Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 20
20 8. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 571
5.068 +0,68% Velta: 7.387 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,94 -1,00% ... Bakkavör 45,75
+1,33% ... Eimskipafélagið 31,00 -0,80% ... Exista 12,10 -2,66% ... FL
Group 9,56 -1,95% ... Glitnir 18,15 -0,82% ... Icelandair 26,45 -0,19%
... Kaupþing 721,00 -0,28% ... Landsbankinn 28,75 -0,86% ... Marel
99,20 -0,10% ... SPRON 5,70 -3,72% ... Straumur-Burðarás 12,90
-0,77% ... Teymi 5,36 -0,19% ... Össur 92,00 -0,54%
MESTA HÆKKUN
BAKKAVÖR +1,33%
MESTA LÆKKUN
365 -6,77%
SPRON -3,72%
EXISTA -2,66%
„Mér sýnist að það sé farið að
hægja verulega á. Það er áberandi
minna að gera núna. Lítið í lok
janúar og nú í byrjun febrúar,“
segir Guðmundur Bjarnason,
forstjóri Íbúðalánasjóðs.
Sjóðurinn lánaði út þrjá og hálf-
an milljarð króna til almennra
íbúðalána í janúar, jafn mikið og
fyrir ári. „Það er útlit fyrir færri
umsóknir og færri afgreidd lán
núna,“ segir Guðmundur.
Útlán bankanna hafa dregist
mikið saman. Þeir lána nú fyrir
sem nemur einni íbúð á dag. Fast-
eignamatið segir að dregið hafi úr
veltu í janúar um tæpan þriðjung
frá sama mánuði í fyrra.
Guðmundur bendir á að lána-
hlutfall Íbúðalánasjóðs sé tak-
markað og einnig hámarkslánin.
„Það getur verið erfitt fyrir fólk
að brúa þetta bil.“ - ikh
Brúa ekki lánabilið
Forstjóri Íbúðalánasjóðs segir hægja á.
GUÐMUNDUR BJARNASON Forstjóri
Íbúðalánasjóðs segir áberandi minna að
gera í lok janúar og það sem af er febrúar.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
„Þetta er mjög gott uppgjör,“ segir
Ari Edwald, forstjóri 365. Hann
segir brattan stíganda hafa verið í
fjölmiðlahlutanum frá fjórða
ársfjórðungi 2005, ef frá er skilið
árið 2006, en rekstrarhagnaður á
tímabilinu var 35 prósent.
Samstæðan tapaði tæpum 2,3
milljörðum króna á síðasta ári, þar
af 2,2 milljörðum á þriðja
ársfjórðungi. Í hitteðfyrra tapaði
félagið tæpum sjö milljörðum.
Rekstrarhagnaður nam 1.162
milljónum króna í fyrra miðað við
12 milljóna króna tap áður. Þá var
eigið fé rúmir 4,5 milljarðar króna
við árslok sem er 1,6 milljarða
lækkun frá áramótum. Eiginfjár-
hlutfall á sama tíma var 31
prósent. Vaxtaberandi skuldir
námu 7,2 milljörðum króna í lok
síðasta árs en stefnt er að lækkun
þeirra með 1,5 milljarða hlutafjár-
aukningu. Tap félagsins er mest
vegna afskriftar á eignarhlut í
bresku prentsmiðjunni Wyndeham
Press upp á 2,1 milljarð króna. - jab
YFIRMENN 365 Viðar Þorkelsson fjármála-
stjóri og Ari Edwald, forstjóri 365, segja
uppgjör félagsins gott. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Besta ár 365
aðalfundur össurar hf. verður haldinn á grand hótel við sigtún,
reykjavík, föstudaginn 22. febrúar 2008 og hefst kl. 8:30
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda, mun vera hluthöfum til sýnis viku fyrir
aðalfund á skrifstofu félagsins að Grjóthálsi 5, Reykjavík. Reikningar og önnur gögn verða einnig birt á heimasíðu félagsins sem
er www.ossur.com
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað frá 8:15.
Hluthafar eru hvattir til að mæta tímanlega til að taka við fundargögnum.
Fundurinn hefst stundvíslega kl. 8:30.
Reykjavík 7. febrúar 2008
Stjórn Össurar hf.
••
á dagskra fundarins verður:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.02 í samþykktum félagsins
2. Tillaga um að heimila stjórn að kaupa eigin bréf félagsins
3. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins. Breytingar varða:
a. Stjórn félagsins verði veitt heimild til að ákveða útgáfu hlutafjár í erlendri mynt í stað íslenskra króna
b. Fjöldi stjórnarsæta breytt úr fi mm í fjögur til sjö
c. Ákvæði þess efnis, að 2/3 atkvæða í félaginu þurfi til þess að falla frá forkaupsrétti hluthafa í tilfelli hlutafjárhækkunar
verði eytt. Í stað komi ákvæði þess efnis að slík ákvörðun verði því aðeins gild að hún hljóti samþykki minnst 2/3 hluta
greiddra atkvæða, svo og samþykki hluthafa sem ráða yfi r minnst 2/3 hlutum þess hlutafjár sem farið er með atkvæði
fyrir á hluthafafundi
d. Ákvæði þess efnis að einungis hluthafar sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins, átta dögum fyrir hluthafafund
eigi atkvæðisrétt, verði eytt
e. Fresti vegna boðunar hluthafafundar breytt úr tveimur vikum í eina viku
f. Stjórn heimilað að halda hluthafafund utan heimilis félags
g. Stjórn heimilað að halda hluthafafundi rafrænt, að hluta eða að fullu
h. Síðasta heimil dagsetning til þess að halda aðalfund færð frá lok júní til lok apríl
i. Röð dagskrárliða á aðalfundi breytt
j. Orðið ,,forstjóri“ notað í stað „framkvæmdastjóri“
k. Orðalag uppfært til samræmis við lög um rafræna eignaskrá verðbréfa
l. Orðalag uppfært til að endurspegla ákvæði hlutafélagalaga um stjórnarkjör
m. Orðalag um þörf á undirskrift stjórnar samræmt ákvæðum hlutafélagalaga
4. Tillaga um tilhögun kaupréttarsamninga fyrir stjórnendur félagsins
5. Önnur mál
Munur á vaxtaákvörðunum
Englandsbanki lækkaði stýrivexti um
25 punkta í gær. Þeir standa nú í 5,25
prósentum. Þetta er í samræmi við spár
markaðsaðila sem segja að bankastjórn-
in standi frammi fyrir erfiðum aðstæð-
um. Hún vilji halda verðbólgu niðri á
sama tíma og aðstæður á fjármálamörk-
uðum séu með versta móti, vextir með
hæsta móti og lánsfé dýrt. Ákvörðunin
er sömuleiðis í samræmi við aðgerðir
bandaríska seðlabankans, sem hefur
lækkað stýrivexti hratt frá síðasta hausti.
Evrópski seðlabankinn ákvað hins vegar
í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í
fjórum prósentum. Hlutabréfamarkaðir í
Evrópu féllu í kjölfarið.
HEIMSEFNAHAGSMÁL
SPRON tapaði sex milljörð-
um á fjórða ársfjórðungi í
fyrra. Eigið fé Kistu, hlut-
deildarfélags sparisjóðs-
ins, er neikvætt um þrjá
milljarða og þarf að bæta í
baukinn.
„Exista er langtímafjárfesting
sem hefur skilað góðri ávöxtun,“
segir Guðmundur Hauksson, for-
stjóri SPRON. Hann lagði áherslu
á það á fundi þar sem uppgjörið
var kynnt í gærmorgun að hluta-
bréf Existu, sem færð eru í bækur
sparisjóðsins með hlutdeildar-
aðferð, væri traust langtímafjár-
festing og ætli bankinn ekki að
selja sig niður.
SPRON tapaði sex milljörðum
króna á fjórða ársfjórðungi síð-
asta árs samanborið við 763 millj-
óna tap á sama tíma í hitteðfyrra.
Hreinar vaxta- og þjónustutekjur
jukust hins vegar verulega á sama
tíma. Vaxtatekjurnar námu 800
milljónum króna, sem er 360 pró-
senta aukning, en þjónustutekjur
um 137 prósent, námu 629 milljón-
um króna, sem er talsvert umfram
væntingar greiningardeilda.
Á sama tíma var tap upp á tíu
milljarða af fjáreignum og fjár-
skuldum auk hlutdeildar í afkomu
hlutdeildarfélaga sem át upp
hagnað af daglegum rekstri spari-
sjóðsins.
Mestu munar um tap á 7,5 pró-
senta eignarhlut SPRON í Existu.
Félagið á 3,2 prósent í Existu í
eigin nafni en afganginn í gegnum
fjárfestingarfélagið Kistu, sem
jafnframt er næststærsti hlut-
hafinn í Existu með tæpan níu
prósenta hlut.
SPRON á tæpan helming í Kistu
og var verðmæti hlutarins metinn
á 2,3 milljarða króna í árslok.
Greiningardeild Kaupþings bend-
ir á að neikvæð áhrif Kistu á rekst-
ur SPRON hafi numið 4,2 milljörð-
um króna á síðasta ári. Megi ætla,
miðað við gengisþróun Existu á
fyrsta fjórðungi þessa árs, sem
hefur fallið um 40 prósent frá ára-
mótum, að eigið fé Kistu sé nú
neikvætt um hátt í þrjá milljarða.
Undir þetta tekur greiningardeild
Landsbankans.
Guðmundur sagði ljóst að hlut-
hafar Kistu, sem meðal annars eru
Existu-sparisjóðirnir svokölluðu,
gætu þurft að auka hlutaféð. „Við
munum styrkja það,“ sagði hann
en tók jafnframt fram að bankinn
hefði engar varnir gegn frekari
lækkun. „Við tökum á okkur niður-
sveifluna.“
jonab@frettabladid.is
Eigið fé næststærsta
hluthafa Existu neikvætt
GUÐMUNDUR HAUKSSON Tekjur af daglegum rekstri SPRON jukust verulega á síð asta
fjórðungi nýliðins árs. Gengishrun hlutdeildarfélaga át upp hagnaðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA