Fréttablaðið - 29.01.2008, Síða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er þriðjudagurinn
29. janúar, 29. dagur ársins.
10.22 13.40 17.00
10.18 13.25 16.34
Góður félagi minn varð fyrir því óláni að sonur hans á tán-
ingsaldri hafði komist í skuld við
nokkra jafnaldra sína. Eitt kvöldið
var bankað upp á hjá honum með
miklu brambolti og þegar hann
kom til dyra sá hann unga og reiða
pilta sem sögðust vera komnir til
að innheimta skuld. Áður en félagi
minn gat svarað voru þeir búnir
að hóta honum dauða, að rispa bíl-
inn hans, nauðga konunni hans og
drepa köttinn hans. „Já, en hvers
vegna hringduð þið bara ekki á
undan ykkur og gáfuð mér reikn-
ingsnúmerið ykkar?“ varð félaga
mínum þá að orði. Við hótanirnar
hafði hann pirrast ögn og langaði
lítið til að gera litlu pörupiltunum
til geðs og með seiglunni tókst
honum að losna við þessi illa upp-
öldu krakkakvikindi.
„VIÐ innheimtu skal hóta skuldu-
naut, fjölskyldu hans, gæludýrum
og öðrum ættmennum lífláti við
fyrstu kynni. Slíkt skapar ótta sem
reynst getur árangursríkt við
hreyfingar og stöðu á viðskipta-
reikningi skuldarans. Hafa ber í
huga að almennt virkar vel að nota
frasa úr þekktum bíómyndum,
munið þó að setningar úr evrópsk-
um kvikmyndum virka mun verr
þar sem dreifing þeirra er ekki
jafn víðtæk og gerist með hinar
fyrrnefndu og því ólíklegra að sá
skuldugi þekki til efnisins. Setning
á borð við: „Ég skal bora í gegnum
fokking hnéskelina á þér ef þú
borgar ekki,“ hefur reynst mörg-
um gagnleg en þykir í seinni tíð
heldur ofnotuð.“ Einhver veginn
svona hlýtur Handbók handrukk-
arans að hljóma. Að minnsta kosti
virðast þeir allir vitna í sama plagg
ef marka má frásagnir þeirra sem
lent hafa í þessum fávitum.
HEFUR þessu fólki, sem vill fá að
tilheyra hópi handrukkara, aldrei
nokkur tímann komið í hug að væn-
legra geti verið að hringja heim til
skuldara eða ættingja hans og gefa
upp reikningsnúmerið? Sjálfsagt
upplifa krakkagreyin sig ekki jafn
merkileg við slíkar aðfarir auk þess
sem ómögulegt er að samsama sig
einhverjum flottum kóna úr glæpa-
mynd ef maður talar á fremur kurt-
eislegum nótum. Ég held þó svei
mér þá að handrukkarar Íslands
verði að fara að uppfæra handbók-
ina sína, það eru allir komnir með
leið á frösunum úr henni. Tökum
Matthías Halldórsson aðstoðar-
landlækni til fyrirmyndar og tökum
hæfilegt mark á þessum kjánum,
eins og hann kallar lyfjafíklana
sem hafa hótað honum og fjöl-
skyldu hans lífláti eftir að þeir hafa
lent í lyfseðlaskorti. Hver er svo
alltaf með borvél við höndina?
Handbók
handrukkarans