Tíminn - 18.09.1981, Blaðsíða 11

Tíminn - 18.09.1981, Blaðsíða 11
Föstudagur 18. september 1981 Í1 PENINGALEYSI EINKENNIR NÚNA GAMLA GUFURADÍÖIÐ ■ Þótt blaöið geti varla fundiö óhentugri mann til aö skrifa um útvarp og sjónvarp liöinnar viku, lét ég til leiöast, eins vel þótt ég hlusti yfirleitt ekki leng- ur á annaö en fréttir og svo horfi ég auövitaö á Dallas og ensku knattspyrnuna. Það er svona fastur liöur, þvi yfir fótbolta er einhver sérstök stemmning, sem skilar sér allt eins vel, þótt maður sé ekki á vellinum, held- ur heima i stofu, en vfkjum nú aö dagskránni. Þaö sem einkennir dagskrá útvarpsins eöa gamla gufu- radióiö er peningaleysið. Starfs- liö útvarpsins grefur nú mikiö upp gamla þætti og erindi, sem flutt voru i útvarpið fyrir mörg- um árum, og má nú heita svo komið, aðframliðnir menn hafa meira pláss i útvarpinu, en þeir sem nú lifa i landinu. Sögur og kvæði eru lika endurflutt, en ekki frumflutt, vegna þess að það kostar útvarpið minna en ferskar sögur og nýjar, enda er minna uppstreymi, svona bók- menntalega séð i útvarpinu núna, en var meðan skáldin komu i útvarpið með nýjar sög- ur og ljóð. Steinbörnin sem safnstjórarnir grafa upp, vekja ekki ávallt áhuga, þvi maður hefur heyrt þetta áður. Þó maður fagni þvi út af fyrir sig, að útvarpið sé með ráðdeild rekiö, hlýtur þetta fjársvelti aö auka vanda dagskrárgerðar- manna og dagskrárstjóra. En þetta hefur lika sina kosti. Margt af þessum gömlu þáttum er fróðlegt að hlusta á, einkum þegar málsnjallir gáfumenn eiga i hlut. Gott dæmi um þetta eru þætt- irnir: Þeir stóðu i sviðsljósinu, þáttur um 13 islenska leikara, er gerðir voru árið 1976. Og satt að segja, þá held ég að útvarpið ætti ekki alveg að falla frá þess- um föngum, þótt það eignist peninga. Sumt af þessum gömlu þátt- um eru gull, þótt maður sam- þykki ekki að hinir látnu ráði dagskránni alveg. Þá eru það fréttirnar. Ein- hver sagði að útvarpið hefði einkarétt á 50 klukkustunda þögn á viku. Það eitt má út- varpa — og ekki má heldur senda út, þann tima, sem út- varpsstöðin er lokuð. Fréttir útvarpsins eru ágætar, nema hvað að frétta- menn þess fara seint á fætur. Bg er morgunhani og hlusta eða opna fyrir útvarpið strax kl. 07.00, og þegar veðurfregnum lýkur og búið er að auglýsa eftir bátum, þá koma erlendar fregnir, og þá aðeins fáeinar lin- ur, oft nokkurn veginn sömu blöðin og lesin voru i seinustu fréttum, rétt fyrir miðnættið kvöldið áður. Fréttamenn út- varps ættu að fara fyrr á fætur og segja fréttir úr sinu eigin landi, þótt sjálfsagt sé að hafa erlendar fregnir lika, og á eftir er bæn, þar sem beðið er fyrir þjóðinni og vil ég hvetja menn til að hlusta á þann þátt, þvi það er ósköp gott að byrja nýjan dag eftir að hafa hlustað á heilaga ritninguog önnur heilræði, burt- séð frá þvi hvort menn trúa i venjulegum skilningi þess orðs. Næstu trúboðar koma siðan kl. átta fimmtán (ef ée man rétt) en það er lestur úr forystu- greinum dagblaðanna. Þeim dagskrárlið sleppi ég aldrei, þvi það er auðveldara að láta lesa þetta fyrir sig, en stauta þetta sjálfur. Þó held ég að ég myndi vilja óska eftir einni breytingu, að það yrði látið biða, þar til hverjum leiðara er lokið, að segja i hvaða blaði hann stendur, þvi það gæti verið býsna gaman að geta sér þess til hverju sinni, úr hvaða blaði væri nú verið að lesa. Hvort það er úr pólitisku blöðunum, eða blöðum, sem telja sig ekki koma nærri stjórnmálum. ömurlegasti dagur útvarps- ins eru sunnudagarnir, þvi þá bætist þriöja trúboðið við, en það eru miðaldamenn tónlistar- deildarinnar, sem spila kirkju- söng og p'ássacagliur undir drep, þrátt fyrir sólskinið og ilminn af blóðugri jörðinni á sumrin. Ég veit ekki hvers vegna þeir spila þetta. Kannski til að halda úti einhverri listrænni æru. En þeir ganga of langt, langt aftur i aldir, þvi öll tóniist hefur sinn tima.og þarf rétt umhverfi. Ein gerð tónlistar tilheyrir hinum dimmu vetrardögum, þegar hugurinn reikar og vixlarnir falla einn af öðrum til jarðar. A sumrin eru menn i öðru skapi, og það þyrfti tónlislardeildin einnig að vera á sumrin. Um sjónvarpið vil ég vera fá- orður. Gefins þættir um dýralif i Kanada, nashyrninga i Afriku og apategundir, ásamt fræðslu- þáttum um einkennileg visindi, heilla mig ekki lengur. Sjónvarpið er þó furöugott að minu mati, ef heimsfrelsarar fréttastofunnar kunna sér hóf og tala meira um fsland en Kabúl. Ég er þess viss, að ef sjón- varpið hefði dálitið meira af peningum, og þyrfti ekki aö vera i svona mikilli skiptivinnu við Sviþjóð, væri það með betri sjónvarpsstöövum i Evrópu. Jónas Gubmundss, rith. ■ Maður fær fótboltavöllinn inn I stofu. Jónas Gudmundsson, rithöfundur, skrifar Dagskrá sjónvarps vikuna 20.-26. september sjonvarp Sunnudagur 20, september 18.00 Sunnudagshugvekja Séra Arni Bergur Sigur- björnsson, sóknarprestur i Asprestakalli, flytur hug- vekjuna. 18.10 Barbapabbi Tveir þætt- ir. Sá fyrri endursýndur, sá siöari frumsýndur. Þýð- andi: Ragna Ragnars. Sögumaöur: Ragnheiður Steindórsdóttir. 18.45 Fljótasta dýr jarðar Blettatigur er frægur fyrir að fara hratt yfir. Engin skepna á fjórum fótum á jöröinni kemst hraðar. Þessi mynd er um blettatig- ursfjölskyldu. Þýðandi og þulur: Óskar Ingimarsson. 19.15 Hlé 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttirog veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Sjónvarp næstu viku 20.50 Snorri Sturluson 22.10 Ræflarokk Þáttur frá Belfast með nokkrum ræfla- rokkhljómsveitum. Myndin hefur unnið til verðlauna. 1 henni er lýst andrúmsloft- inu i kringum þær hljóm- sveitir, sem leika i mynd- inni. Þýðandi: Kristmann Eiösson. 23.00 Dagskrárlok Mánudagur 21. september 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Filippus og sætabrauðs- kötturinn Finnsk leikbrúðu- mynd um Filippus, sem býr Uti i sveit. Mamma hans vinnur ibænum, en pabbinn er rithöfundur og situr við ritvélina allan daginn. Alls eru þættirnir fjórir. 1 fyrsta þætti verða Filippus og sætabrauöskötturinn vinir. Þýðandi: Trausti JUlíusson. (Nordvision — Finnska sjónvarpið) 20.40 tþróttir.Umsjón: Bjarni Felixson. 21.10 Flatbrjósta Breskt sjón- varpsleikrit. Leikstjóri: Michael Ferguson. Aðal- hlutverk: Alyson Spiro og Chris Barrington. Ung og falleg kona, sem hefur lifað tilbrey tingarlitlu lifi, ákveður að fara að heiman. HUn kemur til borgarinnar i leit aö vinnu — og ævintýr- um. Þýðandi: Kristrún Þóröardóttir. 22.00 Orkuráðstefna Samein- uðu þjóðanna/Afmæli Berlinarmúrsins Tvær breskar fréttamyndir, I. Fyrir skemmstu var haldin i Nairobi i Kenya orkuráö- stefna á vegum Sameinuðu þjóðanna um orkugjafa. Meginefni ráðstefnunnar var orkuvandinn, sem blas- ir við rikjum þriðja heims- ins og framtiðarhorfur I orkumálum heims. II. Slð- ari fréttamyndin fjallar um Berlínarmúrinn, sem nú hefur staðiö I 20 ár. Austur- Þjóðverjar hófu að reisa hann 13. ágúst árið 1961, meðal annars til þess að koma f veg fyrir fjöldaflótta Austur-Þjóðverja til Vest- urlanda. Þessi mynd fjallar stuttlega um sögu múrsins og stöðu mála nú i þessari tvi'skiptu borg. Þýöandi og þulur: Gylfi Pálsson. 22.25 Dagskrárlok. Þriðjudagur 22. september 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Pétur Tékkneskur teiknimyndaflokkur. Sjö- undi þáttur. 20.45 Þjóðskörungar 20stu ald- ar Meistari i stjórnkænsku heitir þessi siöari mynd um fyrrum forseta Bandarikj- anna Franklin D. Roosevelt (1884—1945). Þýöandi og þulur: Þórhallur Guttorms- son. 21.15 Óvænt endalok Skotheld- ur Þýðandi: Óskar Ingi- marsson. 21.45 A götunni Húsnæðis- vandinn i brennidepli. Um- ræðuþáttur i beinni útsend- ingu. Umræðum stjórnar Ingvi Hrafn Jónsson. 22.35 Dagskrárlok. Miðvikudagur 23. september 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.45 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Tommi og Jenni 20.40 Frá skosku Hálöndunum Þessi mynd frá BBC sýnir fjalllendi Skotlands.lands- lag og dýralif. Jafnframt er sýnt hvernig bæöi landslag og dýra- og jurtalif hefur breyst af mannavöldum. Margt er likt með dýralifi þar og hér á landi. Þýðandi: Jón O. Edwald. 21.30 Dallas.Fjórtándi þáttur. Þýðandi: Kristmann Eiðs- son. 22.20 Dagskrárlok. Föstudagur 25. september 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 A döfinni 20.50 Allt i gamni með Harold Lloyd s/h Syrpa úr gömlum gamanmyndum. 21.15 Þeirneita aö deyja 21.45 Brostu, Jenni, þú ert dauö (Smile, Jenny, You’re Dead) Bandarisk sjón- varpsmynd frá 1974. Leik- stjóri: Jerry Thorpe. Aðal- hlutverk: David Janssen, Andrea Marcovicci og Jodie Foster. Einkaspæjarinn Harry Orwell fær þaö verk- efni að vernda dóttur vinar si'ns, lögregluforingja, sem óttast, að hún sé viðriðin morð. Orwell, einkaspæjari, kemst i tæri við geðklofa ljósmyndara. Þýðandi: Dóra Hafsteinsdóttir. 23.10 Dagskrárlok. Laugardagur 26. september 17.00 iþróttaþáttur. Umsjón- armaður: Bjarni Felixson. 18.30 Kreppuárin Fjórði þátt- ur. Þetta er fyrsti þáttur sænska sjónvarpsins i þáttaröð norrænu sjón- varpsstöðvanna um börn á kreppuárunum. Sænsku þættirnir eru þrir. Þeir fjalla um ellefu ára gamla stúlku, Söru, sem býr hjá afa sinum og ömmu á stór- um sveitabæ. Þýðandi: Jó- hanna Jóhannsdóttir. (Nordvision — Sænska sjón- varpið) 19.00 Enska knattspyrnan Umsjón: Bjarni Felixson. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Löður Gamanmynda- flokkur. 21.00 Elvis Presley á Hawaii Annar þáttur af þremur, sem Sjónvarpið sýnir um rokkkónginn Elvis Presley. 1 þessum þætti sem hinum fyrsta syngur Presley mörg sinna vinsælu laga, alls 18 lög og tvær lagasyrpur. Tónleikarnir voru teknir uppáHawaii.Þýðandi: Ell- ert Sigurbjörnsson. 21.50 Tvifarinn (The Double Man) Bandarisk biómynd frá árinu 1968. Leikstjóri: Franklin J. Schaffner.Aðal- hlutverk: Yul Brynner og Britt Ekland. Starfsmaöur CIA, bandarisku leyniþjón- ustunnar, er tældur til Alp- anna til þess að rannsaka dauöa sonar sins. Þýðandi: Óskar Ingimarsson. 23.30 Dagskráriok.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.