Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 62
menning@frettabladid.is Kl. 17 Sýningin Einhleypur, Grænn eftir myndlistarkonuna Elínu Önnu Þórisdóttur verður opnuð í nýju húsnæði Anima gallerís á Freyjugötu 27 í dag kl. 17. Á sýningunni má sjá málverk og skúlptúra unna með blandaðri tækni. Efniviðurinn í verkin er meðal annars tré, svampur, málning, sprey og snúðar. Triptych 1974-77 eftir írska sjálfmenntaða málarann Francis Bacon (1909-1992) var selt á uppboði Christie´s í London á miðvikudag fyrir þrjá og hálfan milljarð íslenskra króna, eða 26,3 milljónir enskra punda. Er það hæsta verð sem Christie´s í London hefur fengið fyrir eitt verk og hæsta verð greitt fyrir verk listamanns eftir stríð. Bacon vann verkið að mestu 1974 en jók við það 1977 og er það eitt verka sem hann vann í minningu ástmanns síns, George Dyer, sem stytti sér aldur 1971. Verk fleiri listamanna frá þessum tíma fóru á metverði: málverk eftir Gerhard Richter, Lucio Fontana og Bridget Riley seldust þar á háu verði. Meirihluti boða kom að þessu sinni frá evrópskum kaupendum, sem bendir til varúðar á bandarískum myndlistar- markaði sem hefur verið ráðandi í heiminum um langt skeið. - pbb Þrjú verk fyrir 3,5 milljarða MYNDLIST Hið fræga verk á sýningu Christies´s fyrir uppboðið á miðvikudag. Hinn kunni gamanleikur George Feydeau, Fló á skinni, er frumsýndur í kvöld í Samkomuhúsinu gamla á Akureyri. Uppselt er á 24 sýningar af þeim fjörutíu sem komnar eru í sölu og blasir við að Flóin verði afar vinsæl nyrðra rétt eins og hún var í svið- setningum hér syðra 1973 og 1989, en þá komu tugir þúsunda að sjá sýningarnar. Er farsinn eitt aðsóknar- mesta verk íslenskrar leiklistarsögu og styrkir enn stöðu sína með þessari velgengni á Akureyri. María Sigurðardóttir leikstýrir stórum hópi leikara í sviðsetningu á nýrri leikgerð Gísla Rúnars Jónssonar. Við hinn unga hóp leik- ara sem hefur verið kjarninn í leikarahópi LA bætast nú nokkrir sunnanmenn: Randver Þorláks- son, Valdimar Flygenring, Mar- grét Helga Jóhannsdóttir og Árni Tryggvason. Sýningar munu standa fram á vor. Flóin var fyrst sýnd hér á landi í leikhússtjóratíð Vigdísar Finn- bogadóttur í Iðnó og gekk þá í þrjú leikár við miklar vinsældir sem má ekki síst þakka leik Gísla Hall- dórssonar. Velgengni hennar varð til þess að Leikfélag Reykjavíkur réðist aftur í sviðsetningu hennar í Borgarleikhúsinu. Munu hátt í 70 þúsund gestir hafa séð þessar sýn- ingar og er langt til jafnað. Mun Litla hryllingsbúðin standa nærri þessu meti í þremur sviðsetning- um. Flóin er eitt margra verka sem George Feydeau skrifaði á hátindi franska borgaralega farsans. Verkið dró dám af tvískinnungi í borgaralegu siðferði á keisara- tímanum seinni í Frakklandi en Feydeau var afar snjall bygging- armeistari í misskilningsfléttu blekkinga, misskilnings og felu- leiks sem útheimti tiltekinn fjölda útganga í opið rými. Það er Snorri Freyr sem fær það erfiða verkefni að koma tveimur stórum og flókn- um leikmyndum fyrir á litla svið- inu í Samkomuhúsinu. Eins og tekið er að tíðkast í mörgum leiksýningum nú um stundir sem eiga að ná til sín vænum hópi leikhúsgesta er tón- list lögð inn í sviðsetningu Maríu Sigurðardóttur nyrðra og er það gleðisveitin Sprengjuhöllin sem sér um hana. Margir þeir ungu leikarar sem koma fram í sýning- unni hafa ekki áður leikið í sýn- ingu af þessu tagi þar sem reynir mikið á snerpu og sterka tilfinn- ingu fyrir að láta setningar falla í hljóðhvíld í kappi við hláturs gusur leikhúsgesta því Flóin er mikill hláturvaki ef vel tekst til. - pbb Fló á skinni frumsýnd LEIKLIST Misskilningur á misskilning ofan í Flónni á Akureyri. MYND: GRÍMUR BJARNASON/LA Leikhópurinn Borgarbörn frumsýnir annað kvöld kl. 20 á litla sviði Borgarleikhússins nýtt íslenskt forvarnarleikrit sem kallast Alsæla. Borgarbörn er barna- og unglingaleikhús sem hefur þá sér- stöðu að leikararnir í sýningum þess eru sjálfir börn og unglingar. Í Alsælu koma til að mynda fram tólf leikarar sem allir eru á aldrinum 15-19 ára. Framtakið er klárlega lofsvert, ekki síst þar sem það veitir ungu fólki bæði tækifæri til að spreyta sig á fjölunum og til þess að upplifa jafnaldra sína á sviðinu. Söguþráður leikritsins er sprottinn af umræðum og hugsunum leikhópsins um forvarnarmál og unglingamenningu. Leikstjóri verksins, Björk Jakobsdóttir leikkona, færði þessar vangaveltur í afar sjónrænan búning; mikið er um söng og dans og tekist er á við málefnin á táknrænan og hreinan máta. Auk unglinganna og leikstjórans Bjarkar koma ýmsir leikhúslistamenn að sýningunni. Söng stjórn er í höndum Ragnheiðar Hall, Halla Ólafsdóttir semur dansa, Valdimar Kristjónsson sér um tónlist og Magnús Arnar Sigurðarson er ljósameistari. Ljóst er að forvarnir og fræðsla þurfa að vekja áhuga unglinga. Jafningjafræðsla á vegum Reykjavíkurborgar hefur gefið góða raun og því má leiða líkur að því að forvarnarleikrit þar sem unglingar eru í aðalhlutverki eigi nokkuð greiða leið að ungum hugum. Leikritið verður sýnt á litla sviði Borgarleikhúss- ins út febrúar og er miðaverð 1.000 kr. - vþ Forvarnarleikrit frumsýnt annað kvöld BORGARBÖRN Leikhópur skipaður ungu og upp- rennandi leikhúsfólki. > Ekki missa af … Dagskrá í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í kvöld vegna Safnanætur. Dagskráin tengist sýningunni Flickr-flakk og helj- arstökk sem nú stendur yfir í safninu. Gestum verður meðal annars boðið upp á aðstoð við að setja upp sína eigin Flickr-síðu og hljómsveitin Vicky Pollard tekur nokkur lög. Dagskráin hefst kl. 19. GAMANÓPERAN SÍGAUNABARÓNINN EFTIR JOHANN STRAUSS - Íslensk þýðing: Egill Bjarnason og Þorsteinn Gylfason Í GAMLA MJÓLKURSAMLAGINU BORGARNESI Leikstjóri: Ása Hlín Svavarsdóttir • Stjórnandi: Garðar Cortes Píanóleikur: Zsuzsanna Budai Miðapantanir 437 1598 • tskb@simnet.is Upplýsingar á: www.borgarbyggd.is Tónlistarskóli Borgarfjarðar Frumsýn. 7. feb. kl. 20.00 - UPPSELT 2. sýn. 9. feb. kl. 20.00 - UPPSELT 3. sýn. 10. feb. kl. 20.00 - UPPSELT 4. sýn. 16. feb. kl. 20.00 - LAUS SÆTI 5. sýn. 17. feb. kl. 20.00 - LAUS SÆTI 6. sýn. 19. feb. kl. 20.00 - LAUS SÆTI FRUMSÝNING Í KVÖLD! LA TRAVIATA verdi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.