Fréttablaðið - 05.02.2008, Side 41
ÞRIÐJUDAGUR 5. febrúar 2008 25
Fallegir ullarinniskór
prjónaðir af Handprjóna-
sambandi Íslands hafa selst
vel síðan þeir voru auglýstir
í netverslun hljómsveitar-
innar Amiina fyrir tæpu
ári.
„Þeir hafa verið að seljast mjög
vel. Við getum samt ekki verið
með þetta í jafnmiklu upplagi og
við myndum vilja, því þetta er
prjónað af konum á vegum Hand-
prjónasambandsins hérna heima
og þær eru margar að gera þetta í
„aukadjobbum“ eða bara á kvöld-
in,“ segir María Huld Markan Sig-
fúsdóttir úr Amiina, en inniskórn-
ir hafa selst í um eitt hundrað
eintökum. „Þannig að það er ekki
hægt að selja þetta í massaupplagi
en þeir hafa selst vel, sérstaklega
fyrir jólin. Við erum búnar að fá
myndir af einhverjum skoskum
ömmum í ullarskóm,“ segir
hún og hlær. „Þetta er rosa-
lega praktískt. Þetta eru í
rauninni inniskór og ullar-
sokkar í einu. Þetta er hlýtt
og gott, enda úr íslenskum
plötulopa.“
Vinsæl viskastykki
Viskastykki með myndum af þeim
Amiina-stúlkum hafa einnig selst
vel í netversluninni. „Það eru
margir sem kaupa þau til að nota,
hengja upp á vegg eða hafa sem
dúk. Þau hafa rokið út, okkur til
mikillar skemmtunar,“ segir
María, en hönnuður þeirra er Egill
Kalevi Karlsson, sem hefur unnið
náið með stúlkunum undanfarin
ár. „Þau hafa selst í nálægt þúsund
eintökum og eru ekki búin að vera
lengi í sölu. Við höfum farið með
þau út með okkur og þau rjúka út
eins og heitar lummur.“
Hægt er að nálgast bæði inni-
skóna og viskastykkin, auk annars
varnings, í gegnum heimasíðuna
myspace.com/amiina.
Spila í Belgíu og Sviss
Framundan hjá Amiinu eru tón-
leikar á listahátíð í Belgíu 15.
febrúar þar sem einnig koma fram
Jóhann Jóhannsson, Seabear og
Ólafur Arnalds. Daginn eftir spil-
ar sveitin síðan á tónlistarhátíð í
Sviss og í vor spilar hún á Lista-
hátíð í Reykjavík.
Sveitin er þegar byrjuð að safna
efni í nýja plötu sem mun fylgja
eftir frumburðinum Kurr sem
kom út á síðasta ári við góðar
undirtektir.
freyr@frettabladid.is
Ullarinniskórnir seljast vel
ULLARINNISKÓR Ullarinniskór Amiinu eru
seldir bæði í rauðum og grænum lit.
AMIINA Hljómsveitin Amiina selur ullarinniskó á netinu.
Sylvester Stallone ætlar að
leikstýra og fara með aðalhlut-
verkin í tveimur nýjum hasar-
myndum. Framleiðendurnir
verða þeir sömu og framleiddu
fjórðu myndina um stríðshetjuna
Rambo, sem hefur fengið góðar
viðtökur í Bandaríkjunum.
Flestir héldu að ferill Stallone
væri á hraðri niðurleið eftir að
hann lék í myndinni Spy Kids 3D:
Game Over og fylgdi henni síðan
á eftir með hinum lítt vinsælu
raunveruleikaþáttum The
Contender. Síðan þá hefur
kappinn sent frá sér Rocky
Balboa og Rambo sem hafa báðar
hitt rækilega í mark vestanhafs.
Tvær myndir
frá Stallone
SYLVESTER STALLONE Vöðvabúntið
mikla er með tvær nýjar hasarmyndir í
undirbúningi.
Áttunda plata tónlistarmannsins
Jack Johnson, Sleep Through the
Static, er komin út. Johnson, sem
gaf út sína fyrstu plötu árið 2001,
var áður þekktur sem brimbretta-
maður og er margverðlaunaður
sem slíkur. Eftir að hann ákvað að
snúa sér að tónlistinni hefur hann
selt plötur sínar í yfir fimmtán
milljónum eintaka.
Johnson er einnig kvikmynda-
gerðarmaður og á að baki
myndirnar September Sessions
og Thicker Than Water. Að auk er
hann mikill umhverfisverndar-
sinni og var nýja platan til að
mynda tekin upp með 100%
sólarorku. Fyrsta smáskífulag
plötunnar nefnist If I Had Eyes
og er þegar tekið að hljóma í
útvarpi.
Johnson með
nýja plötu
JACK JOHNSON Tónlistarmaðurinn Jack
Johnson hefur gefið út plötuna Sleep
Through the Static.