Fréttablaðið - 05.02.2008, Page 42
26 5. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
BADMINTON Ragna Ingólfsdóttir
lauk keppni á alþjóða badminton-
mótinu Iran Fajr þegar hún beið
lægri hlut gegn Morshahliza
Baharum frá Malasíu í átta
manna úrslitum í Teheran í gær.
Baharum vann fyrstu lotuna 18-
21 en Ragna kom svo gríðarlega
sterk til baka í annarri lotu og
sigraði 21-10. Í oddalotunni
sigraði svo Baharum 21-19 en hún
er af mörgum talin þriðja besta
einleikskona Malasíu. - óþ
Ragna Ingólfsdóttir, TBR:
Tapaði í gær
ÓHEPPIN Ragna tapaði naumlega gegn
Morshaliza Baharum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Aðalfundur 2007
Aðalfundur Íþróttafélagsins Fylkis og allra deilda þess verður haldinn í
Fylkishöll þriðjudaginn 19. febrúar 2008 kl. 20.30.
Dagskrá;
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Stjórn Íþróttafélagsins Fylkis
> Króatísk stelpa í Hamar
Kvennalið Hamars hefur fengið liðstyrk í Iceland Express-
deild kvenna í körfubolta því króatíski leikstjórnandinn
Iva Milevoj er á leiðinni til liðsins. Milevoj er 23 ára gömul
og 173 cm á hæð en hún lék með Winthrop-háskólanum
þar sem hún var með 9,6 stig, 6,2 stoðsendingar og 2,2
stolna bolta í leik á sínu síðasta ári. Ari Gunnars-
son, þjálfari Hamars, vonast til að hér sé
sterkur leikmaður. „Þetta er búið að vera erfitt
tímabil fyrir stelpurnar og mér finnst margir
af ósigrunum hafa komið út af því að
þær hafi ekki alveg trú á því að þær geti
unnið. Mig langar að sýna stelpunum að
það vanti lítið upp á og þessi leikmaður
á að hjálpa okkur í því,“ sagði Ari.
Kristinn Jónasson og félagar í Fjölni tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleik
Lýsingarbikars karla með ótrúlegum endaspretti gegn Skallagrími í
Borgarnesi á sunnudagskvöldið. „Ég heyrði það bara eftir leikinn
að Hlynur Bæringsson hefði verið eitthvað voðalega spennt-
ur fyrir Vesturlandsslag en það verður bara alvöruslagur í
staðinn,“ sagði Kristinn í léttum tón og bætti við: „Góðir
leikmenn stíga upp þegar á þá reynir og ég var búinn að
vera rólegur í þessum leik og ekki að reyna mikið. Maður
tók bara smá kipp í fjórða leikhluta,” sagði Kristinn sem
skoraði 9 stig á síðustu fimm mínútum leiksins þegar
Fjölnir breytti stöðunni 78-65 fyrir Skallagrím í 83-85 sigur.
„Taktíkin var að fara inn á Sean Knitter inn í teig.
Það er erfitt að stoppa hann því hann er með
frábærar hreyfingar. Þeir voru að tvöfalda á hann
sem opnaði fyrir alla hina,“ segir Kristinn sem
jafnaði leikinn með þriggja stiga körfu þegar 50
sekúndur voru eftir.
„Þegar ég setti þristinn niður í lokin þá vissi
ég ekkert hver staðan var í leiknum því ég var
ekkert að pæla í því. Það var enginn í mér og ég lét vaða. Svo leit ég
bara á klukkuna og sá að það var orðið jafnt,“ segir Kristinn.
Það er búið að ganga á ýmsu og nú síðast skipti liðið enn á
ný um erlenda leikmenn. „Þetta er búið að vera ógeðslega
erfitt í vetur. Við erum búnir að vera mikið meiddir og svo
höfum við allaf verið að fá nýja og nýja útlendinga,“ sagði
Kristinn sem leist ekkert alltof vel á breytingarnar fyrst. „Ég
varð fyrir smá vonbrigðum fyrst því það var sárt að sjá eftir
Karlton Mims því mér fannst hann vera frábær leikmaður
og við vorum líka góðir félagar. Það sem skiptir máli er að við
vinnum og það var ekki að ganga með Mims,“ segir Kristinn.
„Vonandi er þetta að smella hjá okkur núna en við
ætlum samt að reyna að klára þetta sterkt og koma
okkur í úrslitakeppnina,“ sagði Kristinn og hann er
ekkert smeykur við að mæta Skallagrími aftur á
fimmtudaginn. „Við flengjum Skallana bara aftur
á heimavelli á fimmtudaginn því við ætlum ekki
að tapa fleiri leikjum á heimavelli í vetur,“ sagði
Kristinn að lokum.
KRISTINN JÓNASSON FJÖLNISMAÐUR: SKORAÐI NÍU STIG Á SÍÐUSTU FIMM MÍNÚTUM Í UNDANÚRSLITALEIKNUM
Vissi ekkert hver staðan var í leiknum
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
tapaði í gær 0-1 fyrir Möltu í
öðrum leik sínum á Möltumótinu
og hefur þar með tapað fyrstu
þremur leikjum sínum undir
stjórn Ólafs Jóhannessonar.
Möltumenn voru hættulegri í
fyrri hálfleik og sigurmarkið í
leiknum kom strax á 18. mínútu
þegar Cleavon Frendo skoraði
með skoti frá vítateig sem var
óverjandi fyrir Fjalar Þorgeirsson
í íslenska markinu.
Á síðasta hálftímanum sköpuðu
íslensku leikmennirnir nokkur
marktækifæri en náðu ekki að
nýta þau. Meðal annars björguðu
Möltumenn einu sinni á marklínu
en Ólafur Jóhannesson þarf enn
að bíða eftir fyrsta marki Íslands
síðan að hann tók við liðinu.
„Ég er hundfúll með þennan
leik. Við vorum daprir og ekki
nógu góðir í þessum leik og heilt
yfir var þetta óásættanleg frammi-
staða hjá okkur og við getum ekki
sætt okkur við þetta,“ sagði
harðorður landsliðsþjálfari Ólafur
Johannesson eftir leik í gær.
„Fyrri hálfleikur hjá okkur var
ömurlegur og við gerðum nánast
ekki neitt. Liðið hresstist í seinni
hálfleik og var þá öllu líflegra. Við
náðum góðri pressu á þá síðustu
20 mínúturnar án þess að fá afger-
andi færi,“ sagði Ólafur.
„Möltuliðið var svona svipað lið
og við, ekkert verra en ekkert
betra heldur. Um leið og þeir kom-
ust yfir reyndu þeir að halda sínu
og tefja og lögðust til baka enda
voru þeir undir sama hatti og við
því það var langt síðan að þeir
hafa unnið leik,“ sagði Ólafur og
bætir við.
„Ég er búinn að vera með liðið í
þrjá leiki og við höfum ekki ennþá
skorað mark en vonandi rætist úr
því. Við mætum Armenum á mið-
vikudaginn. Þeir hafa unnið báða
leiki sína og eru með hörkulið en
við eigum að geta sýnt betri
frammistöðu en við gerðum í þess-
um leik. Við spiluðum mun betur á
móti Hvít-Rússunum en við breytt-
um um leikskipulag frá þeim leik
og fórum hærra upp á völlinn og
ætluðum að pressa hærra,“ sagði
Ólafur.
Ólafur gerði átta breytingar á
byrjunarliðinu frá því í tapleikn-
um á móti Hvíta-Rússlandi. Það
voru einungis þeir Birkir Már
Sævarsson, Atli Sveinn Þórarins-
son og Bjarni Guðjónsson sem
héldu sæti sínu en Bjarni tók
auk þess við fyrirliðabandinu
af Stefáni Gíslasyni og fór úr
miðverðinum inn á miðjuna.
Inn í liðið komu þeir Fjalar
Þorgeirsson, Hjálmar Jóns-
son, Ragnar Sigurðsson,
Davíð Þór Viðarsson, Pálmi
Rafn Pálmason, Baldur
Aðalsteinsson, Eyj-
ólfur Héðinsson
og Gunnar
Heiðar Þor-
valdsson.
Stefán
Gíslason
(fyrir
Ragnar)
og Helgi
Sig-
urðs-
son
(fyrir
Baldur)
komu inn
á í hálf-
leik og í þeim
síðari skipti Ólafur þeim Tryggva
(fyrir Eyjólf) og Jónasi Guðna
Sævarssyni (fyrir Gunnar Heiðar)
inn á völlinn.
Armenar unnu Hvít-Rússa 2-1 í
hinum leik riðilsins en þeir verða
einmitt mótherjar Íslands í
lokaleiknum á miðviku-
daginn. Vyacheslav
Hleb, bróðir Alex-
anders hjá Arsenal,
kom Hvít-Rússum
yfir á 5. mínútur en
þeir Ararat Arakel-
yan og Ara Hakoby-
an tryggðu Armen-
um sigurinn.
ooj@frettabladid.is
Hundfúll með frammistöðuna í gær
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tapaði öðrum leiknum í röð á Möltumótinu í gær þegar liðið lá með einu
marki fyrir heimamönnum. Landsliðsþjálfarinn segir frammistöðuna hafa verið óásættanlega.
ÞRJÚ TÖP Ólaf-
ur Jóhannes-
son bíður
enn eftir
fyrsta
markinu.
NYHED-
SAVISEN/
MARTIN
SYLVEST