Tíminn - 18.09.1981, Qupperneq 6

Tíminn - 18.09.1981, Qupperneq 6
Föstudagur 18. september 1981 stuttar fréttir I Hiö nýja hús er Brunabótafélagiö og Búnaöarbankinn byggöu saman á Selfossi. Brunabótafélagiö leigir bæjarstjórn Selfosskaup- staöar alla efri hæö hússins undir Fjölbrautaskóla Selfoss i tvö ár meöan veriö er aö Ijúka skóiabyggingunni sjálfri. Brunabótafélag-1 ið í nýtt hús SELFOSS: Brunabótafélag islands opnaöi nýlega um- boösskrifstofu á Selfossi i nýju húsi er félagið hefur byggt meö Búnaöarbankanum, að rúmlega 40% hluta. Af þessu tilefni var forystumönnum allra sveitarstjórna i Arnes- sýslu ásamt fleiri heldrimönn- um boðið til siðdegisdrykkju. Hinn nýi forstjóri Ingi R. Helgason, tók á móti gestum, rakti aðdraganda byggingar- framkvæmdanna og skýrði þýðingu hinnar nýju skrif- stofu. Umboðsmaður Bruna- bótafélagsins á Selfossi er Erlendur Hálfdánarson, bæjarstjóri. Óli Þ. Guðbjartsson, bæjar- stjórnarmaður og fyrrverandi oddviti á Selfossi ávarpaði sérstaklega hinn nýja for- stjóra Brunabótaíélagsins og óskaði honum heilla i starfi. Minnti hann menn á gömul ákvæði Grágásar, er sýndu að gagnkvæm tryggingarstarf- semi var eitt af frumhlutverk- um hreppanna á lýðveldistim- um. —HEI Kaupmáttur kvennakaups rýrnaði meðan karlakaup hækkaði AKRANES: Kvennadeild Verkalýðsfélags Akraness samþykkti nýlega á fundi sín- um ýmsarkröfur sem konum- ar telja aö leggja eigi áherslu 'á i komandi kjarasamningum. Vegna Félagsdóms i'Heima- skagamáli, sem féll gegn kon- unum, telja þær að breyta verði kauptryggingarsamn- ingi og lögum þannig, að upp- sagnir vegna hráefnisskorts eða annarra ástæðna geti aldrei varað lengur en eina viku I senn og samtals ekki lengur en einn mánuö á ári. Þrátt fyrir allar yfirlýsingar um höfuöáherslu á hækkun lægstu launa, segja konurnar þetta hafi orðiö öfugt. Lægsta kaupið — kaup kvennanna — hafi hækkað minnst, þrátt fyrir aö reiknaö sé með álög- um, bónus, premiu og fleira hafi kaupmáttur kvenna- kaupsins rýrnað um 2,4% meðan kaupmáttur verka- manna hækkaðium 1% og iðn- aöarmanna um 1,4%. Þá kröfu verði þvi að gera að almenni fiskvinnsluflokkurinn, — sem er 8. flokkur — færist i 10. launaflokk. Þá er fariö fram á að eftir- vinna falli niður i áföngum með óskertu kaupi. Nætur- og helgidagavinna hækki á ný upp i 100% álag á dagvinnu. Samiö skuli um að laugar- dagar hætti að teljast orlofs- dagar þannig aö verkafólk fái 24 virka vinnudaga i sumarfri og tilsvarandi hærri orlofspró-' sentu. Stefnt skuli aö launajöfnun er gerast mætti meö hækkun grunnkaups og hlutfallslega hærri visitölubótum á lægri laun,eða sömu krónutölu fyrir hvert visitölustig. Benda kon- urnar á, að nii 1. sept. hafi hvert vfsitölustig bætt kaup samkvæmt lægsta taxta Verkamannasambandsins um 40 kr. á mánuöi, samkvæmt hæsta taxta Verkamannasam- bandsins um 57 kr., sam- kvæmt 13. launafl. BSRB 65 kr., 20. launafl. 92 kr. og sam- kvæmt hæsta launaflokki rik- isins um 132 kr. á mánuöi. Þetta séu þær bætur sem fólk fái til að mæta hækkandi verði á nauðsynjum heimilanna. Beri þvi að vinna gegn þvi að á meðan láglaunafólk tapi á dýrtiðinni geti hinir hærra launuðu grætt á henni. — HEI Met slátrun? SVALBARÐSEYRI: Slátrun hófst á Svalbarðseyri s.l. þriðjudag. Að sögn Sveinbergs Laxdal á Túnsbergi mun gert ráð fyrir að slátrað veröi þar um 23.500 fjár. Standist það sagði Sveinberg það metslátr- un, eða aöeins meira en haust- ið 197j, þegar slátrun hefur orðið hvað mest áður. —HEI Fjölgun ferdamanna EGILSSTAÐIR: Mikið varum ferðamenn á Egilsstöðum i sumar. Auk Smyrilsfarþega — sem hvað eftir annað voru um 500 i ferð i sumar — kemur fjöldi erlendra og innlendra ferðamanna i skipulögðum hópum, eða á eigin vegum. Þetta fólk tjaldar, eöa býr i bilum sinum og eldar sjálft, enda hefur oft veriö þröng á þingi isöluskálanum, kjörbúð- inni og á tjaldstæðinu á Egils- stöðum i kringum komu og brottför Smyrils. Hópar á veg- um ferðaskrifstofa munu meira nýta þjónustu hótel- anna. í heildina litið telja Egils- staöamenn að fjöldi erlendra ferðamanna hafi vaxiö veru- lega siðari árin. íslendingum þar á feröhafihinsvegar ekki fjölgað a.m.k. ekki frá þvi há- marki er varð er hringvegur- inn opnaðist 1974. Afsláttur af verði á ófrystu dilkakjöti: YFIR 50 KRONUR A HVERN SKR0KK ■ Framleiðsluráð hefur ákveðið að gefinn skuli staðgreiðsluaf- slátturaf ófrystu kjöti sem selt er i heilum skrokkum nú i sláturtið- inni. Samkvæmthinu nýja verði á kjöti kosta heilir skrokkar nú 38.15krkg. ósundurtekniren 41,05 sé skrokkurinn hlutaður sundur að ósk kaupenda. Fyrrnefndur afsláttur skal nema 3.50 kr. á kilóið sékjötið selt i sláturhúsi, utan sláturhúsa 2.30 kr. í kjötheildsölum og 1.60 krón- ur á kilóið i smásöluverslunum. 1 viðtali við Inga Tryggvason, formann Stéttasambandsins kom fram að hann telur að með þessu móti geti neytendur gert mjög góð matarkaup. Einnig bendir hann á, að heil slátur á 38.70 kr. stykkið séu einhver albestu matarkaup er fólki gefist kostur á. ■ Það dugar ekki annað en að klæða af sér haustrigningarnar þegar unnið er úti við. TImamynd:Róbert Kæligeymsla fyrir grásleppuhrogn byggt næsta sumar ■ „Viðætlumað vera búnir að koma upp þessari kæligeymslu fyrir grásleppuhrogn fyrir 1. júli 1982”,sagði Gúðmundur B. Lýðs- son framkvæmdastjóri Samtaka grásleppuhrognaframleiðenda i viötali við Timann, en nýlega út- hlutaði borgin samtökunum lóö undir kæligeymsluna á nýju upp- fyllingunni við örfirisey. ,,Þaö fer að vísu svolitiö eftir framkvæmdahraðanum hjá höfn- inni hversu fljótt lóöin verður til- búin.en við stefnum aö þessu. Við reiknum með aö geta byrjaö bygginguna strax upp úr áramót- unum. Húsiö sjálft verður fljót- reist, þegar búið verður að ganga frá grunni, þar sem þetta er stál- grindarhús.” Guðmundur sagði aö grá- sleppukarlarnir myndu allir i sameiningu fjármagna byggingu kæligeymslunnar, en þeir reikn- uöu jafnframt með því aö fá lán úrsjóðum eins og Fiskveiðisjóöi. „Þaö er ekki mikið ennþá um það aö grásleppuhrogn séu farin að skemmast, sökum þess að þau hafi ekki verið geymd i réttum kæligeymslum, en þó vitum við að þó nokkuð magn hefur nú þeg-- ar skemmst. Það er ekkihægt að segja til um þaö enn hversu mikið skemmist, því hrognin eru ekki skoðuð af Framleiðslueftirliti sjávarafuröa fyrr en þau eru flutt út. 1 fyrra þegar sumariö var mjög heitt, þá kom versta árið til þessa hvaö varðar skemmdir. Þetta vandamál er alltaf fyrir hendi, en verðurþess meira áberandi, eftir þvi sem lofthitinn eykst”, sagði Guðmundur og bætti þvi við að það væri þviljóst aö á meðan grá- sleppuhrognaframleiðendur sætu uppi með hrogn sin mánuðum saman þá væri nauðsynlegt aö þau væru geymd i réttri kælingu. Benti Guðmundur á nauðsyn þess að koma i gegn lagafrum- varpi þvi sem svæft hefði verið á Alþingi ifyrra. Sagði hann að það eina sem framleiðendurnir hefðu farið fram á væri að samtök þeirra yröu lögfest sem slik. „Við förum ekki fram á neina styrki frá rikinu, heldur viljum við ein- ungisfá skipulag og samræmingu á starfsemi okkar”, sagði Guð- munduur. —AB

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.