Tíminn - 18.09.1981, Page 16

Tíminn - 18.09.1981, Page 16
16 Wmtmi Föstudagur 18. september 1981 Carite Dönsku leikfimibolirnir eru komnir Heildsala Smásala Sportval Hlemmtorgi ! Simar (91) 1-43-90 (t 2-66-90 NÝTT FRÁ BARBIE Póstsendum Leikfanga húsið Sími 14806 SkólavörðustíglO Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar, 1*1 ON 'V Starf forstöðumanns Grænuborgar er laust til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin. Laun skv. kjarasamningi borgarstarfs- manna. Umsóknarfrestur er til 4. okt. Umsóknir sendist til skrifstofu dagvistun- ar Fornhaga 8, en þar eru veittar nánari upplýsingar. Dagvistun barna Fornhaga 8, simi 27277. Kvennalandsliðið í knattspyrnu leikur sinn fyrsta lands- leik á morgun í Skotlandi ■ Föstudaginn 18/9 1981 fer landslið Islands i kvennaknatt- spyrnu til Skotlands þar sem það leikur fyrsta landsleik fc kvenna- knattspyrnu gegn Skotlandi. Þessi leikur er liður i þvi starfi hjá Knattspyrnusambandi Islands _ að efla knatt- spyrnuáhuga hjá islensku kven- fólki. Viða um heim er kvenna- knattspyrna nú þegar orðin mjög vinsæl og meöal annars er kvennaknattspyrna næst vinsæl- asta iþróttin i Sviþjóð. Af Islands hálfu hafa verið valdar eftirtaldar stúlkur til þessa leiks: Markverðir: Guðriður Guðjónsdóttir U.B.K. Ragnheiður Jónasdóttir t.A. Aðrir leikmenn: Rósa Valdimarsdóttir U.B.K., Jónina Kristjánsdóttir U.B.K., Asta Maria Reynisdóttir U.B.K., Magnea Magnúsdóttir U.B.K., Bryndis Einarsdóttir U.B.K., Ásta B. Gunnlaugsdóttir U.B.K., Svava Tryggvadóttir U.B.K., Kristin Aðalsteinsd. I.A., Kristin Reynisdóttir I.A., Cora Barker Val, Ragnheiður Vikingsd. Val, Bryndis Valsdóttir Val, Brynja Guðjónsdóttir Vikingi og Hildur Harðardóttir F.H. bjálfari er Guðmundur Þórðarson. Farar- stjórar: Ellert B. Schram, Svan- friður Guðjónsdóttir og Gunnar Sigurðsson. GULT — og RAUTT spiald ■ Skýrslur dómara vegna spjalda ileikjum i sumar skipta hundruðum, ég vil þvi spyrja, er þetta ekki öfug þróun? Hvers vegna þessi fjöldi spjalda? Það kom fram i' blööum fyrir skömmu, að um og yfir 80% spjalda á drinu séu fyrir kjaft- brúk. Restin liklega fyrirgrófan leik og minniháttar óprúðmann- lega framkomu. Það má með sanni segja, að hér sé mjög athyglisvert rann- sóknarefni á ferð, er varðar ffll knattspyrnufélög i landinu, dómara og ekki sist áhorfendur, en hvað varðar svo sökudólginn sjálfan, (leikmanninn) það er sér kapituli. t upphafi tslandsmótsins i 1. deild sýndu leikmenn óþarfa kæruleysi og söfnuöu sér refsi- stigum, en um miðbik mótsins fóru þeir að átta sig og hugsa sina framkomu og þegar siðustu umferðirnar byrjuöu kom það fyrir að leikmenn höfðu tal af dómara fyrir leiki og báðu um miskunn ef þeim skyldi verða á i messunni, að forða sér þá frá spjaldi. Að sjálfsögðu geta dómarar ekki oröiö við þeim óskum. Ef leikmaður gerist brotlegur við þær greinar knatt- spyrnulaganna, sem krefjast róttækra aðgerða hjá dómara verður hann að sýna við- komandi leikmanni spjaldið án tillits til afleiöinga fyrir hann. Þá máspyrja, hvað er til ráöa i þessum vanda? Má heyra það frá ýmsum for- ustumönnum félaga, þjálfurum og leikmönnum, að dómarar séu of viðkvæmir fyrir svivirðing- um leikmanna og misjafnir i notkun spjalda t.d. fyrir grófan leik. Tvö tilfelli hafa mikið verið rædd manna á meöal. Þessi til- vik eru keimlik en hafa ólikan aðdraganda, i báðum tilvikum tóku dómararnir mjög hart á brotunum e.t.v. harðar en tiðkast hefur til þessa. Fyrra tilfellið er brottvisun fyrirliða Vals (í 1. deild) af leik- velliá Akureyri, fyrir að bregða mótherja, visvitandi að mati dómara, og stöðva þannig upp- hlaup andstæðinga. Þess skal sérstaklega getið að hann hafffl ekki fengið gult spjald i leikn- um. Likt tilfelli skeði i leik i Vestmannaeyjum, að einum leikmanna Vikings (i 1. deild) var vikið af leikvelli fyrir að sparka visvitandi i andstæðing ® Grétar Noröfjörð skrifar. að mati dómara. Hann hafði ekki fengið gult spjald i leikn- um. Ég ætla ekki að taka hér persónuiega afstöðu til gerða dómaranna, en visa til samþykktar Alþjóðanefndar á fundi 13. júni 1981 þar sem hún leggur til að ... „leikmanni er gerist sekur um vitaverða framkomu eða mjög gróft brot gegn andstæðingi verði þegar I staö vfsaö af leikveili”. Þessirtveir dómararhafa þvi samkvæmt þessari samþykkt nefndarinnar gert rétt þó svo e.t.v. hefði verið réttara að á- kveða þetta ekki fyrr en að vori 1982, en um það má deila. Onnur ákvörðun Alþjóðá- nefndar á sama fundi um kjaft- brúk leikmanna. Nefndin leggur til að „leikmönnum verði visað af leikvelli fyrir gróf um- mæli”... án áminningar. Á þessu má sjá aö þetta vandamáler ekki sérvandamál okkar. Að sjálfsögðu munu islenskir dómarar taka þetta til gaumgæfitegrar athugunar á næstu ráðstefnusinni.en eins og gefur að skilja geta þessar á- kvarðanir nefndarinnar haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir knattspymuna hérlendis þvisvo forhertir eru einstakir ieUimam við dómara aö e.t.v. þyrftu sum félög að eiga heilt varaiið til að keppa þegar stjörnur þeirra taka út leikbönn. Hér er mjög alvarlegt mál á ferðinni og engin ástæða fyrir forustumenn eöa leikmann, að ætla að dómarar fari ekki eftir samþykktum Alþjóðanefndar, en hún likist hæstarétti i túlkun á knattspyrnulögunum. Það yrði skaðlegt fyrir islenska knattspyrnu ef ekki yrði farið eftir ákvörðunum hennar. t sama fréttabréfi segir frá Alþjóðanefnd... „að dómarar hafi rétt tilað gefa leikmönnum á varamannabekk spjöld á meðan á leUi stendur telji þeir þá hafa unnið tU þeirra.” Það ergreinilegt þegarlitið er yfir liðið keppnistimabil, að eitt aðalmál vetrarins til Urlausnar, er framkoma leikmanna við dómara. Ég tel vist að dómarar muni ræða það niður i kjölinn, það sama verða Ieikmennirnir að gera ásamt þjálfurum og öðrum sem stjörna liðum i keppni. Það er nauðsynlegt að þessir aðUar skilji að dómarar skila sinu hlutverki eftir bestu getu, en þeim kann að vera mis- lagðar hendur eins og leik- mönnum. Ég tel það vangá hlutaöeig- andi, að kenna dómurum um tap eða jafntefli og ala þannig upp i leikmönnum, sérstaklega yngri flokka, andUð á þeim mönnum, sem taka að sér hlut- verk dómara. Mér er kunnugt um að það viðhorf hefur rikt hjá einstökum mönnum langt fram eftir aldri, að dómarar séu upp til hópa andsnúnir þeirra félagi i stað þess að leita orsaka getu- leysisins hjá leikmönnum fé- lagsins. Ég vona að breyting verði á þessu samstarfi dómara og leik- manna á leikvelli á næsta leik- ári og um ókomna framtíð. Grétar Norðfjörð

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.