Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 48
12 • FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 T il að draga fram fegurðina í andlitinu er nauðsynlegt að skyggja andlitið og gefa því ákveðna dýpt um leið. Björg Al- freðsdóttir, verslunarstjóri MAC í Smáralind, segir að nýja „Sculp and Shape“-línan frá fyrirtæk- inu sé alger himnasending. Hún samanstendur af tvískiptu púðri, ljósu og dökku. Hún segir að það sé mjög auðvelt að móta andlit- ið, aðeins þurfi farða í réttum lit, púður í ljósari lit en húðin sjálf og svo annað dekkra púður til að skyggja og móta andlitið. „Gott er að hafa dekkri litinn tveim- ur til þremur tónum dekkri svo skyggingin verði ekki ónáttúru- leg,“ segir Björg. Dökki liturinn er notaður til að minnka og dýpka hlutföllin í andlitinu. Ljósari lit- urinn er hins vegar notaður til að draga fram fegurðina og lyfta andlitinu upp um nokkur þrep. Til að gera kinnbeinin enn þá lögulegri og fegurri er dökki liturinn sett- ur undir þau. Það er mjög gott að nota skáskorinn bursta, til dæmis bursta no. 169, og svo er ljósi liturinn borinn ofan á kinnbeinin alveg að gagnauganu. Ljósi liturinn er einnig settur undir augabrúnirnar til að lyfta þeim upp. Það er þó alls ekki nóg að móta bara kinnbein og augnsvæði því nebbinn má ekki gleymast. Til að móta nefið er ákaflega gott að nota bursta no. 223. Björg segir að það sé best að byrja við augabrún- ina og draga mjúka línu frá aug- anu og niður að nefinu. Skygging- in á nefinu verður að vera silki- mjúk svo hún klúðrist ekki því ekki viljum við verða eins og sebrahestar í framan. „Til að fá fyllri varir er ljós litur ef til vill með smá sanseringu borinn ofan á efri brún vara og hann látinn ná aðeins inn á húðina. Varalitur eða gloss er svo bor- inn á,“ segir Björg. Fyrir þær sem finnst þær vera með of mikla undirhöku er töfralausn- in sú að bera dökka litinn rétt undir kjálkabeinið og undir hök- una. Þegar þetta er gert er gott að hafa skáskorna burstann við hönd- ina. Einnig er hægt að skyggja að- eins niður hálsinn, en þið verðið að gæta þess vel að hafa skygging- una mjög mjúka svo þetta verði ekki ónáttúrulegt og klúðurslegt. martamaria@365.is Lærðu að móta andlitið án þess að líta út eins og sebrahestur Samspil ljóss skugga& Flott tvenna Með því að nota bæði ljóst og dökkt púður er hægt að grenna andlitið eða láta stórt nef virka minna. Þ eir sem fæddust á miðju diskótímabil- inu þekkja ekkert annað en að glossað- ar varir, permanett og ilmvatnsský séu sjálfsagður hluti af tilverunni. Og eftir því sem aldurinn færist yfir verður snyrti- dótssafnið alltaf vígalegra og vígalegra. Það þarf sértól í baugafelarann, annan bursta í meikið og þriðju græjuna í augnskuggann og auðvitað verður maður að eiga allt svo lúkk- ið sé í lagi. Ég er ekkert öðruvísi en aðrar konur, ég elska að eiga fínt snyrti dót og fæ alveg fiðring í magann þegar ég heyri af ein- hverju nýju. Það er líka eitthvað heillandi við það að geta skellt einhverju í andlitið á sér til að fela það sem undir er. Ég elska líka þegar mér eru kennd einhver leynitrix sem stuðla að huggulegra útliti án þess að það fari út í öfgar. Eitt af uppáhaldsförð- unartrixunum mínum lærði ég í Vindáshlíð þegar ég var tíu ára en það gekk út á að setja svartan blýant inn í augnkrókinn. Þetta ráð þótti það alsvalasta á sínum tíma en datt svo algerlega úr tísku. Þeir sem notuðu þetta á tíunda áratugnum voru algerlega í ruglinu. En á dögunum rann það upp fyrir mér að þetta gamla „Vindáshlíðartrend“ væri ekki svo galið, sérstaklega í tímaskorti. Þótt ég sé ginnkeypt fyrir nýjungum og langi alltaf í eitthvað þá er ég mjög fastheldin þegar kemur að meiki og möskurum. Ég vil að meik- ið sé næstum því ósýnilegt, slétti bara úr misfellunum, og maskarinn verður að þykkja svo mikið og lengja að maður hafi helst ekki undan að þurrka hann burt af augnbeininu. Það er heldur ekkert langt síðan ég byrjaði að nota meik nánast daglega. Um daginn vorum við hjónin stödd í fjölskyldubílnum þegar hann hafði orð á því hvað ég væri farin að mála mig mikið. Mig langaði helst til að henda honum út úr bílnum á ferð. Ég ákvað þó að hemja skap mitt áður en ég hreytti því út úr mér að það hefði verið fyrir tíma barneigna, andvökunótta, endalausra bón- usferða og þrifa á allt of mörgum fermetrum. Svo útskýrði ég fyrir honum að þegar konur svæfu aldrei heila nótt þyrftu þær að hafa ein- hver töfratól við höndina. Allavega ef maður vildi ekki láta skipta sér út fyrir nýrra módel. Honum fannst þetta að sjálfsögðu alger vitleysa því hann veit ekki muninn á maskara og augnskugga og kallar þetta allt „meik“. Þótt meikið sé miklu meira notað núna er ekki þar með sagt að maður eyði meiri tími í herlegheitin. Ó nei, helsti förðunarstaðurinn er nefnilega í bíln- um á leiðinni í vinnuna og þetta gerir það að verk- um að snyrtibuddan er nánast alltaf á milli sætanna, sem fer ansi mikið í taugarnar á sumum. Auðvitað reynir maður að mála sig bara á ljósunum en stund- um er maður ósjálfrátt með annað augað á götunni og hitt í speglinum, aðra hönd á stýri og með meikbursta í hinni. Það versnar hins vegar í því þegar síminn hringir á sama tíma. Ég er alltaf jafn sæl fyrir að það séu ekki til lög sem banna manni að „meika“ sig á ferð. Þá myndi allt fara í klessu. Vel meikuð á rúntinum Marta María Jónasdóttir martamaria@365.is útlit smáatriðin skipta öllu máli • Ekki bera á þig brúnkukrem samdægurs. Þú veist aldrei hvað getur gerst og það er ekki gaman að vera flekkótt í framan á árshátíðinni bara af því þú ætlaðir að vera svo fín. • Ekki fara í förðun til einhvers sem hefur ekki málað þig áður. • Ekki taka snyrtibudduna með þér á árshá- tíðina. Eftir því sem drykkjunum fjölgar eiga sumar það til að bæta alltaf á farðann í hvert skipti sem þær fara á klósettið. Í lok kvöldsins er allt komið í óefni. • Ekki fara berfætt ef þér finnst þú ekki vera með nógu brúna og flotta leggi. Voðinn er vís þegar konur fara að meika yfir ör eða misföllur á löppunum á sér. • Maður meikar ekki á sér handleggina. • Of mikil málning er ekki lykillinn að flottu út- liti. Gættu þess að fara ekki yfir strikið á árshátíðinni MEIK ER EKKI BARA MEIK Þessi snilld frá Clinique sléttar úr misfellum og lætur andlitið glóa af fegurð. GLÆRT GLOSS FRÁ CLINIQUE BJARGAR MÁLUNUM Í KULDANUM Það er bæði nærandi fyrir var- irnar og gefur þeim fallega áferð. KINNALITUR KEMUR TIL BJARGAR Berðu bleikan eða appelsínugulan kinnalit á þig til fá frísklegt útlit. Kinnalitirnir frá Bobbi Brown eru alls ekki of glannalegir en gera þó sitt gagn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.