Fréttablaðið - 29.01.2008, Blaðsíða 38
22 29. janúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
Britney Spears og Rihanna voru stjörnur kvölds-
ins á NRJ-tónlistarverðlaunahátíðinni síðastliðinn
laugardag, en hátíðin er ein frægasta
tónlistarhátíð Frakka. Verðlaunin fyrir
plötu ársins féllu í skaut Britney, sem
kom þar með mörgum á óvart og
skaut Rihönnu og Amy Winehouse ref
fyrir rass, en þær hafa báðar verið
ansi aðsópsmiklar á nýafstöðnum
verðlaunahátíðum. Britney sendi
nýlega frá sér plötuna Blackout, sem
hlaut misjafnar viðtökur.
Rihanna fór þó heim með verðlaunin
fyrir alþjóðlegt lag ársins, fyrir hið
dansvæna Don’t Stop the Music.
Justin Timberlake var valinn
alþjóðlegur tónlistamaður ársins,
en Avril Lavigne hlaut sambæri-
leg verðlaun sem tónlistarkona
ársins. Hinn líbanski Mika var
svo valinn alþjóðleg opinberun
ársins, en hann hefur ekki
heldur farið tómhentur heim af
verðlaunahátíðum síðustu
mánaða.
Tónlistarmennirnir
Michael Jackson, Celine
Dion og Kylie Minogue
voru öll heiðruð á
verðlaunahátíðinni,
fyrir framlag sitt
til tónlistar-
innar.
LAG ÁRSINS Rihanna fékk
verðlaun fyrir lag ársins
sem í þetta skiptið var
ekki hið margspilaða
Umbrella heldur
Don‘t Stop the Music.
BRITNEY OG BLACKOUT Britney Spears
skaut bæði Rihönnu og Amy Winehouse
ref fyrir rass og hreppti verðlaunin fyrir
plötu ársins á NRJ-verðlaunahátíðinni.
> Á ALLRA VÖRUM
Varir Angelinu Jolie tróna efst á
lista yfir þá líkamshluta fræga
fólksins sem fólk nefnir oftast
til viðmiðunar fyrir lýta aðgerðir.
Augu Katie Holmes og lík-
ami Jessicu Biel fylgja
fast á hæla vörunum,
vinsælasta nefið er það
sem stjarnan Kather-
ine Heigl í Grey’s Ana-
tomy skartar, en Keira
Knightley hefur vinning-
inn með kinnunum.
Hayden Panettiere er annt um
fleira en hunda, því hún hefur látið
að sér kveða hjá góðgerðasamtök-
unum Save the Whales Again. Nú
rær hún á ný mið og hyggst selja
föt úr eigin klæðaskáp til styrktar
málefninu. Á panettierecloset.
com má því kaupa klæðin utan af
leikkonunni, en á meðal þeirra eru
föt sem hún hefur klæðst á hinum
ýmsu verðlaunahátíðum.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Gamanmyndin Meet the
Spartans, sem gerir óspart grín
að hasarmyndinni 300, fór beint
á toppinn aðsóknarlistanum
vestanhafs um síðustu helgi.
Skammt undan var fjórða
Rambó-myndin með Sylvester
Stallone í aðalhlutverki.
Í þriðja sæti var rómantíska
gamanmyndin 27 Dresses og í
því fjórða var skrímslamyndin
Cloverfield, sem féll þar með úr
efsta sætinu.
Auk myndarinnar 300 gerir
Meet the Spartans grín að
stjörnum á borð við Britney
Spears og Paris Hilton.
Spörtugrín
á toppnum
Britney sigursæl á NRJ-hátíð
Móðir Amy Winehouse er
viss um að dóttir hennar sé
á sömu braut og Britney
Spears, og segist þegar vera
farin að undirbúa sig undir
fregnir af andláti Amy.
Söngkonan skráði sig í með-
ferð fyrir helgi, eftir að
myndir af henni við fíkni-
efnaneyslu skutu upp koll-
inum. Janis Winehouse,
móðir hennar, óttast að það
sé þegar of seint.
„Ég hef vitað í langan
tíma að dóttir mín á við
vandamál að stríða. En að
sjá það á skjánum gerði það
raunverulegt. Ég geri mér
grein fyrir því að dóttir mín
gæti verið dáin áður en árið
er úti. Við erum að fylgjast
með henni drepa sig hægt
og rólega,“ segir Janis í við-
tali við breska blaðið Sun day
Mirror. „Ég hef þegar sætt
mig við dauða hennar. Ég
hef verið að herða mig upp í
að spyrja hana hvar hún
vilji láta jarða sig, í hvaða
kirkjugarði.
Hún bauð mér á Grammy-
verðlaunahátíðina í næsta
mánuði, en hluti af mér
heldur að hún verði ekki á
lífi þá. Ég horfi til Heath
Ledgers og Britneyjar. Hún
er á sömu leið. Þetta er eins
og að horfa á bílslys, að
horfa á manneskju kasta
öllum þessum hæfileikum á
glæ,“ segir Janis.
Amy á sömu leið og Britney
KASTAR HÆFILEIKUM Á GLÆ
Móðir Amy Winehouse líkir því
við bílslys að fylgjast með dóttur
sinni kasta hæfileikum sínum
á glæ, og býst við fregnum að
andláti hennar á næstunni.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY
Veðurstofa Íslands spáir
miklu frosti um helgina en
þá gætu tölur á borð við 15
stiga frost sést á hitamæl-
unum í höfuðborginni. Níu-
tíu ár eru liðin frá frosta-
vetrinum mikla sem virðist
ætla að fagna afmælinu
sínu með viðeigandi hætti.
„Það kemur alltaf smá fiðringur
og þótt ég tali nú ekki fyrir hönd
okkar allra þá þykir mörgum
veðurfræðingum þetta spenn-
andi tímar þegar eitthvað er að
gerast í veðrinu,“ segir Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur
en Veðurstofa Íslands spáir miklu
kuldakasti á næstu dögum. Þetta
kalda loft sem nú er í kortunum
hefur verið á leiðinni í heila viku
og margur veðurfræðingurinn
bíður spenntur eftir því hvort
einhver kuldamet falli.
Á föstudag eða laugardag gæti
hitastigið farið niður í fimmtán
stig og það gæti orðið ansi kulda-
legt um helgina einkum ef vind
fer að hreyfa eitthvað. „Síðast
gerðist það, að frost varð svona
mikið, 19. nóvember 2004 en það
er fremur fátítt að frostið fari
yfir fimmtán stig. Telst eiginlega
til viðburða ef slíkt gerist í
höfuðborginni,“ segir Einar og
bætir því við að árið 1981 hafi
einnig verið mjög kalt í höfuð-
borginni á þessum tíma. „En
svona kuldi var alls ekki óalgeng-
ur á hafísárunum, á sjötta og sjö-
unda áratugnum, því þá gat frost-
ið farið niður í tæp tuttugu stig,“
bætir Einar við.
„Öll okkar kerfi eiga að vera
undir svona kuldakast búin,“
segir Eiríkur Hjálmarsson, upp-
lýsingafulltrúi Orkuveitunnar,
aðspurður hvort ekki þurfi að
grípa til einhverra ráðstafana
vegna kuldans. „Hins vegar er
því ekki að neita að í svona kulda-
köstum þá hækka auðvitað allar
notkunartölur,“ bætir Eiríkur við
en tekur jafnframt fram að heita
vatnið hafi lækkað mikið síðustu
ár þannig að ekki er um nein upp-
grip að ræða. „En auðvitað eykst
neyslan,“ segir Eiríkur en bætir
því við að fólk geti náttúrlega
haldið kostnaðinum í lágmarki
með skynsamlegri hegðun.
Sigurður Þ. Ragnarsson veður-
fræðingur segir að við séum að
sigla inn í mikið frost en bendir
einnig á að vindhraðinn geti ráðið
miklu um hversu mikið við finn-
um fyrir kuldanum. „Það sem er
hins vegar merkilegt er að þetta
virðist dreifast nokkuð jafnt yfir
landið,“ segir Sigurður sem bjóst
alveg eins við því að einhver met
gætu fallið í þessum kafla þótt
það væri heldur ólíklegt að slíkt
gerðist á höfuðborgarsvæðinu.
„Þegar frostaveturinn mikli var
árið 1918 fór frostið niður í 24 og
hálfa gráðu og það verður að
öllum líkindum ekki slegið,“ segir
Sigurður. freyrgigja@frettabladid.is
OR græðir á kuldakasti
SPENNTIR VEÐURFRÆÐINGAR Einar
Sveinbjörnsson segir að veðurfræðingar
bíði spenntir eftir kalda loftinu.
KANNSKI MET Sigurður segir að kannski
eigi einhver kuldamet eftir að falla um
helgina.
SKYNSAMLEG HEGÐUN Eiríkur segir
að fólk geti haldið kostnaðinum niðri í
slíkum kuldaköstum með skynsamlegri
hegðun.
Ískalt íslenskt vatn
- hvenær sem er
GE kæliskáparnir eru öflugir,
endingargóðir og glæsilega innréttaðir
Verð frá:
Kr. 209.790 stgr.
AFSLÁTTUR
30%