Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 12
12 8. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
VIÐSKIPTI „Núverandi vaxtastefna
Seðlabanka – eins og hún var kynnt
í síðustu Peningamálum – er nær
örugg leið að mjög harðri lendingu
og hættulega nærri fjármálaóstöð-
ugleika ef henni er haldið til streitu
við núverandi aðstæður,“ segir
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður
greiningardeildar Kaupþings.
Kaupþing kynnti í gær hagspá
greiningardeildar bankans fyrir
árin 2008 til 2010 undir heitinu
„Efnahagshorfur að vetri“. Ásgeir
fór sérstaklega yfir væntingar til
næstu stýrivaxtaákvörðunar Seðla-
bankans, en hennar er að vænta á
fimmtudaginn kemur. Hann segir
hlutabréfamarkað og lausafjár-
markað vera ármenn í hagkerfinu
og marki fyrir hagsveiflum. Á eftir
fylgi svo fasteignamarkaður og
loks raunhagkerfið. Ásgeir segir
þróun í hagkerfinu mjög hraða nú
vegna áhrifa erlendis frá. Hann
segir lækkun eignaverðs, aukið
skuldatryggingarálag (CDS) og
almennan óróleika á erlendum
lausafjármörkuðum nú leggjast
svo þungt á eina sveif með mjög
háum stýrivöxtum hér að raun-
veruleg hætta sé á brotlendingu
hagkerfisins. „Í öllu falli ætti
núverandi staða að gefa Seðla-
banka Íslands færi á því að fara að
fordæmi erlendra seðlabanka og
lækka vexti án þess að glata trú-
verðugleika sínum eða virðingu á
markaði.“
Í kynningu Ásdísar Kristjáns-
dóttur á hagspá bankans kemur
raunar fram að gert sé ráð fyrir
breyttum stýrivaxtaferli hjá
Seðlabankanum og að lækkunar-
ferlið hefjist þegar á næsta vaxta-
ákvörðunardegi 14. þessa mánað-
ar, eða að öðrum kosti í apríl. Gert
er ráð fyrir að stýrivextirnir
standi í 9,75 prósentum í lok árs,
en þeir eru nú 13,75 prósent.
„Hagspá okkar frá því í október
hefur breyst mjög mikið frá síð-
ustu spá okkar í október,“ segir
Ásdís og kveður þar koma til mjög
breyttar aðstæður þar sem undir-
málslánakrísan hafi dýpkað á
erlendum mörkuðum. „Við gerum
nú ráð fyrir hraðari kólnun og
dýpri niðursveiflu en við hðfðum
áður gert ráð fyrir.“
Ásdís segir ljóst að peningalegt
aðhald verði áfram til staðar meðan
stýrivextir haldist háir og áhættu-
álag á skuldabréf bankana verði í
núverandi stigi. „Við gerum ráð
fyrir að þjóðarútgjöld dragist
saman og að bakslag myndist í hag-
vexti. Samhliða því sem viðsnún-
ingur verður í utanríkisviðskiptum
gerum við ráð fyrir að viðskipta-
sem og vöruskiptahallinn dragist
hratt saman út spátímabilið.“
Kólnun segir Ásdís þegar hafna
á fasteignamarkaði og gerir grein-
ingardeildin í spá sinni ráð fyrir að
fasteignaverð taki að lækka í lok
þessa árs. Þá er gert ráð fyrir veik-
ingu krónunnar á árinu samhliða
lækkun stýrivaxta þótt vaxtamun-
ur við útlönd styðji áfram við hana.
Um mitt ár er gengisvísitölunni
spáð í 136 stig en að hún styrkist
lítillega undir lok ársins.
Ásdís segir verðbólgu munu
hjaðna hratt eftir því sem fast-
eignaverð taki að lækka og nú megi
gera ráð fyrir því að húsnæðislið-
urinn vinni á móti verðbólgu á
þessu og næsta ári. olikr@frettabladid.is
Efnahagslífið
kólnar hratt
Lækkun á fasteignamarkaði er spáð á seinni hluta
þessa árs. Efnahagslífið er á hraðri leið til kólnunar.
Útflutningsverðmæti áls verður á næsta ári í fyrsta sinn meira en verðmæti
sjávarafurða. Í nýrri hagspá greiningardeildar Kaupþings er gert ráð fyrir að
útflutningsverðmæti áls aukist úr rúmum 80 milljörðum króna í um 135
milljarða á þessu ári og fari í um 140 milljarða á árinu 2009. Þá hefur áhrif
niðurskurður í aflaheimildum.
Gert er ráð fyrir samdrætti á þessu ári en endurnýjaður hagvöxtur taki við á
næsta ári. Hann verði drifinn áfram af viðsnúningi í utanríkisviðskiptum, þar
sem álútflutningur aukist og innflutningur dragist saman í takt við minnkandi
útgjöld þjóðarinnar.
ÁL Í FYRSTA SINN VERÐMÆTARA SJÁVARAFURÐUM
STJÓRNSÝSLA Ný stofnun, Bygg-
ingarstofnun, tekur til starfa 1.
júní, samkvæmt frumvarpi
um hverfis ráðherra um mann-
virki.
Stofnunin tekur yfir starfsemi
Brunamálastofnunar auk fjölda
annarra verkefna sem vistuð eru
í öðrum stofnunum eða ráðu-
neytum. Má þar nefna eftirlit
með öryggi raforkuvirkjana,
neysluveitna og raffanga í mann-
virkjum sem og eftirlit með
lyftum og viðskiptum með bygg-
ingarvörur. Þá verða aðgengis-
mál á könnu stofnunarinnar.
Lög um mannvirki sem, sam-
kvæmt frumvarpinu, eiga að taka
gildi 1. janúar 2009 ná yfir ýmsar
framkvæmdir sem áður hafa
verið undanþegnar byggingar-
leyfi. Á það við um virkjanir,
dreifi- og flutningskerfi veitna,
mannvirki á hafi utan sveitar-
félagamarka og mannvirki á flug-
vallarsvæði og fyrrum varnar-
svæði Keflavíkurflugvallar.
Starfsemi Byggingarstofnunar
verður fjármögnuð með sérstöku
byggingaröryggisgjaldi sem
stofn að verður til á grunni bruna-
varnagjalds sem kostar starfsemi
Brunamálastofnunar. Leggst
gjaldið ofan á brunatryggingar
fasteigna.
- bþs
Byggingarstofnun tekur yfir starfsemi Brunamálastofnunar og ýmis önnur verkefni:
Ný stofnun hefur störf 1. júní
BRUNAMÁLASTOFNUN Verði frumvarp
umhverfisráðherra að lögum verður
Byggingarstofnun til á grunni Bruna-
málastofnunar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Landlæknir mun sjá um
útgáfu starfsleyfa heilbrigðis-
stétta í stað ráðuneytis, sam-
kvæmt frumvarpi sem Guðlaugur
Þór Þórðarson heilbrigðisráð-
herra hefur mælt fyrir á Alþingi.
Í ræðu sagði hann þessa
breytingu eðlilega þar sem um
væri að ræða dæmigerða
starfsemi stofnunar og ekki
ráðuneytis. Annars staðar á
Norðurlöndunum væri þessi
háttur hafður á.
Frumvarpið er hluti af tveggja
ára áætlun ráðuneytisins um
aðgerðir til einföldunar á
opinberum reglum og stjórnsýslu.
- sþs
Guðlaugur Þór Þórðarson:
Landlæknir sjái
um starfsleyfin
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
RV Unique örtrefjaræstikerfið
- hagkvæmt, vistvænt og mannvænt
Nánari upplýsingar
veita sölumenn og ráðgjafar RV
Bodil Fur,
sölumaður hjá
RV Unique í Danmörku
UniFlex II H Fiber ræstivagn
RV
U
N
IQ
U
E
02
08
02
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/AU
Ð
U
N
N
EFNAHAGSHORFUR AÐ VETRI
Ásgeir Jónsson, forstöðumað-
ur greiningardeildar Kaup-
þings, og Ásdís Kristjánsdóttir
sérfræðingur kynntu nýjustu
hagspá deildarinnar í gær.
Horfurnar gefa tilefni til lækk-
unar vaxta Seðlabankans fyrr
en áður hefur verið spáð.
HJÓLAÐ Í BOGOTA Hjólreiðamenn á
ferð um breiðgötu í höfuðborg Kól-
umbíu á „Bíllausum degi“ í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP