Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 6
6 8. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
09
96
0
2
/0
8
TILBOÐ 7.–15. FEBRÚAR
+ Nánari upplýsingar og bókanir á
www.icelandair.is eða í síma 50 50 100
* Innifalið í verði: Flug aðra leið og flugvallarskattar. Ferðatímabil: 2. maí–31. des.
TORO
NTO
Verð
frá 19
.920 k
r.*
BORGARMÁL „Ég efast ekki um að
einhver muni gera það,“ segir
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri
þegar hann var spurður hvort
einhver ætti ekki að axla ábyrgð
vegna REI-málsins. „En ég vil
ekki tjá mig frekar um það,“
bætti hann svo við.
Hann sagði að REI-málið sýni
að taki verði upp nýja stjórnar-
hætti hjá borginni. „Og ég efast
ekkert um það að undir minni
stjórn verði viðhafin opin og
heiðarleg vinnubrögð,“ segir
hann.
Hann fagnaði því að samstaða
hefði náðst um málið hjá stýri-
hópnum og ítrekaði að hann hefði
ekki átt nokkurn þátt í því
verklagi sem gagnrýnt var í
skýrslunni. Hann vildi ekki svara
því hvort Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson ætti að segja af sér
vegna málsins. - jse
Ólafur F. Magnússon:
Einhver mun
axla ábyrgð
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON BORGARSTJÓRI
Einhver mun axla ábyrgð, borgarstjórinn
efast ekkert um það. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þekkir þú einhvern sem glímir
við tölvufíkn?
Já 45%
Nei 55%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
að segja af sér í kjölfar skýrslu
stýrihópsins um REI?
Segðu skoðun þína á visir.is
BORGARMÁL Lokaskýrsla stýrihóps
um málefni REI og Orkuveitu
Reykjavíkur var kynnt á borgar-
ráðsfundi í gær. Svandís Svavars-
dóttir, formaður stýrihópsins,
sagði þegar hún kom af borgar-
ráðsfundinum að það mætti draga
mikinn pólitískan lærdóm af
skýrslunni. „REI-málið er ákall
frá almenningi til stjórnmála-
manna að viðhafa heiðarleg og
opin vinnubrögð. Það var það sem
gekk fram af almenningi þegar
hann sá hvað pólitíkin getur leitt
menn langt í því að fara á svig við
eðlilegar reglur og eðlileg vinnu-
brögð, fara á svig við opna og
klára umræðu sem almenningur á
rétt á. Við erum sammála um þetta
og að lærdómur af skýrslu stýri-
hópsins megi ekki fara ofan í
skúffu.“
Svandís sagði að sá lærdómur
sem dreginn yrði af þessum máli
myndi verða yfirfærður á allar
nefndir og svið Reykjavíkurborg-
ar sem og hjá stofnunum borgar-
innar eins og Strætó, Faxaflóa-
höfnum og Sorpu.
Meðal þess sem Svandís sagði
að nefndarmenn væru sammála
um að væri gagnrýnisvert við
stjórnsýslu í REI-málinu var: „Í
fyrsta lagi höfum við ekki fengið
neina útskýringu á því hvað olli
þeim hraða sem var á ferlinu þó
svo að við höfum fengið ýmsar
vísbendingar um hvað hafi verið
þar á ferðinni. Eins var umboð
einstaklinga mjög óljóst svo ekki
sé fastar að orði kveðið, samráð
var fyrir borð borið og upplýs-
ingagjöf var mjög takmörkuð.“
Einnig sagði hún aðkomu FL-
Group óeðlilega með meira móti.
Orðalagi í lokaskýrslunni hefur
verið breytt frá vinnuskýrslunni
sem Fréttablaðið sagði frá í gær
en öll meginatriðin standa þó
óbreytt.
„Það sem eru mestu tímamótin í
þessu plaggi er að við skyldum ná
um þetta skýrri samstöðu,“ sagði
Svandís. „Það sitja við borðið í
þessum hópi fólk sem eru miklir
snillingar en sannarlega fólk sem
er ekki sammála. Það eru mikil
tímamót að geta leitt þetta allt til
lykta. Ekki aðeins tímamót í sögu
Reykjavíkur heldur einnig í sögu
íslenskra stjórnmála því það hefur
ekki gerst hingað til að samstöðu
sé náð með þessum hætti um þung
ágreiningsmál eins og þetta.“
Svandís sagði enn fremur að
skýrslan bæri þess merki að vera
sett saman af fólki úr mörgum
flokkum. „Við myndum tala öðru-
vísi hvert um sig ef við myndum
tjá okkur um málið,“ bætti hún
við. jse@frettabladid.is
Ákall almennings
um betri vinnubrögð
REI-málið sýnir hversu pólitíkin getur leitt menn langt í því að fara á svig
við eðlilegar reglur og vinnubrögð segir formaður stýrihóps um málefni REI.
Skýrslan var kynnt fyrir borgarráði í gær. Umboð einstaklinga var óljóst.
SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR FORMAÐUR STÝRIHÓPS UM MÁLEFNI REI OG ORKUVEITU
REYKJAVÍKUR Heilmikinn lærdóm má draga af REI-málinu og mun hann verða
yfirfærður á öll svið og stofnanir borgarinnar, segir Svandís Svavarsdóttir sem fór fyrir
stýrihópi um málefni REI og Orkuveitu Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BORGARMÁL Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson fyrrverandi
borgarstjóri segir að REI-málið
hafi veikt stöðu sína sem stjórn-
málamanns. „Auðvitað hefur
þetta veikt stöðu mína,“ sagði
hann eftir fund borgarráðs í gær.
„Þetta er búinn að vera erfiður
tími hjá mér, því er ekki að
leyna.“ Svo bætti hann við
klökkur, „en ég hef góða fjöl-
skyldu og sterk bein.“
Hann sagðist vel skilja
ákvörðun Björns Inga Hrafnsson-
ar um að hætta í stjórnmálum.
„Það er ekki skemmtilegt að
stunda pólitík þegar menn eru
bornir þungum ásökunum eins og
hann lenti í. Ég hef ekki lent í
slíku.“
Hann sagðist ætla að einbeita
sér að því að starfa vel fyrir
borgarbúa það sem eftir lifir
kjörtímabils. - jse
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson:
Málið hefur
tekið sinn toll
VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON Fyrr-
verandi borgarstjóri varð klökkur þegar
hann var spurður hvort REI-málið hefði
veikt stöðu hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BORGARMÁL Sigurður Líndal laga-
prófessor segir að heppilegra
hefði verið að óháð nefnd hefði
fjallað um málefni REI og Orku-
veitunnar. „Ef tilgangurinn var að
komast til botns í þessu máli hefði
verið heppilegra að hún hefði
verið skipuð óháðum aðilum sem
síðan hefðu kallað til þá menn er
málið varðar,“ segir Sigurður.
„Reyndar er ég ekki klár á því
hvaða hlutverki stýrihópurinn átti
að gegna en ég veit heldur ekki
hvað hópur sem skipaður væri
óháðum aðilum hefði ekki getað
gert betur en hópur sem skipaður
með þessum hætti.“
Spurður hvort hann teldi að
stýrihópnum hefði hugsanlega
verið ætlað að semja um ásættan-
lega niðurstöðu í þessu máli sem
hefði minnstar afleiðingar svaraði
hann, „ekki ætla ég mönnum að
það hafi verið tilgangurinn í upp-
hafi, það er hins vegar alltaf til-
hneigingin að málin þróist á þann
veginn þegar nefndir eru skipaðar
með þessum hætti.“
Um það álitamál hvort Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson hafði umboð
eða ekki til að semja um samruna
REI og Geysir Green Energy segir
hann, „ef það er minnsti vafi, ég
tala nú ekki um í stóru máli sem
þessu, þá leitar maður til umbjóð-
andans og þá á ég við hina fulltrú-
ana í borgarstjórn. Annað væri
afar óvarlegt.“ - jse
Lagaprófessor gagnrýnir framgang borgarstjórnar í REI-málinu:
Hefði átt að skipa óháða nefnd
SIGURÐUR
LÍNDAL LAGA-
PRÓFESSOR
Sigurður
segir það afar
óvarlegt hjá
fyrrverandi
borgarstjóra í
jafn stóru máli
sem REI-mál-
inu að leita
ekki álits hjá umbjóðendum sínum,
það er að segja hinum fulltrúum í
borgarráði, ef vafi lék á hvort hann
hafði umboð til að semja.
FÉLAGSMÁL Breiðholtshátíð – menningarhátíð eldri
borgara í Breiðholti hófst í heitu pottunum í
Breiðholtslauginni í fyrradag en þá voru dægur-
málin rædd meðan Þorvaldur Jónsson harmon-
ikkuleikari lék ljúfa tóna á sundlaugarbakkanum.
„Þetta er í þriðja sinn sem þessi hátíð er haldin
með þessu sniði,“ segir Guðrún Jónsdóttir,
forstöðumaður félagsstarfs í Gerðubergi. „Hún
stendur í fimm daga og hver dagur er með sína
yfirskrift.“ Þannig var dagurinn í gær með
yfirskriftina íþróttadagur eldri borgara enda var
spriklað í sundlauginni og svo í Austurbergi en
harmonikkuleikarinn var aldrei langt undan.
Dagurinn í dag ber yfirskriftina „Kynslóðirnar
saman í Breiðholti“ enda munu eldri borgarar
heimsækja leikskólann Hraunborg og rifja þar
upp bernsku sína. „Þó að þetta sé að nafninu til
hátíð eldri borgara er þetta í raun hátíð allra því
svona hátíð styrkir grenndarsamfélagið til
bættrar nærþjónustu,“ segir Guðrún.
Listamenn úr röðum eldri borgara munu setja
mark sitt á hátíðina en Skúli Gunnlaugsson frá
Miðfelli í Hrunamannahreppi er heiðursgestur
hennar og var opnuð sýning á verkum hans í
Árskógum í gær.
Á laugardag verður svo hátíðardagskrá í
Ráðhúsinu frá klukkan þrjú til sjö en þar mun
meðal annarra Kynslóðasveitin leika fyrir gesti
en meðlimir hennar eru úr fjórum ættliðum, sá
yngsti er á fermingaraldri og ber húðirnar.
- jse
Breiðholtshátíð, menningarhátíð eldri borgara hafin:
Eldri borgarar bregða á leik
STIGINN LÉTTUR DANS Eldri borgarar láta heldur betur til sín
taka þessa dagana meðan Breiðholtshátíðin stendur yfir. Fjöl-
margir atburðir fylgja hátíðarhöldunum en harmonikkuleikari
og þar með dansinn er aldrei langt undan.
LÖGREGLUMÁL „Það virðist við
hæfi að hvetja fólk til að keyra í
samræmi við aðstæður. Það
virðist eitthvað vanta upp á það.“
segir Arnar Rúnar Marteinsson
aðalavarðstjóri, en frá því átta í
gærmorgun til ellefu í gærkvöldi
var 41 árekstur tilkynntur til
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu. „Slíkur fjöldi sýnir okkur að
ekki eru allir sem taka tilit til
hálkunnar og ófærðarinnar sem
verið hefur síðustu daga,“ segir
Arnar og bætir við að fólk eigi
ekki að hætta sér út í umferðina
nema bílarnir séu búnir undir
vetrarakstur.„Við höfum jafnvel
séð bíla á sumardekkjum.“ - kdk
41 árekstur í borginni í gær:
Á sumardekkj-
um í hálku
KJÖRKASSINN