Tíminn - 18.09.1981, Blaðsíða 10
ÍO
Föstudagur 18. september 1981
heimilistíminn
Nauðsynleg verkfæri
fyrir hvert heimili
¦ 011 aðkeypt vinna er dýr i dag
og einnig er oft erfitt að fá fag-
menn til að vinna verk, ef eitt-
hvað fer aflaga i húsinu eða ibúð-
inni. Fólk getur sjálft gert margt
af þeim viðgerðum á húsum sin-
um, sem nauðsynlegar eru, enda
er það lika mjög algengt að fólk
vinni slikt sjálft.
En þá er nauðsynlegt að eiga
góð verkfæri. Verkfærin sem
sjást hér á myndinni er gott fyrir
hvert heimili að eiga. Með þeim
er hægt að gera við 80—90% af
þvi, sem lagfæra þarf á venjuleg-
um heimilum. Það er lika sjálf-
sagt að kaupa ekki ódýrustu
verkfærin, þvi að yfirleitt eru þau
dýrari vandaðri og endast þvi
betur.
Eftirfarandi verkfæri ætti hvert
heimili að eiga:
3mismuandi skrúfjárn, tengur,
skiptilykil, rörtöng, 2 þjalir,
spaða, hamar, „drullusokk",
hefil, borvél og sagir.
Siðan er hægt að bæta við fleiri
verkfærum eftir þvi, sem færni
viðkomandi eykst i viðgerðunum.
Þá er gott að bæta við fleiri skrúf-
járnum af ýmsum stærðum og
einnig venjulegri sög. Einnig
hallamæli og sporjárnum.
011 verkfærin á að geyma i sér-
stökum verkfærakassa, helst með
hólfum, þannig að verkfærin geti
verið hvert á sinum stað. Ef nóg
pláss er, er best að geyma verk-
færin fest upp á vegg. Þá er auð-
veldara að finna þau og minni
hætta á að þau týnist.
Réttað í Kaldárrétt
og Fossvallarétt
á sunnudag
¦ Næstkomandi sunnudag 20.
september verður réttað i
tveimur réttum i nágrenni
Reykjavikur, Kaldárrétt við
Hafnarfjörð fyrir hádegi og Foss-
vallarrétt við Lækjarbotna, eftir
hádegi.
Mánudaginn 21. september
fyrir hádegi verður réttað i
Hafravatnsre'tt i Mosfellssveit.
Þingvallarétt i Þingvallasveit,
Þórkötlustaðarétt við Grindavik
og eftir hádegi i Húsmúlarétt við
Kolviðarhól og Nesjavallarétt i
Grafningi.
Þriðjudaginn 22. sept. fyrir há-
degi verður réttað i Kjósarrétt i
Kjós og um hádegi i Kollaf jarðar-
rétt i Kjalarneshreppi.
Miðvikudaginn 23. september,
fyrir hádegi, verður réttað i Sel-
vogsrétt i Selvogi og Vatnsleysu-
strandarrétt á Vatnsleysuströnd
og Selflatarétt í Grafningi.
Fimmtudag 24. september fynr
og eftir hádegi verður réttað i
ölfusréttum við Hveragerði.
Eldhúskrókur
Kjöthleifur með
tómötum
500 grömm hakkað nautakjöt
150 g hakkað flesk (beikon)
1 litill laukur, smátt skorinn
salt og pipar og fleira krydd eftir
smekk
100 g brauðrasp
2 matsk. Worcester sósa
6 matsk. mjólk
1 þeytt egg
1 tómatur, skorinn i báta.
Lambakjötsréttur
800 g súpukjöt,
800 g kartöflur
1 stór laukur
2 lambanýru
salt og pipar
1 kjúlkingasoðteningur leystur
upp i 2 1/2 dl af heitu vatni
Orlitið brætt smjörliki.
Ofninn er hitaður i 175 gráður.
Hreinsið kjötið og skerið fituna i
burtu. Skerið kartöflurnar i
sneiðar. Skerið laukinn i þunnar
sneiðar. Hreinsið nýrum. Setjið
siðan helminginn af kartöflunum
.
¦:¦;¦-,
Kjöthleifur með tómötum.
Hitið ofninn við meöalhita.
Hrærið saman nautakjöti, fleski,
lauk, 1 tsk. af salti, örlitlum pip-
ar, kryddi, raspi, mjólk, sósunni
og egginu. Setjiö deigið i formið
og bakiö i l klst.
Skreytt með tómatinum og
péturselju.
i ofnfast mót, siðan lambakjötið,
þá lauk og nýrun og siðast þaö
sem eftir er af kartöflunum.
Kryddið hvert lag.
Siðan er kjúklingasoðið sett yf ir
og brætt smjörliki sett yfir
kartöflurnar. Lok er siðan sett
yfir eða álpappir og bakað i 2 klst.
Siðasta hálftimann er lokið tekið
af til aðkartöflurnar verði fallega
bakaðar.
Karrý kjöt með
hrisgrjónum.
600 g nautakjöt
salt og pipar
smjörliki til að steikja úr
1 iaukur
1 epli
30 g hveiti
1 matsk. karrý
30 g rúsinur
1 tsk. sýróp
1 súputeningur
7 dl vatn
250 g hrisgrjón
Kjötið er skorið i litla bita og
kryddað með salti og pipar.
Smjörlikiö er brætt á pönnu og
kjötið steikt.
Takið kjötið af pönnunni og
steikið laukinn og eplið við lágan
hita. Hrærið út i hveitið og karrý-
ið. Bætið siðan kjötinu á pönnuna
aftur og þá rúsinunum og sýróp-
inu. Leysið súputeninginn upp i
vatninu og bætið á pönnuna. Látið
þetta svo sjóða þangað til kjötið
er meyrt. Borið fram með soðn-
um hrisgrjónum og sitrónubát-
um.
Nautakjöt með
kartöfiukökum.
600 g nautakjöt,
salt og pipar,
smjörliki, (40 gr.)
1 stór laukur
1 súputeningur,
4 1/2 dl heitt vatn,
700 g kartöflur,
2 matsk. hveiti,
1 þeytt egg.
Hitið ofninn i 175 gráður. Skerið
kjötið i litla bita. Kryddið með
salti og pipar. Bræðið smjörlikið
á pönnu. Steikiö siðan laukinn og
siöan kjötið. Þá er kjötið látið i
vel smurt eldfast form. Yfir er
hellt soðinu af súputeningnum.
HhBSHHHBHhBihBhB
Karrý kjöt með hrisgrjónum.
Nuntukjöt með kartöflukökum.
Lok sett yfir formiö og kjötið
steikt, þar til það er oröið meyrt.
A meðan eru kartöflukökurnar
búnar til. Afhýðið hráar kartöfl-
urnar og skerið þær i bita.
Sjóðið þær og þegar þær eru
soönar er vatnið látið renna vel af
þeim og þær stappaöar og marðar
1 gegnum sigti. Hrærið svo hveitið
saman við þær og mótið 10 litla
þrihyrninga. Setjið'svo kartöflu-
þrihyrningana ofan á kjötið i
forminu (sjá mynd) og setjið
þeytt egg yfir þá. Bakiö i 20
minútur. Borið fram með græn-
meti.