Fréttablaðið - 29.01.2008, Blaðsíða 12
12 29. janúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Svona erum við
fréttir og fróðleikur
FRÉTTASKÝRING
GUÐSTEINN BJARNASON
gudsteinn@frettabladid.is
Stjórn Félags ungra lækna (FUL)
sendi frá sér yfirlýsingu fyrir helgi
þar sem hún fordæmir þá ákvörðun
sviðsstjóra slysa- og bráðasviðs að
taka lækni af neyðarbílum.
Ragnar Freyr Ingvarsson er formaður
FUL.
Er tíma bráðalækna ekki betur
varið með nýja fyrirkomulaginu?
Nei, alls ekki. Tíma bráðalækna er
best varið þar sem sjúklingurinn
er veikastur, hvort sem það er inni
á sjúkrahúsinu, við sjúkrabeð í
heimahúsi eða á slysstað. Með nýja
fyrirkomulaginu er ekki bara verið
að fjarlægja lækninn frá sjúkrabeðn-
um heldur er líka verið að skerða
þjónustuna innan deildarinnar þar
sem ekki er verið að bæta mönnun
þar heldur.
Vita stjórnendur ekki betur hvað
hentar hverju sinni?
Stjórnendur eru oft vel til þess fallnir
að taka ákvarðanir en stundum hafa
þeir á gólfinu líka innsýn í málin.
Ég held að bestu ákvarðanirnar séu
teknar þegar hlustað er á flest sjónar-
mið. Borið saman við önnur lönd þá
er alls staðar verið að færa lækninn
nær sjúklingnum en ekki verið að
gera eins og hér á Íslandi, að lengja
þann tíma að læknirinn komist til
þeirra bráðveiku.
SPURT & SVARAÐ
BRÁÐALÆKNAR AF NEYÐARBÍLUM
Þjónustan
skert
RAGNAR FREYR INGVARSSON
Formaður Félags ungra lækna.
Fjölmargir Indónesíubúar
syrgðu heitt og innilega
þegar Suharto, fyrrverandi
einræðisherra landsins,
var borinn til grafar í gær.
Andstæðingar hans segja
dauðann hafa forðað honum
frá réttvísinni.
Suharto, sem að indónesískum
sið gekk aðeins undir þessu eina
nafni, hefur aldrei þurft að svara
til saka fyrir þau víðtæku mann-
réttindabrot og stórfellda fjár-
málaspillingu sem hann er sagð-
ur hafa stundað á þrjátíu og
tveggja ára valdaferli sínum.
Stór hluti landsmanna vill
fyrirgefa honum voðaverkin og
fjármálaspillinguna. Þessi hluti
íbúanna lítur á Suharto sem þjóð-
hetju. Hann hafi í raun reist
Indónesíu upp úr öskustó, byggt
upp nýtt þjóðfélag og komið
efnahag landsins á flug.
„Hann var mikilmenni,“ hafði
AP fréttastofan til dæmis eftir
Sumartini, 65 ára gamalli konu
sem fylgdist með útför hans í
gær. „Hann snerti djúpt við
okkur.“
„Megi guð viðurkenna afrek
hans og fyrirgefa syndir hans,“
sagði Susilo Bambang Yudhoy-
ono, forseti Indónesíu, í ræðu
sem hann flutti í gær við útför
Suhartos. „Við höfum misst einn
af bestu sonum Indónesíu.“
Mannréttindabrot og spilling
Suharto rændi völdum á Indón-
esíu árið 1965, hóf þegar í stað
herferð gegn kommúnistum og
er sagður hafa látið drepa meira
en hálfa milljón manna í þeim
blóðugu aðgerðum.
Hann er einnig sakaður um að
hafa látið drepa eða handtaka
hundruð þúsunda manna á
stjórnartíð sinni næstu þrjá ára-
tugina eftir valda ránið. Her-
menn hans eru auk þess taldir
hafa drepið um 300 þúsund
manns í aðgerðum gegn sjálf-
stæðishreyfingum á Papúa, Aceh
og Austur-Tímor.
Fyrir utan þessi grimmdar-
verk er Suharto sakaður um að
hafa dregið til sín fé frá ríkinu í
stórum stíl á valdatíma sínum,
og fjölskyldumeðlimir hans eru
einnig sakaðir um að hafa óspart
nælt sér í fé úr ríkissjóðnum.
Slapp við réttarhöld
Dómstólar á Indónesíu vildu þó
aldrei draga hann til ábyrgðar,
hvorki fyrir mannréttindabrotin
né spillinguna, á þeim forsendum
að hann hafi ekki heilsu til að
standa í réttarhöldum. Heilablóð-
föllin hafa valdið því að hann
hefur síðustu árin átt erfitt með
tal og varanlegar heilaskemmdir
hafa dregið úr andlegri getu
hans.
Suharto varð 86 ára síðasta
sumar og hafði lengi átt við heilsu-
brest að stríða. Eftir að hann
hrökklaðist frá völdum árið 1998
fékk hann nokkrum sinnum heila-
blóðfall. Hann veiktist illa árið
2006 og lá þá fjórar vikur á sjúkra-
húsi með innvortis blæðingar.
Hinn 4. janúar síðastliðinn var
hann svo enn á ný lagður inn á
sjúkrahús og lá þar lengi þungt
haldinn þar til hann lést á sunnu-
daginn.
Deilt um fyrirgefningu
Strax og Suharto veiktist nú síð-
ast hófust heiftarlegar umræður
um arfleifð hans. Margir urðu til
þess að biðja fólk um að fyrir-
gefa honum. Meira að segja leið-
togar á Austur-Tímor, sem ára-
tugum saman máttu þola kúgun
Indónesíuhers, sögðu að íbúar
Austur-Tímors ættu að fyrirgefa
Suharto áður en hann félli frá.
Öðrum finnst hins vegar
fráleitt að fyrirgefa nokkurn
skapaðan hlut. Þeir vilja að
herforingjar, hermenn og sam-
starfsmenn Suhartos í stjórn-
málum verði í það minnsta
dregnir til ábyrgðar fyrir verk
sín, þótt Suharto sjálfur sé nú
fallinn frá.
„Ég skil ekki hvers vegna ég
ætti að fyrirgefa honum vegna
þess að hann hefur aldrei viður-
kennt mistök sín,“ hefur AP eftir
Putu Oka Sukanta, sem sat í ára-
tug í fangelsi fyrir skoðanir
sínar
Umdeild arfleifð einræðisherra
Tugþúsundir Gaza-búa hafa undanfarna daga
streymt til Egyptalands yfir landamærin eftir að
veggur sem aðskildi svæðin var sprengdur í
síðustu viku.
Hvað er Gaza-ströndin?
Gaza-ströndin er 360 ferkílómetra land-
svæði meðfram Miðjarðarhafinu. Gaza-
ströndin er 41 kílómetri að lengd og á milli
sex og tólf kílómetrar á breidd. Landsvæð-
ið liggur að Egyptalandi til suðvesturs og
að Ísrael til norðurs og austurs. Nafnið er
dregið af stærstu borginni, Gaza-borg, þar
sem 1,4 milljónir manns búa.
Hver er saga Gaza-strandarinnar?
Saga Gaza-strandarinnar er róstusöm og markast af
tíðum breytingum á því hver fór með yfirráð á svæðinu.
Landsvæðið sem tilheyrir Gaza-ströndinni í dag er afurð vopna-
hléssamninganna árið 1949 milli Egyptalands og
Ísraels. Hernám Egyptalands á Gaza-ströndinni
varði frá 1949 til 1967 með stuttu hléi í Súes-
deilunni 1956. Árið 1967 hertók Ísrael Gaza-
ströndina í sex daga stríðinu. Það hernám varði
til ársins 2005.
Hver fer með stjórn á Gaza-ströndinni?
Í Oslóarsamkomulaginu árið 1994 milli
Ísraels og Palestínu var kveðið á um að stjórn
á Gaza-ströndinni utan nokkurra svæða
Ísraelsmanna myndi færast smám saman
undir palestínsku heimastjórnina. Árið
2005 ákváðu ísraelsk stjórnvöld einhliða
að draga sig frá Gaza-ströndinni og lýstu
yfir að hernámið væri formlega á enda.
Ísraelar eru þó enn við stjórnvölinn í
ýmsum málefnum svæðisins á borð við
loft- og landhelgi og inn- og útflutning.
FBL-GREINING: GAZA-STRÖNDIN
Róstusöm saga og síbreytileg yfirráð> Fjöldi nemenda skráðir í framhaldsskóla og háskóla árið 2007.
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
Háskóli
Framhaldsskóli
28.340
17.728
SUHARTO BORINN TIL GRAFAR Tugir þúsunda í gær fylgdust með því þegar einræðisherrann fyrrverandi var lagður til hinstu hvílu
í grafhýsi fjölskyldu sinnar skammt frá bænum Solo þar sem hann ólst upp. NORDICPHOTOS/AFP
© GRAPHIC NEWS
■ 8. júní 1921: Fæddur á Jövu.
■ 1940: Gengur í herinn. Verður
síðar háttsettur herforingi hjá
Sukarno, fyrsta forseta Indónesíu.
■ 1965: Rænir völdum í hernum
eftir að hafa brotið á bak aftur
uppreisnartilraun vinstrisinnaðra
herforingja. Stjórnar blóðugum
hreinsunum gegn kommúnistum.
■ 1967: Tekur við af Sukarno sem forseti.
■ 1970-1990: Nútímavæðing bætir
lífskjör, en pólitískt andóf er harðlega
barið niður.
■ 1975: Indónesía hertekur Austur-Tímor.
■ 1990 og næstu ár á eftir: Efnahagslífið
versnar í kjölfar fjármálakreppu í Asíu.
■ 1998: Verðhækkanir og fjöldamótmæli verða til
þess að Suharto neyðist til að segja af sér.
■ 2000: Sakaður um að draga sér fé úr rík-
issjóði, samtals 571 milljón dala,
en dómari úrskurðar að hann
hafi ekki heilsu til að gangast
undir réttarhöld.
■ 2007: Aðalsaksóknari Indónesíu
lýkur undirbúningi að höfðun
einkamáls gegn Suharto fyrir
stórfelldan fjárdrátt úr ríkissjóði.
■ 27. janúar 2008: Suharto lést
eftir nokkurra vikna legu á
sjúkrahúsi.
Ferill einræðisherra
INDÓNESÍA
AUSTUR-TÍMOR
Mynd: Getty
Java
Jakarta
400 km