Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 70
38 8. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
„Ég er náttúrlega langsamlega fyrstur til að
slamma á Íslandi. Hef gert það langlengst allra
hér,“ segir Erpur Eyvindarson tónlistarmaður með
meiru.
Hann ætlar að slamma, eins og það heitir, á
Borgarskjalasafninu í Tryggvagötu af öllum
stöðum í kvöld á miðnætti. Þá er bara spurningin:
Hvað er þetta að slamma?
„Já, í mjög einföldu máli er það þegar bilið milli
rapps og ljóðalest-
urs er brúað.
Það besta af
hvoru-
tveggja.
Rappið
þarf að
flæða,
vera í
takti, þarf
að vera kraftmikið... fullt af reglum sem rappið
þarf að lúta en venjulegt ljóð þarf ekki að hlíta
neinu,“ segir rapparinn.
Aðspurður hvort hann ætli þá að fara með Bólu-
Hjálmar eða Stein Steinarr og undir nötrar
rapptónlistin segir Erpur svo ekki vera. Allt er
þetta frumsamið sem hann flytur. „Ég er voðalega
lítið í cover-bransanum.“
Erpur útskýrir jafnframt að „slammið“
eigi rætur að rekja til bítnikkanna og
djassskáldanna. „Guðfaðir slammsins er
Gil Scott-Heron. Hann var náttúrlega
með á nótunum hvað bítnikkarnir voru
að gera. Hans þekktasta dót er „Revolu-
tion will not be Televised“. Margvitnað í
það af slammliðinu, til dæmis af Söruh
Jones sem endurgerði ljóðið hans en þá
undir formerkjum femínismans.
Hljómar það: „Revolution will not
happen between these thighs.“ Og var
þá að vísa til þessarar áráttu rappara að
syngja helst bara um píkur og tippi.“
Það var og. Erpur ætlar einnig að
bjóða upp á tónlist, segist ætla að spila
nýtt dót og klassík. Hvurnig sem hann
svo skilgreinir klassík.
Af Erpi er það svo annað að frétta að
hann vinnur nú að sólóplötu sinni en er
að öðru leyti fastur í Laugardagslögun-
um þar sem hann blómstrar sem
álitsgjafi í Eurovision. Og þá er hann
byrjaður að æfa box af krafti.
„Já, en þetta er fitnessbox. Ég hef
ekki áhuga á
að berja
neinn.“
- jbg
folk@frettabladid.is
> HIÐ LJÚFA LÍF
Matthew McConaughey kann
að meta góðu hlutina í lífinu.
„Ég hef lagt hart að mér til að
geta átt mér þann lífsstíl og
búið á þannig stað að ég þurfi
hvorki að klæðast skyrtu né
skóm,“ sagði leikarinn ný-
lega, en það telst nánast til
tíðinda að hann sé ekki ber
að ofan á myndum.
Freestyle-keppni Tónabæjar, sem
átti að fara fram í dag, hefur verið
aflýst sökum lélegrar þátttöku.
„Okkur brá svolítið við þetta.
Keppnin hefur verið haldin í tut-
tugu og sjö ár, og það er alveg nýtt
af nálinni að það sé ekki næg
skráning,“ segir Inga Maren
Rúnarsdóttir, einn skipuleggjenda
keppninnar. Einungis fjórir ein-
staklingar og fjórir hópar skráðu
sig til leiks í ár.
„Við fórum að skoða mögulegar
ástæður fyrir þessu, og sáum að
fyrir nokkrum árum var 10-12 ára
flokkurinn í keppninni lagður
niður. Síðan hefur keppnin bara
verið fyrir áttunda, níunda og
tíunda bekk,“ útskýrir Inga, en
hana grunar að sú ákvörðun hafi
haft einhver áhrif, þar sem dans-
arar á keppnisaldri í dag hafi ekki
alist upp við freestyle-keppnina.
Inga Maren segir aðstandendur
keppninnar þó líta á björtu hliðarn-
ar og að þau hyggi nú á breytingar
á formi hennar. „Í ár hélt ég til
dæmis danssmiðju fyrir krakkana
sem varð mjög vinsæl, og við
munum byggja meira á því. Þá
verður töluvert stærri umgjörð í
kringum þetta. Tónabæ hefur lang-
að að breyta keppninni undanfarin
ár, og ég var fengin inn til að sjá
um það. Það virðist bara hafa verið
of seint til að ná í yngri deildina,“
segir Inga Maren. „Nú leggjumst
við bara undir feld og svo kemur í
ljós með hvaða sniði keppnin verð-
ur að ári,“ bætir hún við.
Þeir sem þegar höfðu skráð sig
til leiks fá þó eitthvað fyrir sinn
snúð, þó að ekki verði af keppn-
inni sjálfri. - sun
Freestyle-keppni aflýst
ENGIN KEPPNI Í ÁR Freestyle-keppni Tónabæjar hefur notið mikilla vinsælda á þeim
27 árum sem hún hefur verið haldin, en ekki var næg þátttaka í ár og var keppninni
aflýst.
ERPUR Er voðalega lítið í
cover-bransanum og flyt-
ur eigin ljóð við nötrandi
rapptónlist.
Erpur slammar í skjalasafninu
Britney Spears yfirgaf geðdeild UCLA-læknastöðvar-
innar á miðvikudag. Talið var að innlögn söngkonunnar
yrði framlengd um tvær vikur, eftir að fyrstu 72
klukkustundirnar voru liðnar. Samkvæmt heimildum
síðunnar tmz.com reyndist læknum þó ómögulegt að
halda söngkonunni lengur, þar sem hún taldist ekki
lengur vera hættuleg sjálfri sér eða öðrum.
Jamie Spears, faðir Britney, var skipaður lögráða-
maður hennar 1. febrúar síðastliðinn. Á sama tíma
úrskurðaði dómari einnig að Sam Lutfi, sem kallar sig
umboðsmann Spears, sætti nálgunarbanni. Foreldrar
Spears og Lutfi hafa átt í miklum útistöðum síðustu
daga, þar sem þau hafa afar skiptar skoðanir á því hvað
Britney sé fyrir bestu. Hélt móðir Britney, Lynne, því
meðal annars fram að Lutfi hefði gefið Britney
annarleg lyf.
Foreldrar Spears eru ósáttir við að hún sé aftur
komin á rúntinn um Los Angeles. „Sem foreldrar
fullvaxins barns sem glímir nú við geðræn vandamál
vorum við afar vonsvikin að frétta að dóttur okkar,
Britney, hefði verið sleppt af sjúkrahúsinu sem var best
í stakk búið til að hlú að henni og tryggja öryggi hennar,
og það gegn vilja sálfræðings hennar. Við höfum
miklar áhyggjur af öryggi dóttur okkar og teljum að
líf hennar sé í hættu,“ segir í tilkynningu frá þeim.
Þau fara þar einnig fram á að úrskurði dómarans,
hvað varðar lögræði Spears, verði fylgt.
Samkvæmt heimildum vefsíðunnar Tmz.com
hyggst faðir Spears mæta fyrir rétt í dag og fara
fram á að lögregla aðstoði hann við að fylgja eftir
þeim ákvörðunum sem hann tekur sem lögráða-
maður Britney. Það mun ekki vera óalgengt í
málum með þessu sniði. Perezhilton.com heldur
því einnig fram að Jamie Spears hyggist flytja
inn til dóttur sinnar til að geta fylgst með
henni.
Faðir Spears óskar eftir lögregluaðstoð
FRJÁLS FERÐA SINNA Britney Spears var sleppt af
geðdeild á miðvikudag, en faðir hennar er enn skipaður
lögráðamaður hennar.
SMS
LEIKUR
Vin
ni
ng
ar
ve
rð
a a
fh
en
di
r h
já
BT
Sm
ár
ali
nd
. K
óp
av
og
i. M
eð
þ
ví
að
ta
ka
þ
át
t e
rtu
ko
m
in
n í
SM
S k
lú
bb
. 9
9 k
r/s
ke
yt
ið.
F R U M S Ý N D 8 . F E B R Ú A R
SENDU JA ROFÁ NÚMERIÐ1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! Vinningar eru Bíómiðar fyrir tvo, tölvueikir, DVD myndir,varningur tengdur myndinni og margt fleira!
Æfingar á leikritinu Tillsammans, eftir
samnefndri kvikmynd Lukas Moodysson,
eru hafnar í Borgarleikhúsinu. Fjölþjóð-
legur leikhópur Gísla Arnar Garðarssonar
steig þar á svið í fyrsta skipti í gær.
Mexíkóska stórstjarnan Gael García Bernal er á
meðal leikara í verkinu, en rætt verður við hann í
helgarblaði Fréttablaðsins á sunnudag. Þjóðverj-
inn Daniel Brühl, sem er hvað þekktastur fyrir
hlutverk sitt í myndinni Good Bye Lenin!, fer einn-
ig með hlutverk í sýningunni, ásamt spænsku leik-
konunni Elenu Anaya og hinni frönsku Joana
Preiss. Atli Rafn Sigurðarson, Rúnar Freyr Gísla-
son, Nína Dögg Filippusdóttir og Árni Pétur Guð-
jónsson mynda íslenskan hluta leikhópsins.
Fjölþjóðlegur gamanleikur
Kvikmyndin Tillsammans, eftir Lukas Moodysson, fjallar um lífið í
sænskri kommúnu á áttunda áratugnum. Þó að söguþráðurinn hafi
tekið einhverjum breytingum í meðförum Gísla Arnar og leikhóps-
ins er þó óhætt að lofa því að hippaandinn muni svífa yfir vötnum í
Borgarleikhúsinu þegar að frumsýningu kemur, eins og hann gerði
þegar æfingar á verkinu hófust í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HIPPAR Á SVIÐI BORGARLEIKHÚSSINS