Fréttablaðið - 05.03.2008, Síða 43
MIÐVIKUDAGUR 5. mars 2008 19
Uppi varð fótur og fit í fjölskyldu Úlfhildar
Dagsdóttur þegar ljóst var hvaða nafni for-
eldrar hennar hugðust skíra dóttur sína.
Frænda Úlfhildar, Helga Hóseassyni,
fannst nafnið ekki henta litlu stúlkubarni
og kvartaði yfir því að faðirinn hefði valið
grófgert nafn sem fæli í sér bæði úlfa og
styrjaldir. Sögum ber reyndar ekki saman
um hvernig nafnið kom til en Úlfhildi þykir
líklegt að móðir sín hafi fengið hugmynd-
ina úr íslenskum þjóðsögum.
„Ég held að þetta hafi nú verið mála-
miðlunartillaga hjá foreldrum mínum,
þótt líklegt sé að móðir mín hafi haft
nokkur áhrif um endanlegt val. Hún var
meira með þjóðsagnanöfn í huga. Sem
dæmi kom nafnið Mjaðveig allt eins til
greina, eftir Mjaðveigu Mánadóttur. Hvað
Úlfhildar-nafnið varðar er það yfirleitt nafn
á álfadrottningum eða -meyjum sem eru
fyrir tilstilli einhverrar bölvunar tilneyddar
að búa í mannheimum. Svona eins og í
mínu tilfelli að þurfa að búa á Íslandi,“
segir Úlfhildur og hlær.
Úlfhildur segist alla tíð hafa verið sátt
við nafngiftina þótt vissulega hafi nafnið
oft á tíðum vakið athygli og þá sérstak-
lega í æsku. „Finnst fólki yfirleitt ekki slá-
andi ef lítil börn heita skrítnum nöfnum?
Annars var ég nú kölluð Úlla sem krakki og
þar með voru tennurnar dregnar svolítið
úr nafninu. Í seinni tíð þykir þetta ekki
eins sérstakt, enda finnst manni oft eðli-
legra að fullorðið fólki heiti sjaldgæfum
nöfnum. Undarlegum nöfnum hefur líka
fjölgað og ætli það sé bara ekki svoleiðis
að maður vaxi meira inn í nafnið sitt með
aldrinum.“
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
AFMÆLI
Jan Garbarek
tónlistarmaður er 61
árs.
Eva Mendes
leikkona er 34
ára.
NAFNIÐ MITT: ÚLFHILDUR DAGSDÓTTIR
Álfadrottning í álögum búsett í mannheimum
ÚLFHILDUR DAGSDÓTTIR Bókmenntafræð-
ingur og bókverja er líklegast skírð eftir
þjóðsagnapersónum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, frændi og
tengdafaðir,
Þórður Birgir Sigurðsson
fyrrverandi yfirvélstjóri,
lést þann 21. febrúar á líknardeild 5A Landakotsspítala.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á Félag aðstandenda
Alzheimers-sjúklinga. Innilegar þakkir til líknardeildar
5A og Fríðuhúss.
Rósa Ó. Ísaksdóttir
Áslaug Þórðardóttir
Sigurður Bjarki Þórðarson Helga Magnúsdóttir
Ísak Harðarson.Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hörður Ágústsson
Verkstjóri, frá Sólvangi í Vestmannaeyjum,
Hagaseli 28, Reykjavík,
lést föstudaginn 22. febrúar. Útför hans fer fram frá
Fossvogskirkju föstudaginn 7. mars kl. 15.00.
Margét Guðjónsdóttir
Guðjón Harðarson Hrönn Ólafsdóttir
Ágúst Harðarson Bryndís Guðjónsdóttir
Bjarni Harðarson
Hilmar Harðarson
Fanney Harðardóttir Guðmundur Már Þorvarðarson
María Harðardóttir Siggeir Kolbeinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
Árna Sigurðssonar
Tröllagili 14 Akureyri.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólkinu á deild
11G á Landspítalanum fyrir einstaka umönnun og
hlýju. Einnig færum við starfsfólki Sjúkrahússins á
Akureyri okkar bestu þakkir. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Guðrún Jóhannsdóttir
Heiðar Árnason Ásta Guðmundsdóttir
Sævar Árnason Telma Ríkharðsdóttir
Jakobína H. Árnadóttir Heiðar Örn Sigfinnsson
afa- og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Inga Jenný Guðjónsdóttir
Gullsmára 11, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn
7. mars kl 13.00.
Gyða Vigfúsdóttir Knútur Birgisson
Gréta Vigfúsdóttir Guðmundur Birgisson
Árni Guðjón Vigfússon Hrönn Hallgrímsdóttir
Karen Jenný Heiðarsdóttir Arnar Þór Guttormsson
Vigfús Þór Heiðarsson
Birgir Kristján Guðmundsson Jóna Björg Ólafsdóttir
Inga Vigdís Guðmundsdóttir
Gísli Pétur Árnason
Kristjana Ólöf Árnadóttir
og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
Kolbeinn Kolbeinsson
frá Kollafirði, Reynihvammi 40, Kópavogi,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut föstudag-
inn 29.febrúar. Útförin fer fram frá Lágafellskirkju
föstudaginn 7. mars kl.11.00. Jarðsett verður í
Gufuneskirkjugarði.
Guðrún Guðmundsdóttir
Agnar H. Kolbeinsson Lóa Hallsdóttir
Kolbeinn Agnarsson Guðríður Jónsdóttir
Kristrún Agnarsdóttir
Róbert Agnarsson Sigrún Ósk Ómarsdóttir
Ásdís Helga Agnarsdóttir
og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Magnús Þorvarðarson
Fannafold 127a, 112 Reykjavík,
lést að heimili sínu laugardaginn 1. mars.
Hólmfríður Gísladóttir
Rósa Magnúsdóttir Pétur Eysteinsson
Steinunn Magnúsdóttir Georg Eggertsson
Þ. Hjalti Magnússon Sigríður María Sverrisdóttir
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Árni Helgason
fyrrverandi stöðvarstjóri Pósts og síma
Stykkishólmi,
sem lést þann 27. febrúar síðastliðinn verður jarðsung-
inn frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 8. mars og
hefst athöfnin kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Orgelsjóð Stykkishólmskirkju - Heimahornið s. 438
1110 og Kristniboðssamband Íslands s. 533 4900.
Sætaferðir verða frá BSÍ kl. 11.00 sama dag.
Gunnlaugur A. Árnason Sigrún Valtýsdóttir
Halldór Árnason Anna Björg Eyjólfsdóttir
Helgi Árnason Aðalbjörg Jónasdóttir
Vilborg Anna Árnadóttir Jón Trausti Jónsson
afa- og langafabörn.
Innilegar þakkir fyrir vináttu og sýnda
samúð við andlát elskulegs eiginmanns,
föður, tengdaföður og afa okkar,
Geirs Gíslasonar
fv. flugstjóra, Strandgötu 73b,
Hafnarfirði,
Erna Þorsteinsdóttir
Anna Geirsdóttir Vilhjálmur Bjarnason
Geir Harrýsson
Erna Rut Vilhjálmsdóttir
Gísli Vilhjálmsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Júlíus Rafnkell Einarsson
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sunnudaginn
2. mars.
María Guðrún Ögmundsdóttir
Ástríður Júlíusdóttir Samúel Ingimarsson
Guðrún Júlíusdóttir Ingibergur Þór Kristinsson
Einar Júlíusson Lára Brynjarsdóttir
Ragnheiður Júlíusdóttir Rúnar Oddur Guðbrandsson
Ásdís Júlíusdóttir Jónas Guðbjörn Þorsteinsson
Sigrún Júlíusdóttir Sigurður I. Hreinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Menntaráð Reykjavíkur-
borgar ætlar að efla tón-
listarstarf í Fellaskól. Þetta
er gert með verkefni sem
hefur fengið heitið “músík-
alskt par“. Það felst í sam-
starfi tónlistarskóla og
grunnskóla. Sambærileg
verkefni eru nú í gangi í 10
grunnskólum í samstarfi við
5 tónlistarskóla í borginni.
Í fjölmenningarlegu sam-
félagi, líkt og í Fellahverfi,
hefur sýnt sig að tónlistar-
kennsla hefur góð félags-
leg áhrif og getur stuðlað að
meiri samvinnu nemenda og
skilningi þeirra í milli. Þetta
kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá Reykjavíkurborg.
Tónlistarskóli FÍH mun
taka að sér kennsluna en
hann hefur víðtæka reynslu
af því að kenna rytmíska
tónlist, sem þykir falla vel
að fjölmenningarlegu skóla-
samfélagi. Tónlistarskóli
FÍH hefur gert metnaðar-
fulla áætlun fyrir tónlistar-
kennslu í Fellaskóla sem
hefjast mun næsta haust. Í
Fellaskóla er stórt rými sem
nýlega hefur verið endur-
nýjað, en þar var áður fé-
lagsmiðstöðin Fellahell-
ir. Það hentar vel til tón-
listarkennslu og samspils.
Stefnt er að því að halda þar
reglulega tónleika og jafn-
framt verður leitast við að
kveikja áhuga á verkefn-
inu í grenndar samfélaginu,
meðal annars með heima-
síðu um tónlistarstarfið.
Nýtt músíkalskt par
TÓNLIST Í FELLUNUM Í fjölmenningarlegu samfélagi líkt og í Fellahverfi
hefur sýnt sig að tónlistarkennsla hefur góð félagsleg áhrif.
Patsy Kensit
leikkona er 38
ára.