Fréttablaðið - 20.02.2008, Síða 16
16 20. febrúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
Svona erum við
> Íbúar í Garðabæ
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
fréttir og fróðleikur
8.
87
8
9.
44
4
8.
46
2
9.
55
6
2001 2003 2005 2006
KÚBA, AP Heilsufar Fidels Castro
Kúbuleiðtoga hefur verið bág-
borið býsna lengi. Fáum kemur
því á óvart að hann hafi sagt af
sér eftir 49 ára valdatíð og ætli
að víkja fyrir bróður sínum Raúl,
sem á sunnudaginn tekur form-
lega við forsetaembættinu.
Fáir virðast heldur búast við
miklum breytingum á Kúbu
næstu árin. Raúl bróðir hefur
gefið í skyn að hann muni slaka
aðeins á klónni, án þess þó að
breyta um stefnu að ráði.
Fidel ætlar auk þess áfram að
láta rödd sína heyrast, meðal
annars með því að skrifa reglu-
lega pistla í ríkisdagblaðið
Granma eins og hann hefur gert
undanfarið.
Bandaríkin fullyrtu í gær að
viðskiptabanninu, sem hefur
haldið efnahagslífi Kúbu í fjötr-
um áratugum saman, verði varla
aflétt á næstunni. George W.
Bush Bandaríkjaforseti segist þó
vona að brotthvarf Castros verði
„upphafið að lýðræðisþróun á
Kúbu“.
Kúbverskir útlagar í Miami í
Bandaríkjunum fögnuðu hins
vegar ákaft fréttunum af afsögn
Castros í gær. „Ég vona að þetta
sé upphafið að endalokum kerf-
isins, en við verðum að bíða,“
segir einn þeirra.
Á Kúbu tóku landsmenn frétt-
unum með jafnaðargeði. Þó var
ekki laust við að dapurleika gætti
hjá sumum: „Þetta er eins og að
missa föður,“ sagði Luis Conte,
aldraður næturvörður á safni í
Havana, „eða eins og hjónaband,
mjög langt, sem nú er lokið.“
- gb
Brotthvarf Castros
Ekki er reiknað með miklum breytingum á Kúbu þótt Fidel Castro hafi sagt af
sér, að minnsta kosti ekki í bráðina. Bróðir hans Raúl tekur formlega við.
CASTRO HÆTTUR Kúbverskir blaðasölu-
menn fluttu heimamönnum fréttir af
brotthvarfi Castros. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Sunnudaginn 17. febrúar samþykkti þingið
í Kosovo að lýsa yfir sjálfstæði. Í tæpan ára-
tug hefur Kosovo í reynd verið undir stjórn
Sameinuðu þjóðanna og verður það áfram
um sinn.
Hvað gerist næst?
Serbar samþykktu ekki tillögu Sameinuðu
þjóðanna um framtíð Kosovo, sem Martti
Ahtisaari, fyrrverandi Finnlandsforseti, setti
saman og kynnti á síðasta ári. Hið nýja
Kosovoríki ætlar að fylgja þeirri forskrift þrátt
fyrir andstöðu Serba. Þar er gert ráð fyrir því
að Kosovo verði lýðræðislegt fjölþjóðaríki þar
sem réttindi Serba njóti sérstaklega verndar.
Evrópusambandið tekur við umsjóninni af
Sameinuðu þjóðunum eftir fjóra mánuði og
eftir níu mánuði verða haldnar kosningar um
nýja stjórnarskrá og nýtt þing.
Hvað með fánann?
Eitt af fyrstu verkunum, sem stjórn
nýja ríkisins tekur sér fyrir hendur,
verður að velja nýjan fána fyrir Kos-
ovo. Fáninn, sem Kosovo-Albanir
veifa nú, með svörtum tvíhöfða
erni á rauðum grunni, er í
reynd fáni Albaníu. Á síðasta
ári var haldin samkeppni um
nýjan fána og bárust nærri þús-
und tillögur. Sá sem varð ofan á
er blár með hvítum stjörnum og
gulu korti af Kosovo, nauðalíkur
hinum opinbera fána Kosovo sem
alþjóðastofnanir hafa notað.
Hvað verður um serbneska
minnihlutann?
Serbar eru andvígir því að Kosovo
verði sjálfstætt ríki, bæði vegna
sögulegra tengsla við héraðið
og af ótta við örlög þeirra
Serba sem þar búa. Um
það bil einn af hverjum tíu
íbúum Kosovo eru Serbar,
og búa þeir flestir í norðan-
verðu Kosovo. Samkvæmt
hugmyndum Ahtisaaris er
gert ráð fyrir því að þeir geti
áfram verið í nánum tengslum
við Serbíu. Þeir gætu þó á næst-
unni brugðist við sjálfstæðis-
yfirlýsingu Kosovo með því
að lýsa sjálfir yfir stofnun
sjálfstæðs ríkis, sem síðar
gæti viljað sameinast
Serbíu. Út af þessu
gætu sprottið átök.
FBL-GREINING: KOSOVO
Kosovo ætlar að fylgja áætlun Ahtisaaris
K Ú B A
Bandaríkin
Flórída
BAHAMAEYJAR
Biran
Santiago
de Cuba
Havana
Mariel
Santa
Clara
Camaguey
Pinar
del Río
Guantanamo-flói (BNA)
Svínaflói
Sierra Maestra
100 km
62 mílur
MEXICO
Karíbahaf
Flór
ída
-su
nd
Pictures: Associated Press © Graphic News