Fréttablaðið - 13.02.2008, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 13.02.2008, Qupperneq 13
Ertu að byggja? Vantar þig steypu? Bakkabraut 9 · 200 Kópavogur ·Sími: 414-7777 · Fax: 414-7779 · borg@evborg.is · www.evborg.is H rin gb ro t BORG hefur tilskilin leyfi Í ljósi fjölmiðlaumræðu síðastliðinna daga vill Einingaverk- smiðjan Borg ehf. benda á eftirfarandi: · Fyrirtækið er með starfsleyfi til ársins 2011. Ágreiningur við Heilbrigðiseftirlitið snýst um það hvort leyfið nái til þess að dreifa steypu í samkeppni við fyrirtækin BM Vallá og Mest. Sá ágreiningur er nú í meðferð hjá þar til bærum yfirvöldum. · Íbúar í nágrenni við starfsstöð fyrirtækisins hafa mótmælt starfseminni vegna mengunar og hávaða. Það skal tekið fram að skv. fasteignamati ríkisins búa þessir íbúar í iðnaðar- húsnæði. Þá má einnig taka fram að hafnarsvæðið á Kárs- nesi er skilgreint sem iðnaðar- og hafnarsvæði í aðalskipu- lagi Kópavogsbæjar. · Því hefur verið haldið fram að Einingaverksmiðjan Borg hafi geymt steyptar einingar í leyfisleysi á lóð Kópavogsbæjar. Hið rétta er að fyrirtækið var með svæðið á leigu af Kópa- vogsbæ en var sagt upp samningi með aðeins 20 daga fyr- irvara. Unnið hefur verið að því síðan að tæma svæðið í fullu samráði við hafnaryfirvöld. BORG hóf starfsemi í upphafi ársins 2005. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 90 manns við framleiðslu, sölu og dreifingu for- steyptra húseininga og steinsteypu. Vöxtur fyrirtækisins hefur verið hraður og hefur framleiðsla og þjónusta fyrirtækisins fengið góðar viðtökur viðskiptavina. Félagið leggur áherslu á gæði, áreiðanleika og heildarlausnir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.