Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 64
8. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
Auglýsingasími
– Mest lesið
Í kvöld kl. 20 verða í Salnum í
Kópavogi tónleikar með hljóð-
færahópnum Adapter og Ásgerði
Júníusdóttur, mezzósópransöng-
konu. Þau flytja tónlist eftir Jo
Kondo, Bunita Marcus, Atla Ing-
ólfsson, Davíð Brynjar Franzson
og Toru Takemitsu. Tónleikarnir
kallast „Music For Japan“ og er
það tilvísun í titil tónverks eftir
bandaríska tónskáldið Bunita
Marcus sem verður á efnisskrá
tónleikanna. Hópinn skipa þau
Kristjana Helgadóttir flautur,
Ingólfur Vilhjálmsson klarinettur,
Gunnhildur Einarsdóttir harpa,
Marc Tritschler píanó, Matthias
Engler slagverk og stjórnandi er
Manuel Nawri. Frekari upplýsing-
ar um hópinn og verkefni kvölds-
ins má finna á heimasíðu hópsins:
www.adapter.is. Tónleikarnir eru
hluti af dagskrá Myrkra músik-
daga. - pbb
Adapter í Salnum
TÓNLIST Ásgerður Júníusdóttir mezzo-
sópran kemur fram með Adapter í kvöld.
Merkilegir tónleikar fara fram í Grafarvogskirkju
kl. 17 á morgun. Þá kemur þar fram hinn heims-
þekkti fiðluleikari Shlomo Mintz og leikur allar 24
Caprísur Niccolo Paganini. Tónleikarnir eru liður í
tónleikaför Mintz í tilefni fimmtugsafmælis hans.
Þess er vert að geta að þetta er í fyrsta skipti sem
Caprísurnar hljóma í heild sinni í lifandi flutningi á
Íslandi og því ætti tónlistaráhugafólk ekki að láta
tónleikana framhjá sér fara.
Hinar 24 Caprísur ítalska tónskáldsins og fiðlu-
snillingsins Niccolo Paganini teljast tvímælalaust
meðal hátinda rómantískrar fiðlutónlistar enda
innihalda þær nánast allar þær tæknibrellur sem
hægt er að framkvæma á hljóðfærið. Svo ógurleg
var færni Paganinis á fiðluna að sá orðrómur komst
á kreik að hann hefði selt djöflinum sál sína. Ekki er
líklegt að Caprísurnar hafi gert mikið til að draga úr
kjaftasögunum þar sem þær eru svo meistaralega
samdar.
Shlomo Mintz er einn þekktasti fiðluleikari heims
í dag. Hann stundaði nám meðal annars hjá Isaac
Stern og hóf einleikaraferil sinn ellefu ára gamall
með Fílharmóníusveitinni í Ísrael. Stuttu síðar var
hann beðinn um að hlaupa í skarðið fyrir Itzhak
Perlman í Fiðlukonsert nr. 1 eftir Paganini undir
stjórn Zubins Metha. Hann hefur nú í fjóra áratugi
ferðast vítt og breitt um heiminn bæði sem hljóm-
sveitarstjóri og fiðluleikari og haldið ótal tónleika í
öllum þekktustu tónleikasölum heims.
Miðaverð á tónleikana er 4.000 kr. - vþ
Fiðlusnillingur í Grafarvogi
SHLOMO MINTZ. Kemur fram á tónleikum í Grafarvogskirkju
á morgun.
ARI JÓNS: söngur, trommur
SVENNI GUÐJÓNS: söngur, hljómborð
FINNBOGI KJARTANS: söngur, bassi
GÚI RINGSTED: söngur, gítar
SIGGI PEREZ: söngur, saxafónn, slagverk
Föstudags- og laugardagskvöld
Vegna fjölda áskorana endurtökum við gamla dansstuðið
Skilaboðaskjóðan
eftir Þorvald Þorsteinsson
Ævintýrasöngleikur fyrir alla fjöskylduna
sun. 10/2 kl. 14 uppselt
Vígaguðinn e. Yasminu Reza
fös. 8/2, lau. 9/2 örfá sæti laus
Ívanov eftir Anton Tsjekhov
Leikstjórn og aðlögun: Baltasar Kormákur
Uppselt í febrúar!!
„Þau eru frábær,
öll fjögur … Þetta er
hörkugóð sýning...“
Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is
Baðstofan
eftir Hugleik Dagsson
Frumsýning 9/2 – Sun 10/2 uppselt
Opið hús á Vetrarhátíð!
Fjör fyrir alla fjölskylduna
Laugardaginn 9/2 milli 13-16
kynnið ykkur dagskrána á www.leikhusid.is
27. febrúar
28. febrúar
2.mars