Tíminn - 18.09.1981, Qupperneq 3
Föstudagur 18. september 1981
3
Fullyrðingar gegn fullyrðingum i sambandi við trúnaðarbrot
á fréttastofu útvarpsins:
„frAleitt að þetta
SÉ FRA MÉR KOMIД
— segir Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins
■ Kjartan Jóhannsson.
■ „Þetta samtal var ekki tekið
upp á segulband hjá mér og það
er fráleitt að gefa i skyn að þessi
leki, eða hvað við eigum að kalla
það, sé frá mér kominn”, sagði
Kjartan Jóhannsson, formaður
Alþýðuflokksins, i viðtali við
Timann í gærkvöldi, þegar borin
var undir hann sú ábending, sem
kemur fram i viðtali við Vilmund
Gylfason hér á siðunni, að tveir
endar séu á hverju simtali.
,,Ég hef nú ekki gert stórar
rispur út af þessu máli”. sagði
Kjartan ennfremur, „enda tel ég
mig ekki hafa sagt neina hættu-
lega hluti i þessu samtali við
fréttamanninn. Hins vegar lit ég
svo á að um trúnaðarbrot hafi
verið að ræða, þvi bæði var aö
mér var ekki skýrt frá þvi að
samtalið væri tekið upp á segul-
band, og svo var tekið fram að
það væri trúnaðarsamtal, þannig
að það er trúnaöarbrot að leika
segulbandsspóluna fyrir aðra
starfsmenn útvarpsins.”
HV
MtÖC
Það er jafngott aö loðnunæturnar séu í lagi svo þaö litla sem vciðist sleppi ekki út. Tfmamynd: EUa
Vidræður Arnar-
flugs og Iscargo
haf nar á ný
■ ,,Það eru hafnar að nýju við-
ræður milli Arnarflugs og
Iscargo, um hugsanlegt samstarf
flugfélaganna, en samsvarandi
viðræður áttu sér stað fyrr i
sumar,án þessað árangur yrði af
þeim. Einn af þeim möguleikum,
sem ræddir hafa verið, er sá að
Arnarflug kaupi meirihluta i
Iscargo, en hver niðurstaðan um
það verður eða hvort yfirleitt
nokkuð kemur út úr þessum við-
ræðum, veit ég ekki,” sagði
Gunnar Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs, i
viðtali við Tímann i gær.
„Viðræðurnar hófust að nýju i
gær (miðvikudag)”, sagði
Gunnar ennfremur, þannig að
það er mjög erfitt aö átta sig á
þessu enn. Felögin eiga ýmissa
sameiginlegra hagsmuna að
gæta, en hagsmunaárekstrar eru
einnig fyrir hendi, þannig að
jietta er mjög laust i reipum
enn.”
—HV
Áætlunarflugi Arnarflugs á Tálknafjörð
hafnað af samgönguráðuneytinu:
,Olli miklum vonbrigðum’
— segir Gunnar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri
Arnarflugs
??Ekki skýrt á
annan hátt en
að átt haf i sér
stað innbrot”
segir Gunnar Kvaranffréttamaður
■ „Þá gerist þaö að inn á frétta-
stofu útvarpsms kemur Vilmund-
ur Gylfason, alþingismaður, og
segir þar i votta viðurvist að hann
hafi haft undir höndum segul-
bandsspólu af samtali minu við
Kjartan Jóhannsson, þar sem hin
tilvitnuðu ummæli sé að finna. 1
framhaldi af þessum ummælum
þingmannsins lét ég þess getiö i
skýrslu minni til útvarpsstjóra,
að slikt verði ekki skýrt á annan
hátt en að átt hafi sér stað innbrot
i fréttastofu útvarpsins, þvi gögn
min um samtalið við Kjartan Jó-;
hannsson, þar á meðal segul-
bandsupptaka, voru geymd i
skrifborðsskúfíu minni á irétta-
stofunni. Það hvernig Vilmundur
telur sig geta hal't vitneskju um
samtal okkar Kjartans Jóhanns-
sonar, hvað þá segulbandsupp-
töku af þessu samtali, getur hann
einn skýrt. Mér og öðrum frétta-
mönnum á íréttastoíu útvarpsins
er það með öllu óskiljanlegt”,
segir i greinargerð, sem Gunnar
E. Kvaran, fréttamaður hjá út-
varpinu, sendi frá sér i gær,
vegna skrifa þeirra, sem oröiö
hafa i blöðum um meint trún-
aðarbrot á fréttastoíu útvarps, i
tengslum viö Alþýðublaðsdeiluna
svonefndu.
Sem komið heíur fram hélt Vil-
mundur Gylfason þvi l'ram að i
samtali viö Gunnar Kvaran heíði
Kjartan Jóhannsson látiö þau orö
fallaaðdeilan milli Vilmundar og
Alþýðuflokksins, vegna Alþýðu-
blaðsins, væri ekki stjórnmálaleg
deila, heldur „mannlegur harm-
leikur.”
1 greinargerö sinni rekur
Gunnar siðan málið, en segir i
lokin:
„Það nýjasta er að nú hefur al-
þingismaðurinn lýst þvi yfir að
„vitneskja hans” um samtalið við
Kjartan Jóhannsson sé ekki kom-
in frá neinum starfsmanni
Fréttastofunnar. Samkvæmt
þessu ætti þvi ekki að vera um
neitt trúnaðarbrot hjá starfs-
mönnum íréttastolu að ræða.”
HV
„Er ekki þjófur”
— segir Vilmundur Gylfason,
alþingismadur
■ „Það er rangt eltir mér haft,
að ég hafi sagst hala haft undir
höndum segulbandsspólu með
þessu viðtali viö Kjartan Jó-
hannsson, ég sagöist haía heyrt
það af segulbandi. Á þvi er stór
munur, enda er ég ekki þjófur”,
sagði Vilmundur Gylíason, al-
þingismaður, i viötali við Timann
i gær.
„Svo vil ég lika spyrja”, sagði
Vilmundur ennfremur, „hver það
er sem segir að sú segulbands-
spóla hafi verið komin frá frétta-
stofu útvarps. Þaö eru tveir endar
á hverju simtali. Ef útvarpsráð
ætlaraðnota þetta mál til þess að
vera með dylgjur um íréttamenn
útvarps, hlýt ég aö risa þeim til
varnar. Ég tel margt af þessu
starfsfólki fréttastofunnar
reynslulitla krakka og jafnvel
menntunarsnauða, en ég hef
engan áhuga á þvi aö þau séu höfð
íyrir rangri sök.”
HV
■ ,,Það olli okkur miklum von-
brigðum, að fá ekki heimild til
þessa flugs, enda hefur flug á
þennan völl gengið mjög vel hjá
okkur nú undanfarið, farþegum
farið fjölgandi, og þar að auki
hafði hreppsnefnd Tálknaf jarðar-
hrepps mikinn hug á að þoka
þessu máli áfram”, sagði Gunnar
Þorvaldsson, framkvæmdastjóri
Arnarflugs, i viðtali við Timann i
gær, en samgönguráðuneytið
hefur nú hafnað beiðni Arnarflugs
um heimild til reglubundins áætl-
unarflugs til Tálknafjarðar.
Ráðuneytið hafnaöi beiðninni að
fenginni umsögn flugráðs, sem
taldi sig ekki geta mælt með já-
kvæðri afgreiðslu hennar.
Amarflug hefur flogið reglu-
bundið á Tálknafjörð i sumar.
eftir að Bildudalsflugvöllur lok-
aðist vegna umbóta þar, en fé-
lagið hefur um nokkurt skeið haft
hann á áætlun sinni. Var ætlun fé-
lagsins, þegar Bíldudalsflugvöll-
ur verður opnaður aö nýju, að
þjóna Tálknafirði áfram.
Leifur Magnússon, sem sæti á i
flugráði, sagði i viðtali við Tim-
ann i gær, aö ýmsar ástæður lægu
því til grundvallar að ráðið lagö-
ist gegn þvi að heimildin yrði
veitt. Flugbrautin á Tálknafirði
væri léleg og öryggismálum þar
mjög áfátt. Svo væri að visu einn-
ig um marga þá flugvelli sem i
dag eru nýttir i áætlanaflugi hér-
lendis, en einmitt vegna þess hve
seint gengur að fá fjármagn til að
gera nauösynlegar úrbætur á
þeim hefði ráðið talið óráðlegt að
bæta við enn einum.
„Eimskip hefur fengid
Berglindi að veru-
legum hluta bætta”
— segir Þórdur Magnússon, fjármálastjóri
Eimskipafélagsins
■ „Eimskipafélagið hefur fengið
Berglindi að verulegum hluta
bætta,” sagði Þóröur Magnússon,
fjármálastjóri Eimskips, i sam-
tali við Timann i gær, en sjópróf-
um vegna áreksturs Berglindar
og danska skipsins Charm er sem
kunnugt er ekki lokið.
„Sjóprófin hafa ekki áhrif á
stööu Eimskipafélagsins i þessu
máli,” sagði Þóröur ennfremur.
„Skýrslur liggja þegar fyrir hjá
tryggingarfélögum, og öörum
sem við þurfum að hafa sam-
skipti við, þannig aö hægt er að
gera upp tjónið. Málsatvik, sem
kunna að veröa upplýst i sjóprófi,
skipta þar ekki máli.”
Þóröur kvað sjóprófin væntan-
lega helst verða til gagns i sam-
bandi við endurkröfur trygginga-
félaganna á hvort annað.
—JSG
I
1