Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 74
42 8. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar í N1-deild kvenna, hefur nú afplánað tæplega tveggja mánaða bann sem hann var dæmdur í af aganefnd HSÍ eftir ummæli sem hann lét falla í fjölmiðlum eftir leik Stjörnunnar og Fram hinn 6. desember síðastliðinn. Aðalsteinn verður því í eldlínunni á ný þegar Stjarnan heimsækir Val í gríðarlega mikilvægum leik í toppbaráttu N-1 deildarinnar í Voda- fone-höllinni að Hlíðarenda kl. 20.15 í kvöld. „Ég er mjög spenntur að koma til baka og þetta verður hörkuleikur á milli tveggja góðra liða og von- andi verðum við betra liðið. Þessi leikur er gríðarlega mikilvægur þar sem bæði liðin vita að liðið sem vinnur leikinn nálgast Fram-liðið, sem er vitanlega í bílstjórasætinu eins og er,“ sagði Aðalsteinn sem kvað bannið hafa verið erfitt að eiga við. „Ég hafði aldrei misst úr leik áður, þannig að þetta er ekki búinn að vera auðveldur tími. Það er ef til vill dálítið erfitt að lýsa þessu fyrir þeim sem þekkja ekki þessa tilfinningu, en þetta er kannski eins og að horfa á árekstur gerast á 10 km hraða og geta ekkert gert til að stoppa hann,“ sagði Aðalsteinn sem er búinn að vera ánægður með gengi Stjörnustúlknanna í fjarveru sinni. „Ragnar Hermannsson hefur verið að leysa mig af undanfarið og er búinn að gera mjög góða hluti og það er alveg spurn- ing hvort að ég eigi yfirhöfuð nokkuð að fara aftur á bekkinn,“ sagði Aðalsteinn í léttum dúr en hann getur þó ekki neitað því að vera enn pirraður yfir banninu. „Þetta er náttúrlega lengsta bann í máli af þessari tegund þannig að ég kærði úrskurðinn til dómstóls HSÍ sem úrskurðaði að taka ætti fyrir efnislega meðferð málsins þar sem ákveðnir vankantar hefðu verið á. Áfrýjunardómstóll vísaði málinu hins vegar frá og ályktaði að meðferð málsins hefði verið eðlileg. Ég er ekki búinn að ákveða hvað ég geri í framhaldinu þar sem ég er búinn að afplána mitt bann, en er að velta fyrir mér hvort ég eigi að fara með málið fyrir Alþjóðlega íþróttadómstólinn eða jafn- vel almennan dómstól,“ sagði Aðalsteinn að lokum. AÐALSTEINN EYJÓLFSSON ÞJÁLFARI: STÝRIR LOKS STJÖRNUNNI GEGN VAL Í KVÖLD EFTIR AÐ HAFA AFPLÁNAÐ BANN Gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði liðin > Gunnar kominn til baka Körfuknattleikskappinn Gunnar Einarsson lék með Keflavík á nýjan leik gegn ÍR í gærkvöldi. Gunnar hefur ekkert æft með Keflavík síðustu daga og alls kyns orðrómur var uppi um ástæður þess að hann væri ekki lengur að æfa. Flestar sögusagnirn- ar virðast hafa verið byggðar á sandi því Gunnar virðist eingöngu hafa tekið sér stutta hvíld eins og Keflvíkingar héldu fram allan tímann. N1-deild karla í handbolta Stjarnan-Valur 27-28 (14-16) Mörk Stjörnunnar (skot): Volodymyr Kysil 6 (6), Vilhjálmur Ingi Halldórsson 5 (7/1), Ólafur Víðir Ólafsson 5 (9/1), Patrekur Jóhannesson 3 (4), Heimir Örn Árnason 3/2 (7/3), Kristján S. Kristjánsson 2 (4). Varin skot: Hlynur Morthens 17/1 (43/5), 40%, Styrmir Sigurðsson 1/1 (3/2), 33%. Fiskuð víti: 6 (Heimir Örn 2, Ólafur Víðir 2, Volodymyr, Kristján). Hraðaupphlaup: 4 (Volodymyr 2, Vilhjálmur, Patrekur). Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Vals (skot): Baldvin Þorsteinsson 7/3 (10/4), Arnór Þór Gunnarsson 6/3 (11/4), Kristj- án Þór Karlsson 3 (4), Ernir Hrafn Arnarson 3 (6), Sigurður Eggertsson 3 (8), Ingvar Árnason 2 (2), Elvar Friðriksson 2 (4), Fannar Þór Friðgeirsson 1 (3), Sigfús Páll Sigfússon 1 (3). Varin skot: Pálmar Pétursson 20/2 (47/6), 43%. Fiskuð víti: 8 (Sigfús Páll 5, Sigurður, Ingvar, Ernir). Hraðaupphlaup: 8 (Baldvin 4, Arnór Þór 2, Sigurður, Kristján). Utan vallar: 8 mínútur. Iceland Express deild karla Njarðvík-KR 97-106 Fjölnir-Skallagrímur 66-79 Stig Fjölnis: Sean Knitter 27 (13 frák.), Anthony Drejaj 10, Pete Strobl 9, Kristinn Jónasson 6, Níels Páll Dungal 4, Helgi Hrafn Þorláksson 4, Árni Þór Jónsson 2, Tryggvi Pálsson 2, Hjalti Þór Vilhjálmsson 2 Stig Skallagríms: Milojica Zekovic 30, Darrell Flake 23 (16 frák.), Alan Fall 14 (11 stoðs., 10 frák.), Florian Miftari 11, Hafþór Ingi Gunnarsson 2, Pétur Már Sigurðsson 1. ÍR-Keflavík 77-88 Stig ÍR: Sveinbjörn Claessen 17, Hreggviður Magnússon 15, Nate Brown 13 , Ómar Sævars- son 11, Tahirou Sani 11, Steinar Arason 7, Eiríkur Önundarson 3 Stig Keflavíkur: Bobby Walker 20, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 18, Tommy Johnson 13, Arnar Freyr Jónsson 10, Anthony Susnjara 10, Þröstur Jóhannsson 4, Jón Norðdal Hafsteinsson 4, Magnús Þór Gunnarsson 4, Vilhjálmur Stein- arsson , Gunnar Einarsson 2. STAÐAN: 1. Keflavík 16 14 2 1479:1316 28 2. KR 16 13 3 1461:1360 26 3. Grindavík 15 11 4 1372:1312 22 4. Skallagrímur 16 10 6 1342:1309 20 5. Njarðvík 16 9 7 1416:1292 18 6. Snæfell 15 7 8 1292:1263 14 7. ÍR 16 6 10 1349:1386 12 8. Tindastóll 15 6 9 1312:1366 12 9. Stjarnan 15 5 10 1232:1299 10 10. Þór A. 15 5 10 1288:1449 10 11. Fjölnir 16 4 12 1261:1379 8 12. Hamar 15 3 12 1126:1199 6 ÚRSLITIN Í GÆR FÓTBOLTI Stjórn ensku úrvalsdeild- arinnar í fótbolta hefur ákveðið að skoða nánar möguleikann á að lengja tímabilið úr 38 umferðum í 39 umferðir og myndu þessir tíu aukaleikir verða leiknir utan Englands. Samkvæmt heimildum BBC Sport munu forráðamenn allra tuttugu liðanna í úrvals- deildinni hafa samþykkt að skoða þennan möguleika nánar í gær. Talið er að þessir tíu aukaleikir verði ákvarðaðir með drætti þar sem fimm efstu liðin geti ekki mæst innbyrðis en leikvellir verði svo ákveðnir eftir því hvaða borgir bjóði mest og best. Tillagan er vitanlega enn á umræðustigi og ekki þykir líklegt að eitthvað verði ákveðið að fullu fyrir lok deildarinnar í maí, en talið er að mögulegar breytingar gætu tekið gildi tímabilið 2010- 2011. - óþ Enska úrvalsdeildin: Aukaleikir leiknir erlendis? KÖRFUBOLTI Það fór allt á annan endann í NBA-deildinni þegar spurðist út að Shaquille O´Neal væri farinn til Phoenix Suns fyrir þá Shawn Marion og Marcus Banks. Shaq var himinlifandi með flutninginn enda kominn í eitt besta lið deildarinnar sem mun keppa um titilinn. „Ég vil gera aðra leikmenn í kringum mig betri. Ég hef trú á því að ég hafi það sem þarf til að koma þessu liði alla leið,“ sagði Shaq en hann brosti allan hringinn er áhorfendur í Phoenix tóku vel á móti honum. Skiptin komu gjörsamlega öllum í opna skjöldu og ekki síst leikmönnum Phoenix. „Þessir síðustu 24 tímar hafa verið lyginni líkastir og maður fer í gegnum mikinn tilfinninga- rússibana,“ sagði Steve Nash, stórstjarna Suns. - hbg Shaq fór til Phoenix Suns: Shaq lofar titli ÞAÐ KEMUR HRINGUR Shaq er farinn að lofa meistarahring í Phoenix en hann á sjálfur þrjá slíka. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KÖRFUBOLTI Fimm leikir áttu að fara fram í Iceland Express-deild karla í gær en tveim var frestað vegna veðurs. Keflavík heldur toppsætinu eftir sigur á ÍR og Skallagrímur kom fram hefndum gegn Fjölni í Grafarvogi. Svo voru mikil átök er KR sótti sigur í Ljóna- gryfjuna. Njarðvíkingar voru mjög daprir gegn Snæ- fell á dögunum en það var allt annað upp á teningnum í gær þegar þeir byrjuðu leikinn á móti KR af gríðarlegum krafti. Þeir spiluðu fyrri hálfleikinn hreint frábærlega og leiddu með fimmtán stigum í leikhléi, 61-46. Íslandsmeistararnir tóku heldur betur við sér í þriðja leikhluta sem þeir áttu með húð og hári. Þeir söxuðu jafnt og þétt á forskot Njarð- víkinga og komust loks yfir, 78-79, er nokkrar sekúndur voru eftir af þriðja leikhluta. Allur meðbyr var með KR-ingum á meðan Njarðvíkurliðið hreinlega molnaði í sundur. KR náði fljótt frumkvæðinu í fjórða leikhluta, var mikið grimmara í öllum aðgerðum og vann að lokum sanngjarnan baráttusigur, 97- 106. Skallagrímsmenn komu fram hefndum gegn Fjölnismönnum og unnu sannfærandi 13 stiga sigur, 66-79, í Grafarvogi í gær. Skalla- grímur var með forskotið allan tímann en Fjölnisliðið var þó allan tímann inn í leiknum þrátt fyrir allt annað en sannfærandi frammi- stöðu. Milojica Zekovic kom með 30 stig inn af bekknum og Alan Fall náði þrefaldri tvennu. Flake var með 21 stig og 16 fráköst og lék vel þegar hann kom aftur inn í leikinn í lokin. Sean Knitter var í sérflokki hjá Fjölni en miklu munaði um að Anthony Drejaj fann sig ekki og klikkaði á 11 af 14 skotum sínum. Keflvíkingar unnu 11 stiga sigur í Selja- skóla, 77-88, eftir að hafa lent átta stigum undir í öðrum leikhluta. Keflavík svaraði með því að vinna næstu 20 mínútur 53-26 og kom- ast í 54-73 og eftir það var ljóst hvernig leik- urinn færi. Með sigrinum halda Keflvíkinga tveggja stiga forskoti á toppnum. - hbg / - óój Keflavík heldur toppsætinu í Iceland Express-deild karla og KR lagði Njarðvík í Ljónagryfjunni: Ótrúlegur baráttusigur hjá KR í Njarðvík BARÁTTA KR-ingurinn Helgi Már Magnússon tekur hér á Brenton Birmingham. MYND/VÍKURFRÉTTIR HANDBOLTI Valur vann Stjörnuna 27-28 í toppbaráttuleik N1-deildar karla í Mýrinni í gærkvöld. Leik- urinn var í járnum framan af þar sem liðin skiptust á að skora og staðan var jöfn 5-5 eftir tíu mínútur. Þá small allt í einu vörn og markvarsla hjá Valsmönnum og þeir keyrðu yfir Stjörnumenn með vel útfærðum hraðaupphlaupum þar sem Baldvin Þorsteinsson fór á kostum. Valur náði mest fjög- urra marka forystu, í stöðunni 8- 12, en hélt svo tveggja til þriggja marka mun út megnið af hálfleikn- um og staðan var 14-16 fyrir Val í hálfleik. Stjörnumenn komu grimmir til leiks í síðari hálfleik og náðu að jafna leikinn 18-18 í fyrsta skipti síðan í stöðunni 5-5. Valsmenn voru þó fljótir að koma sér í bíl- stjórasætið á ný með fjórum mörk- um í röð. Stjörnumenn héldu elt- ingarleiknum áfram og náðu að minnka muninn niður í eitt mark á lokakaflanum 26-27 en Fannar Þór Friðgeirsson innsiglaði sigur Vals- manna með marki þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum. Stjörnumenn skoruðu síðasta markið en það dugði skammt og Valur vann góðan sigur 27-28. Óskar Bjarni Óskarsson, þjálf- ari Vals, var afar sáttur með sína menn. „Mér fannst við ferskari í kvöld en við höfum verið og vörn- in og Pálmar í markinu voru að skila góðri vinnu og ég er stoltur af mínu liði. Við vorum að keyra góð hraðaupphlaup en ég vil fá meira af því að við tökum hraða miðju þar sem við erum með hraða stráka. Þetta snýst um sjálfstraust og nú erum við komn- ir að fullu í toppbaráttuna með tveimur góðum sigrum í síðustu leikjum,“ sagði Óskar ánægður. Kristján Halldórsson, þjálfari Stjörnunnar, var ekki eins kátur. „Við vorum bara ekki nógu ein- beittir og menn hafa bara haldið að þetta væri eitthvað sjálfgefið eftir góðan sigur í síðasta leik. Það eru nóg af stigum eftir í barátt- unni en við verðum að bæta okkar leik ef við ætlum okkur eitthvað, það er alveg ljóst,“ sagði Kristján. omar@frettabladid.is Valsmenn hafa ekki sagt sitt síðasta orð í deildinni Íslandsmeistarar Vals halda áfram að hleypa Íslandsmótinu í háaloft en eins marks sigur þeirra á Stjörnunni, 27-28, í gær kemur þeim í baráttuna á fullu. VARNARMÚR Valsmaðurinn Sigfús Páll Sigfússon reynir hér að brjótast í gegnum þéttan varnarmúr Stjörnumanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.