "%#!
)% **%
!-+ ' ))
* # )./!"*
+0 *) *# $*+
# "&)!"##
*)"*)+
1* +%# ))'
2* )./ * %!"
#)#),# 3%
1/ *0) %$-&#
" ))" *#
+) '
4
56
5
7 8
9#*)"%
*)3:;'
9)./!"*)<+*&
$ *')++'
89
:
;"
-<23=
"9
:
;"
9# # =') ")3
*# & ,)#
>
>
>
? : LAUGAVEGUR 4 OG 6 Vinna við
niðurrif húsanna stöðvaðist í gær í
kjölfar ákvörðunar um skyndifriðun.
Öryggisgæsla verður sett á við húsin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
NOREGUR Hinn hálfsextugi
Norðmaður sem í síðustu viku var
handtekinn grunaður um að vera
„vasamaðurinn“ svonefndi, sem
sakaður er um kynferðisbrot
gegn fjölda barna á síðustu
áratugum, var á tíunda áratugn-
um á launaskrá barnaverndar-
yfirvalda í Björgvin.
Bergens Tidende hefur eftir
fyrrverandi formanni aksturs-
íþróttaklúbbs að maðurinn hafi
um nokkurt skeið verið einn af
þeim sem reglulega önnuðust
börn sem stuðningsaðilar á
vegum barnaverndaryfirvalda í
borginni. Maðurinn hafi þá verið
aðstoðarþjálfari í klúbbnum. - aa
Barnaníðingur í Noregi:
„Vasamaður“ í
barnavernd
Þorbjörn bjargar fiskunum
Björgunarsveitarmenn úr Þorbirni í
Grindavík komu í veg fyrir tugmilljóna
tjón í fiskeldisstöð Íslandsbleikju utan
við Grindavík í gær þegar þeir drógu
flutningabíla með súrefni fyrir stöðina
í gegnum ófærðina. Ekki mátti tæpara
standa því birgðir voru að klárast.
GRINDAVÍK
GENGIÐ 14.1.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
124,2274
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
63,59 63,89
124,72 125,32
94,64 95,16
12,709 12,783
12,084 12,156
10,048 10,106
0,5899 0,5933
101,07 101,67
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR