Fréttablaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 25
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Sif Gunnarsdóttir er óhrædd við að prófa sig
áfram í eldhúsinu þótt henni takist misjafnlega
til.
Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu,
les gjarnan kokkabækur og uppskriftablöð sér til
skemmtunar. „Mér finnst gaman að prófa mig áfram
í eldhúsinu. Stundum tekst vel til en stundum er þetta
bara ógn og skelfing og fjölskyldan þarf að fá sér
skyr í eftirmat til að seðja sárasta hungrið,“ segir
hún og hlær.
Einn réttur hefur þó vakið sérstaka lukku á heimili
Sifjar en það er marokkóskur vetrarréttur sem hún
rakst á í dönsku matarblaði fyrir nokkrum árum.
„Þetta er lambakjötsréttur með miklu grænmeti og
bæði ferskum og þurrkuðum kryddjurtum. Í honum
er til dæmis kúmen og kóríander og ilmar allt húsið
þegar hann er í ofninum. Það er líka sáraeinfalt að
matreiða réttinn og þarf einungis að skera niður kjöt
og grænmeti, setja í góðan leirpott og inn í ofn. Ef
maður er með gesti er svo bara hægt að setjast niður
og spjalla í klukkutíma eða svo,“ útskýrir Sif.
Hún segist yfirleitt bera fram salat og brauð með rétt-
inum og ef hún er í sérstöku stuði gerir hún nanbrauð.
„Ég er reyndar ennþá að leita að hinni fullkomnu nan-
brauðsuppskrift og lýsi hér með eftir henni.“
Í gær hófst Vetrarhátíð en Sif er meðal skipuleggj-
enda hennar. „Það verður margt á dagskrá og fyrst
við vorum að tala um brauð má til dæmis nefna að í
lok málþings um fjölmenningu, sem verður haldið í
Iðnó fyrir hádegi í dag, verður boðið upp á brauð frá
öllum heimshornum. Það er nefnilega sama hvar
mann ber niður, allar þjóðir gera einhvers konar
brauð,“ segir Sif.
Hún nefnir ýmislegt fleira af dagskránni en þar
ber safnanóttina, sem er í kvöld, líklega hæst. Þá
verða nítján söfn opin frá sjö til eitt með fjölbreytt-
um uppákomum. Á morgun verður síðan boðið upp á
fjölbreytta fjölskylduviðburði og endar hátíðin á tón-
leikum með rússnesku stelpnahljómsveitinni Ivanova
á Nasa um kvöldið. vera@frettabladid.is
Kryddaður vetrarréttur
Það er alltaf gaman þegar fjölskyldan safnast saman á köldum vetrarkvöldum og nýtur samvista yfir góðum mat. Sif er hér með
fulla skál af rótarávöxtum sem hún notar gjarnan í marokkóska vetrarréttinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Krydd geymist ekki
endalaust og því er
nauðsynlegt að fara
reglulega í gegnum
kryddsafnið og henda
því sem er útrunnið.
Þegar nýtt krydd er
keypt í staðinn fyrir það
gamla er svo tilvalið
að bæta við einhverju
sem ekki hefur verið
prófað áður.
Gjafakort á Hereford
steikhús getur verið
skemmtileg afmælis-
gjöf. Afmælisbarn-
ið getur þá farið
og gert vel við
sig í mat og
drykk og hugs-
anlega boðið
einhverjum
sérstökum með
sér.
Pasta er ekki bara pasta og um
að gera fyrir þá sem ekki hafa
prófað að reyna spínat-
pasta, heilhveitipasta eða
speltpasta. Margir vilja
nefnilega meina að
þetta venjulega
hvíta pasta sé síst á
bragðið af því sem
er í boði.
Opið:
Laugardaga 10-16
SUNNUDAG 12-16
ÚTSALA
Mörkinni 6, s. 588 5518