Tíminn - 18.09.1981, Qupperneq 7
Föstudagur 18. september 1981
7
erlent yfirlit
■ CALVO Sotelo forsætisráðherra
Spánar mun innanti&ar fara þess
á leit viö þingið, aö þaö samþykki
dsk um, aö Spánn fái aöild aö Atl-
antshafsbandalaginu.
Formlega beiöni mun Sotelo
ekki leggja fram fyrr en hann er
búinn að fá umrætt samþykki
þingsins.
Ríkisstjórn Sotelos er minni-
hlutastjórn Miðflokkabandalags-
ins sem hefur 145 þingmenn, en
þingmann eru alls 300. Stjórnin
styöst viö ýmsa smáflokka til
hægri og liklegt þykir, að þeir
styöji aöildarbeiönina. Hins veg-
ar er enn ekki fullvist, að allir
þingmenn Miðflokkabandalags-
ins séu henni fylgjandi.
Bæði Sósialistaflokkurinn og
Kommúnistaflokkurinn hafa tek-
ið afstöðu gegn aðildinni. Bregö-
ist einhverjir af þingmönnum
Miðflokkabandalagsins, getur
það reynzt hæpið, hvort aöildar-
beiðnin verður samþykkt.
Þessi vafi hefur aukizt við þaö,
að Fernandez Ordonez dóms-
málaráðherra baðst nýlega
lausnar og neitaði að gegna em-
bætti áfram um stund, þótt Sotelo
bæði hann um það. Sotelo mun
hafa i huga að endurskipuleggja
stjórn sina og vildi fá Ordonez til
að fresta brottför sinni þangað til.
Ordonez vann sér gott orö, þeg-
ar hann kom fram hjónaskilnaö-
arlöggjöfinni, en það heyrði undir
■ Sotelo forsætisráöherra og konungshjónin
Fá Spánverjar
aðild að Nato?
Óvíst um afstöðu þingsins í Madrid
ráðuneyti hans að koma henni i
gegnum þingið. Siðan hafa hægri
menn i Miðflokkabandalaginu
haft horn i siðu hans. Getgátur
herma, að Ordonez ætli aö gerast
leiötogi frjálslyndari armsins i
flokknum og að hann geti vel
hugsað sér samstarf viö
Sósíalistaflokkinn. Sumir frétta-
skýrendur telja óvist að hann
muni styðja beiðnina um aðild
aö Atlantshafsbandalaginu
Sami orðrómur gengur einnig
um Adolfo Suarez, sem lét af for-
sætisráðherraembættinu i fdirú-
armánuði siðasl. eftir að hafa
unnið sér góðan orðstir. Hægri
menn i flokknum höföu hins vegar
horn isiðu hans. Hann kaus þvi að
draga sig ihlé og láta Sotelo taka
við. Siðan hefur Suarez haft hægt
um sig, en liklegt þykir þó, að
hann eigi eftir að koma við sögu á
ný.
SOTELO er sagður ákveöinn i
þvi að fá aðildarbeiðnina sam-
þykkta. Hann telur aö aðild að
Atlantshafsbandalaginu muni
bæta aðstöðu Spánar til að fá aö-
ild að Efnahagsbandalagi
Evrópu, en það mál hefur strand-
að a.m.k. i bili og veldur þar
mestu afstaða Frakka.
Sotelo telur einnig að þátttaka i
Atlantshafsbandalaginu muni
styrkja lýðræðiö i sessi á Spáni.
Hershöfðingjar þar muni siöur
reyna að gera byltingu eftir að
þeir fara að starfa með stéttar-
bræörumsinumi Nato-löndunum.
Aðrir benda á, að þetta hafi
ekki hindrað valdatöku hershöfð-
ingja i Grikklandi og Tyrklandi.
Felipe Gonzalez, leiðtogi
Sósialistaflokksins, segist ekki
mótfallinn Atlantshafsbandalag-
inu, en þó telji hann, að Spánn eigi
ekki að vera i þvi. Hann leggur
mikla áherzlu á samvinnu Spánar
og ri'kjanna i latnesku Ameriku.
Aðild Spánar að Atlantshafs-
bandalaginu gæti torveldaö þessa
samvinnu og einnig samvinnu
Spánar við Afrikurikin.
Gonzalez telur einnig, að sú
hætta geti fylgt aðild að Atlants-
hafsbandalaginu, að Spánn drag-
ist inn i átök utan Evrópu.
Bandarikin hafa nú herstöðvar
á Spáni samkvæmt sérstökum
samningi, sem bráðlega fellur úr
gildi. Gonzalez segist ekki and-
vigur þvi, að sá samningur veröi
endurnýjaður, en þó tryggt að
kjarnorkuvopn veröi ekki á
Spáni.
EINS OG áður er vikið að, verð-
ur þess vart lengi að biða, aö
þingið í Madrid taki afstööu til
þess, hvort Spánn ferfram á að fá
aðild að Atlantshafsbandalaginu.
Liklegt þykir aö slik beiðni
myndi ekki sæta andstöðu hjá
bandalaginu, en öll aðildarrikin
þurfa að samþykkja hana.
Dómar hafa enn ekki verið
kveðnir upp i málum hershöfð-
ingjanna, sem gerðu byltingartil-
raun á siðastl. vetri og höföu
þingiö þá i haldi næturlangt.
Handhafar ákæruvaldsins hafa
krafizt að aðalforsprakkarnir
verði dæmdir i 30 ára fangelsi.
Ýmis sólarmerki þykja benda
til þess, að það sé siöur en svo úti-
lokað, að hershöfðingjarnir eigi
eftir að gera nýja tilraun til
valdaráns. Nýjustu upplýsingar
sýna.aö litlu munaöi, aö þeim
•tækist byltingartilraun i vetur.
Jóhann Karl konungur fékk
vitneskju um hana á siðustu
stundu, þegar hershöfðingjarnir
voru að undirbúa tilkynningu
þessefnis^ð hann væri byltingar-
tilrauninni samþykkur. Hefði
konungur i kki tekiö snarlega i
taumana, hefði tilraunin senni-
lega heppnazt.
Óttinn við ihlutun hersins setur
svip á stjórnmálaástandið á
Spáni. M.a. fer Sósialistaflokkur-
inn sér gætilegar en ella, en
traust á honum virðist þó fara
vaxandi. Skoðanakannanir spá,
að hann yröi stærsti flokkur Spán-
ar, ef kosið væri nú.
■ Felipe Gonzalez
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
erlendar fréttir
■ Alexander Haig
Haig ver
vopnasölu til
Saudi-Araba
■ Alexander Haig, utanrikis-
ráðherra Bandarikjanna, end-
urtók i gær fyrri fullyrðingar
sinar um aö friði i Mið-Austur-
-löndum stafaði enn veruleg
ógn af athöfnum Sovétmanna.
bessar endurteknu fullyrðing-
ar ráðherrans voru hluti af
vitnisburði hans þegar hann
kom fyrir utanrikistengsla-
nefnd öldungadeildar banda-
riska þingsins i gær, i þeim til-
gangi að verja fyrirhugaöa
vopnasölu Bandarikjamanna
til Saudi Arabiu. Meðal þess
sem fyrirhugað er að selja
Saudi-Aröbum eru nokkrar
Awacs radarflugvélar.
Haig sagði að þessi fyrir-
hugaði vopnasölusamningur,
sem heíur fengið mikinn and-
byr i fulltrúadeild bandariska
þingsins, væri nauðsynlegur
til þess að tryggja mikilvæga
hagsmuni Bandarikjanna á
svæði sem byggi við mikið
óöryggi. Hann hélt þvi einnig
fram, að ef Bandarikjamenn
ynnu ekki af fullum hug með
hverjum og einum vinveittum
aðila á svæðinu, yrði niður-
staðan óhjákvæmilega sú að
öryggi ísraelsrikis yrði stefnt i
mikla hættu. lsraelsmenn
hafa mótmælt þessum fyrir-
huguðu sölum á vigbúnaði
harðlega og telja þær ógna
öryggishagsmunum sinum.
Haig sagði i gær að Banda-
rikjamenn myndu eftir sem
áður gera allt sem þeir gætu
til að tryggja öryggi israel.
Ef af þessum vopnasamn-
ingum verður, munu Banda-
rikjamenn selja Saudi-Aröb-
um vigbúnað fyrir sem nemur
átta þúsund og fimm hundruð
milljónum bandarikjadala.
Bandariska þingiö á þó eftir
að gefa samþykki sitt fyrir þvi
að samningur þessi verði
gerður.
Sprengdu stöðvar
PLO í loft upp
■ Mikil sprengin varð i gær i
hafnarborg i suðurhluta
Libanon og eyðilagði hún höf-
uðstöðvar frelsishreyfingar
Palestinu, PLO, i þessum
landshluta. 1 fregnum þaðan
segir að um tuttugu manns
hafi týnt lifi i sprengingunni
og um áttatiu hafi slasast.
Talsmenn PLO i borginni
segja að sprengingunni, sem
varð i miðborg hafnarborgar-
innar, hafi valdið bifreið, sem
hlaðin var meir en tvö hundr-
uð pundum af sprengiefni.
Nokkrar aðrar byggingar i
nágrenni höfuðstöðva PLO
skemmdust illa og tugir bif-
reiða eyðilögðust við spreng-
ínguna.
Litt þekkt hreyfing, sem
kallar sig frelsishreyfingu
Libanon (Front For The
Liberation Of Libanon), hefur
lýst ábyrgð á sprengingunni á
hendur sér. Sagðist hreyfingin
einnig hafa framið annað
sprengitilræði i verksmiðju
skammtfrá Beirút, höfuðborg
Libanon, þar sem tiu manns
týndu lifi.
Otvarpsstöð PLO i Libanon
sagði i gær að þessi hreyfing
væri ekki til, heldur væri hún
notuð til þess að blekkja fólk,
þvi i raun væri það leyni-
þjónusta Israela og aðrir Isra-
elsmenn sem stæðu að baki
þessari hryðjuverkastarfsemí.
Ráku hermálafulltrúann
■ Sovéski sendiherrann i
Egyptalandi, sem rikisstjórn
Sadat, Egyptalandsforseta
sakaði um undirróðursstarf-
semi gegn stjórnvöldum
landsins, fór áleiðis til Sovét-
rikjanna i gær. 1 för með
sendiherranum i gær voru sex
aðrir embættismenn sendi-
ráðsins og tveir soveskir
blaðamenn.
Sovéska fréttastofan TASS
skýröi frá þvi i gær að her-
málafulltrúa egypska sendi-
ráðsins i Moskvu og starfsliði
hans hefði verið visað úr landi
og eigi það að vera á brott
innan sjö daga.
Egypsk stjórnvöld höfðu
þegar lýst yfir þeirri ætlan
sinni að kalla fulltrúann og lið
hans heim, svo og að loka
hermálaskrifstofu Sovét-
manna i Kairó.
INDLAND: Neðri deild indverska þingsins felldi i gær tillögu um
vantraust á Indiru Ghandi og rikisstjórn hennar. Stjórnarandstaöan
sem lagði fram vantrauststillöguna, byggöi hana á ásökunum um
fjármálahneyksli.
BARENTSHAF: Breskir björgunarmenn hafa nú byrjað björgun-
arstarf úr sokknu skipi i Barentshafi, og er ætlun þeirra að ná úr
flakinu farmi þess. Skipið sökk á árum siðari heimsstyrjaldar og
farmurinn var gull, sem átti að vera greiðsla frá Sovétmönnum fyr-
ir bandarisk vopn.
BRETLAND: Frjálslyndi flokkurinn i Bretlandi samþykkti á
flokksþingi sinu i gær að berjast gegn staðsetningu nýrra banda-
riskra meðaldrægra eldflauga i Bretlandi, en NATO hefur nú uppi
áætlanir um staðsetningu slikra flauga víöa um Evrópu.