Tíminn - 18.09.1981, Qupperneq 23

Tíminn - 18.09.1981, Qupperneq 23
Föstudagur 18. september 1981 f lokksstarf ið Austurlandskjördæmi Tómas Arnason, viðskiptaráðherra, og Halldór Asgrimsson, alþingismaður halda aimennan fund á Reyðarfirði föstudaginn 18. september ki. 21.00. Ailir velkomnir. Aðalfundur Framsóknarfélags Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu verðurhaldinn 19.sept. nk. kl.láiLionshúsinu Stykkishólmi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Alþingismennirnir Alexander Stefánsson og Davið Aðalsteinsson mæta á fundinn. Trúnaðarmenn félaganna eru hvattir til að mæta. Stjórnin Aðalfundur FUF i Reykjavik verður haldinn miðvikudaginn 30. sept. kl.20.30 að Hótel Heklu Rauðarárstig 18. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnarinnar 2. Lagabreytingar 3. Kosning stjórnar og fulltrúaráðs * 4. önnur mál Ath. Tillögur um stjórn og fulltrúaráð skulu berast eigi siðar en vikú fyrir aðalfund. Mætum öll stundvislega Stjórnin Launþegar Vesturlandskjördæmi Launþegaráð framsóknarmanna Vesturlandskjördæmi heldur fund i Snorrabúð Borgarnesi sunnudaginn 20. sept. og hefst hann kl. 14. A fundinum mætir Steingrimur Hermannsson ráðherra og formaður Framsóknarflokksins og mun hann ræða um efnahags- og atvinnumál. Aiit stuðningsfólk Framsóknarflokksins i launþegahreyf- ingunni er velkomið á fundinn. Framsóknarfélag Garðabæjar og Bessa- staðahrepps Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn að Goðatúni 2, fimmtudaginn 24. sept. kl. 8.30. Rætt verður um bæjarmálefnin. Stjórnin. Evrópumeistarar Celtic frá 1967 hingað 20. sept. Leika á sunnudag f Keflavík við T,Stjörnulid” Hemma Gunn ■ Sá merki knattspyrnuvið- burður mun eiga sér stað nú á sunnudaginn, að Evrópumeist- arar skoska liðsins Celtic frá þvi 1967 (8 þeirra) munu koma hingaö til lands og leika við ,,Stjörnulið” Hermanns Gunnars- sonar á grasvellinum i Keflavik kl. 15 á sunnudag. Celtic varð Evrópumeistari eftir að sigra Inter Milan i' úr- slitaleiknum iLissabon2 -1. Báðir þeir sem skoruðu. Chalmers og Gemmill verða með i förinni. Hinir sem voru i Evrópumeist- araliðinu og eru með i förinni eru þeir McNeill, Clark, Auld, John- stone, Lennox og Craig. Núverandi landsliðseinvaldur Skota verður einnig með i ftx-inni, en það er Jock Stein, sem var framkvæmdastjóri Celtic 1967. Það ár vann Celtic alla þá titla sem þaðkepptium og hlaut nafn- bótina „Besta félagslið heims”. Það kepptim.a. við RacingClub i Uruguay og varð þaö allsögu- frægur leikur, þar sem 6 leik- menn voru reknir útaf og þar af 4 Skotar, en þeir eru allir með i förinni hingað til lands. Þess má að lokum geta til gamans að i „Stjörnuliði” Her- manns Gunnarssonar verða 7 Keflvikingar, sem allir gerðu garðinnfrægan á sinum timameð Kefla vikurliðinu. Aður en leikur- inn hefst á sunnudag, verða fjöl- breytt skemmtiatriði á knatt- spyrnuvellinum i Keflavik. —AB Firmakeppni KR í knattspyrnu nú um helgina ■ Hin árlega firma- og stofnana- keppni KR hefst laugardaginn 19. september næstkomandi. Firma- keppni KR hefur sem kunnugt er skipað sér sess sem stærsta keppni sinnar tegundar hér á landi og fjöldi þátttökuliða skiptir tugum. Vinsældir keppninnar má hiklaust rekja til íyrirkomulags hennar, þar sem liðin eru einung- is skipuð sjö leikmönnum og er leikiö i 2xÍ5 minútur þvert á venjulegan völi. Ennfremur er fyrirtækjum gert kleift að nota sumarstarfsmenn i keppnina. Áformað er að ljúka undan- keppninni helgina 19./20. septem- ber og úrslitakeppnin fer siðan fram helgina '26./27. september. Kennarar Kennara vantar að héraðskóianum að Reykjum, Hrútafirði. Kennslugreinar: Stærðfræði og íþróttir pilta. Upplýsingar hjá skólastjóra i sima 95-1001 eða 95-1000. 23 meðal annarra orða ■ Halldór Sigurðsson flytur ávarp sitt við opnun brúarinnar. Brú á Hvalfjörð ■ Fyrir nokkrum árum lét einn af málgefuari þingmönnum sjálfstæðisflokksins það út úr sér þegar rætt var um vitlausa og óarðbæra mebferb rikisfjármuna að hann hefði nú ekki einu sinni kjark til að tala um Borgarf jarðarbrú. Hann átti vist við, bless- aður maðurinn, að svona fráleit væri þessi framkvæmd. En brúin var nú samt vigð á sunnudaginn var. Að vigja hana nú var að visu hálf ankannalegt fyrir okkur, sem höfum ekið hana á annað ár en vissulega hefur mikið veriö gert i sumar við endanlegan frágang, lagningu slitlags og nú vantar ekkert nema götu (brúar) lýsingu, Eina langa þing- mannsæfi Þessi brú er fyrst og fremst verk eins manns, Halldórs E. Sigurðssonar. Það leið aldar- fjórðungur frá þvi að hann flutti fyrst þingsályktunartil- lögu um byggingu brúar yfir Borgarfjörð og þar til að hann klippti á borðann. Þessi fram- kvæmd tók þannig eina langa þingmannsæfi. Fyrst var litið á tillögur Halldórs um brúar- bygginguna á þann hátt að menn brostu góðiátlega i laum og sögðu að þarna værf nú al- deilis á ferðinni tillaga sem háttvirtur þingmaöur flytti i þeim tilgangieinum að snobba og sýnast fyrir kjósendum sin- um, Mýramönnunum. Siðan liðu ár og urðu að ára- tug og smám saman rann það upp fyrir samþingsmönnum að háttvirtum þingmanni væri alvara. Að hann vildi raun- verulega leggja i þessa miklu framkvæmd. Það varð siðan i ráðherratiö Halldórs að málin komust á verulegt skrið. Órökstudd gagnrýni Þá fór gagnrýnin á fram- kvæmdinaafstaðfyrir alvöru. Og hún var af ýmsum toga spunnin. Og ekki mátti miklu muna um tima að fram- kvæmdin kafnaði i mótmælun- um. Ein helsta röksemdin var sú að það væri engin hemja i þvi að byggja svona stóra brú fyrir svona litið þorp, Borgar- nes. Það var eins og fólk gerði sér enga grein fyrir þvi að þarna var um að ræða lram- kvæmd á aðalbraut þjóðarinn- ar, hringveginum, sem var til leiöarstyttingar og þæginda- auka fyrir vestlendinga, snæ- fellinga, vestfirðinga og norð- lendinga , 8-30 km. eítir áfangastað. Og það var lika eins og úrtölumenn gerðu sér enga grein fyrir þvi að ef brúin væri ekki byggð þyrfti að endurbyggja veginn fyrir botn Borgarfjarðar og brúa þrjár ár i leiðinni, þar á meðal Hvitá. Brú á Hvalfjörð Við brúarbygginguna hafa islenskir vegagerðarmenn öðlast reynslu sem ekki má falla i gléymsku. Og mikil verkefni blasa við i brúargerð. Talað hefur verið um brú á ósa ölfusár. Sá er að visu munurinn á þeirri fram- kvæmd og Borgarfjarðarbrú, að Ósabrú er ekki á hringveg- inum og nýtist þvi ekki nema tiltölulega fáum. Mest heillandi verkefni i brúargerð er hins vegar brú yfir Hvalfjörð. Og engin vega- eða brúargerð hefði meiri áhrif á „strúktúr” vegakerfis- ins. Slik brú hefði áhrif á gifurlega marga þætti i þjóð- félaginu. Þá yrði jafn langt frá Reykjavik til Akraness og nú er til Keflavikur og litið lengra til Borgarness. Og þorpin á Snæfellsnesi yrðu i svipaðri fjarlægð frá Reykjavik og Borgarnes er nú. Og leiðin Akureyri —Reykjavik ekin á 4-5 timum. Brú á Hvalfjörð er risavaxin framkvæmd en ekki ófram- kvæmanleg. Og hvaða þing- maður ætlar að leggja eina langa þingmannsæfi i það« verkefni? Haukur Ingibergsson, skrifar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.