Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 18
18 8. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
taekni@frettabladid.is
Vefurinn: Todoist
Skipuleggðu líf þitt betur með því að búa til
„to do“ lista. Láttu Todoist svo minna þig á
hlutina.
www.todoist.com
Tæknin brúar bilið
Tæknin hjálpar til við að minnka bilið á milli fátækra og
ríkra þjóða, samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna.
Farsímar og nettengingar hafa meðal annars ýtt undir
framfarir og bætt efnahagslífið í fátækari löndum á borð við
Úganda, Senegal og Kenía. Þó er varað við of mikilli bjart-
sýni; þróunarlönd séu ríkari þjóðum enn langt að baki.
Hnýta saman sæstrengi
Viðgerðamenn hafa hafist handa við að laga sæstrengina
tvo í Miðjarðarhafinu sem skemmdust í síðustu viku. Búist
er við að það taki um það bil viku að lappa upp á strengina,
en skemmdirnar ollu miklum truflunum á netsambandi í
Mið-Austurlöndum og Indlandi. Enn er ekki vitað hvað varð til
þess að strengirnir slitnuðu.
Eining eða óeining?
Vísindamenn gætu þurft að endurskilgreina mælieininguna „stjarnfræðileg
eining“ áður en langt um líður vegna breytinga sem verða á sólinni. Einingin,
sem er skammstöfuð AU, er meðalvegalengdin milli sólar og jarðar og stendur
í 149.597.870,691 kílómetrum. Formlega skilgreiningin er þó mun flóknari, og
notar meðal annars massa sólarinnar sem fer stöðugt minnkandi.
Nánar tiltekið um sex milljarða kílógramma á hverri sekúndu.
Beðið eftir Nukem
Godot tölvuleikjanna, Duke Nukem Forever, fékk útgáfudag
í stutta stund í gær. Í dagblaðinu Dallas Business Journal
var hann sagður eiga að koma út í desember á þessu ári,
og var vitnað í talsmann framleiðandans, 3D Realms.
Samkvæmt fréttatilkynningu sem forstjórinn George
Broussard skrifaði og birti á spjallborði 3D Realms var
þessi frétt hins vegar röng. Duke Nukem Forever hafi enn
engan útgáfudag fengið. Aðdáendur Duke þurfa því að
hinkra aðeins lengur eftir leiknum, sem átti upphaflega
að koma út árið 1998.
Nú árar vel fyrir tölvuleikjaunnendur. Á síðasta ári fengum við að njóta frábærra leikja á
borð við Mass Effect, Bioshock, Skate, Halo 3, Super Mario Galaxy og Uncharted: Drake‘s
Fortune, og allt stefnir í að þetta ár verði enn betra. Fréttablaðið skoðaði fimm áhuga-
verða leiki sem eiga að koma út á árinu.
Lengi getur gott batnað
Hver: Löngu tímabært framhald einna vinsælustu
hlutverkjaleikja allra tíma: Fallout og Fallout 2. Hefur
verið frestað og frestað, en er nú loksins við það að
koma út.
Um hvað: Sem fyrr gerist leikurinn í Bandaríkjunum
eftir kjarnorkustyrjöld. Einn daginn vaknar aðal per-
sónan upp við það að faðir hans er horfinn úr kjarn-
orkubyrginu þar sem þeir feðgar bjuggu, og yfirgefur
sjálfur byrgið í leit að honum. Hlutverkaleikur með
hasarívafi.
Hvað er nýtt: Breytt bardagakerfi, nýtt umhverfi,
spánný grafíkvél. Hægt að spila leikinn í fyrstu per-
sónu sjónarhorni.
Hvenær: Kemur út í haust fyrir Xbox 360, PlayStation
3 og Windows.
FALLOUT 3
Hver: Fjórði leikurinn í Metal Gear Solid-leikjaröðinni
eftir Hideo Kojima, og sá fyrsti sem kemur út á Play-
Station 3.
Um hvað: Gerist árið 2014, þegar algengt er orðið
að málaliðar heyi stríð fyrir hönd stórfyrirtækja. Sem
fyrr stjórnar spilarinn Solid Snake, sem er sendur til
Mið-Austurlanda í þeim tilgangi að knésetja yfirmann
stærsta málaliðafyrirtækisins. Það gerir hann með því
að læðast um, fela sig og drepa hljóðlaust.
Hvað er nýtt: Mun betri grafík, enda kom síðasti leikur-
inn í seríunni út á PlayStation 2. Nýjar persónur, breytt
umhverfi, nýr felubúningur og ýmislegt fleira.
Hvenær: Kemur út á öðrum ársfjórðungi fyrir Play-
Station 3 leikjatölvuna.
METAL GEAR SOLID 4
Hver: Nýjasti leikurinn frá Will Wright, manninum á bak
við SimCity og The Sims. Líklega sá metnaðarfyllsti sem
sést hefur um árabil.
Um hvað: Eins konar líf-hermir þar sem spilarinn hann-
ar lífveru og fylgir henni eftir allt frá örverustiginu og
þar til tegundin leggur undir sig önnur sólkerfi. Hægt er
að stýra hverju einasta smáatriði í hönnun skepnunnar,
til dæmis lit, fjölda útlima og augna, stærð, styrk og
hraða.
Hvað er nýtt: Allt. Spilunin skiptist í fimm hluta sem
hver spilast eins og allt annar leikur. Án efa óvenjuleg-
asti leikur ársins.
Hvenær: Hefur ekki fengið staðfestan útgáfudag, en
kemur út fyrir lok ársins á Windows og Mac OS X.
SPORE
Hver: Þriðji leikurinn í Super Smash Bros. bardagaleikja-
seríunni frá Nintendo. Sá fyrsti sem kemur út á Wii.
Um hvað: Óhefðbundinn slagsmálaleikur þar sem
gamlar og nýjar tölvuleikjapersónur berjast hver við
aðra. Meðal persóna sem koma við sögu eru Mario,
Luigi og Yoshi úr Super Mario-leikjunum, Samus úr
Metroid-leikjunum og Link úr Zelda-leikjaseríunni.
Hvað er nýtt: Hægt verður að spila sem Snake úr
Metal Gear Solid-leikjunum, Sonic úr samnefndum
leikjum og Pit úr Kid Icarus-leikjaseríunni. Bætt grafík
og netspilun.
Hvenær: Kominn í búðir í Japan en kemur út síðar á
árinu í Evrópu fyrir Wii-leikjatölvuna.
SUPER SMASH BROS. BRAWL
Hver: Níundi leikurinn í hinni vinsælu og
ofbeldisfullu Grand Theft Auto leikjaröð. Sá
fyrsti sem kemur út á leikjatölvum þessarar
kynslóðar.
Um hvað: Aðalpersónan Nikolai Bellic flytur
til Liberty City (sem er nákvæm eftirlíking
af New York) frá heimalandi sínu í Austur-
Evrópu til að upplifa ameríska drauminn.
Draumurinn verður að martröð þegar hann
er látinn ganga í glæpasamtök og verður að
drepa mann og annan til að komast af.
Hvað er nýtt: Stórendurbætt grafíkvél, net-
spilun, fjölbreyttari borg, nýtt miðunarkerfi
fyrir vopn og margt fleira.
Hvenær: Kemur út 29. apríl fyrir Xbox 360
og PlayStation 3.
GRAND THEFT AUTO IV
International studies
in Denmark?
Computer Science (2¼ years)
Systems designer, Programmer, IT consultant, Project mana-
ger, Systems administrator.
Marketing Management (2 years)
Marketing coordinator, Advertising consultant, Account mana-
ger, Purchasing assistant.
Multimedia Design and Communication (2 years)
Web designer, Web developer, Multimedia consultant, Media
planner, Event manager.
Higher education academy programmes. Direct qualifications
for employment or 1 year top-up to become a bachelor.
Information meeting, 15 February at 17
Hilton Reykjavik Nordica
Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavik
www.aabc.dk/english
Nýherji hélt ráðstefnu um helstu strauma
og stefnur í upplýsingatækni á Hilton-hót-
elinu í Reykjavík í gær. Meðal fyrirlesara
voru stjórnendur frá erlendu upplýsinga-
tæknifyrirtækjunum Gartner og Avaya.
„Á þessari ráðstefnu var verið að fjalla
um mikilvægi upplýsingatækni í þróun
á viðskiptalíkönum og í viðskiptum,“
segir Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja.
„Upplýsingatækni er að verða mikilvægt
bakland í rekstri fyrirtækja en ekki bara
einhver tölvudeild. Þarna var verið að
draga þessa staðreynd upp og fara yfir
hvernig upplýsingatæknideildirnar geti
staðið undir þeim kröfum og væntingum
sem gerðar eru til þeirra.“
Þórður segir annað umræðuefni á
ráðstefnunni hafa verið samþætt sam-
skipti. „Það er lykilatriði til að starfsmenn
geti verið virkari í sínum
störfum að samþætta
sam skiptakerfin þannig að
þeir geti til dæmis sent símtöl
úr borðsíma í farsíma eða
svarað tölvupósti úr farsíma,“
segir hann. „Þetta er allt saman
spurning um að þú komist inn
í póst-, bókhalds- og þjónustu-
kerfin hvar sem er.“
Um 150 manns sóttu
ráðstefnuna, flestir
yfirmenn úr upplýs-
ingatæknideildum
fyrirtækja. „Hérna voru
framkvæmdastjór-
ar úr öllum helstu
fyrirtækjum,“ segir
Þórður. Hann kvaðst
ánægður með mætinguna.
Aðspurður hvað honum hafi
þótt áhugaverðast á ráðstefn-
unni nefnir Þórður fyrirlestur
Mary Mesaglio, þróunarstjóra
hjá Gartner. „Svo fannst mér líka
sérstaklega áhugavert að heyra í
Peter Hannaford, viðskiptaþróunar-
stjóra hjá fyrirtækinu APC, um
orkunotkun í tölvurýmum
og gagnaverum, og
hvernig sé hægt að
hagræða því.“
TÆKNISPJALL: ÞÓRÐUR SVERRISSON, FORSTJÓRI NÝHERJA
Ræddu um strauma og stefnur í upplýsingatækni