Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 34
6 • FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008
Bylgja Dís er með mastersgráðu í
óperusöng úr Royal Scottish Academy
of Music and Drama í Glasgow. Nú er
hún að takast á við sitt fyrsta hjá Ís-
lensku óp-
erunni en
það er hlut-
verk Flóru í
La Traviata
eftir Verdi
sem verður
frumsýnd
í kvöld
klukkan 8.
Hver eru
bestu kaupin
þín?
„Þegar ég bjó í
Glasgow var ég
fátækur náms-
maður og gat
sjaldan leyft
mér að kaupa
föt, var í sömu
gallabuxunum
þessi tvö ár.“
Átt þú þér uppáhaldshönnuði,
merki eða búðir?
„Nei, reyndar fell ég fyrir
dýrum fötum, því miður! Ég
kaupi mér þar af leiðandi sjald-
an föt. Þegar ég þarf að kaupa
föt fyrir sérstakt tilefni er bráð-
nauðsynlegt að hafa mömmu
með. Hún er nánast eins og
lukkugripur í slíkum verslun-
arferðum.“
Hvernig myndir þú lýsa fata-
stílnum þínum?
„Þessa dagana klæði ég mig í stutt
pils og kjóla og blanda saman fíngerðu og
grófu . Silki, blúndu og svo kannski ull.“
Hvað finnst þér nauðsynlegast að eiga í
fataskápnum?
„Fallegar svartar buxur.“
Áttu þér einhverjar fyrirmyndir
þegar kemur að klæðaburði?
„Ég reyni bara að klæða mig í
föt sem fara mér vel og hafa
karakter. Mér finnst mjög
mikilvægt að mér líði vel í því
sem ég klæðist og að fötin
hamli mér ekki. Ég þoli
ekki föt sem eru úr óþægi-
legum efnum og ég verð
að geta gengið á mínum
eðlilega gönguhraða
og því eru háir hælar
og oddmjóir skór ekki í
uppáhaldi.“
Óperusöngkonan Bylgja Dís Gunnarsdóttir
Hún útskrifaðist í nóvember og er nú komin á sviðið í Íslensku óperunni ...
1
fatastíllinn
Fellur fyrir dýrum fötum
1 Peysa og skór frá Karen Millen.
2 „Ég er nýbúin að kaupa mér þessa fjólu-
bláu skó en fjólublái liturinn er einn af
uppáhaldslitunum mínum.“
3 Uppáhaldspilsið mitt en ég keypti það
einmitt í London líka.
4 Ég nota þennan kjól rosalega mikið við
grófar sokkabuxur og peysur.
5 Taska sem ég fann á markaði í London
og er í miklu eftirlæti hjá mér.
6 Hringur sem pabbi gaf mömmu einhvern
tímann en þau gáfu mér hann nýverið og
ég er alsæl með hann.
2
3
4
5
6
Tískuvikan var sett í Kaupmannahöfn síðastliðinn miðvikudag. Hin
danska Susanne Rutzou var meðal þeirra fyrstu sem sýndu vetrar-
tískuna 2008. Hún sýndi svart í bland við undurfagran rauðbleikan,
turkís, sinnepsgulan og djúpfjólubláan lit. Sniðin voru fljótandi með
grafísku ívafi. Á næstu dögum munu hin íslensku Andersen & Lauth,
Steinunn og Mundi design vera með tískusýningar á Ráðhústorginu
og verður beðið með eftirvæntingu eftir því.
VÖNDUÐ VETRARTÍSKA