Fréttablaðið - 05.03.2008, Side 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Í dag er miðvikudagurinn
5. mars, 65. dagur ársins.
8.20 13.39 18.59
8.08 13.24 18.41
Nýlega gengnir héraðsdómar fyrir ofbeldisverk gegn
konum verða eftir hálfa öld notað-
ir í skólabókum um hið ramm-
skakka siðferði aldamóta-
samfélagsins sem við lifum í. Að
karlar fái grútlinar áminningar í
formi stuttra skilorðsdóma fyrir
að ganga í skrokk á konum verður
rætt í þátíð eins og hvurt annað
bull sem viðgekkst bara í forn-
eskjunni. Flokkað með því þegar
konur voru án kosningaréttar og
þóttu bestar rjóðar og undirleitar.
Einhverjir munu þó trúlega rifja
upp gömlu góðu tímana með dálitl-
um söknuði, þegar konur voru
alvöru konur sem skiljanlega
þurfti annað slagið að kenna eina
lexíu eða tvær. Það verða til hálf-
vitar á öllum tímum.
ÞVÍ þrátt fyrir allt miðar okkur
dálítið áleiðis og um það vitna
nýsamþykkt jafnréttislög. Og
alveg eins og langhlauparinn sem
trúir því að marklínan færist nær
og muni í alvörunni birtast á end-
anum er einmitt mikilvægt að hafa
augun á markmiðinu. Beggja
vegna vegarins er mýri en því
sjaldnar sem okkur skrikar fótur,
því rösklegar komumst við. Þrátt
fyrir úrtölumenn sem óttast það
eitt að missa völd og úrtölukonur
sem þykjast ekki kannast við
slagsíðuna. Því hver vill láta
stimpla sig sem femínista?
ÞESSAR húmorslausu trukka-
lessur, sífellt með grútleiðinlegar
rannsóknarniðurstöður og pólit-
ískan rétttrúnað á vör. Sem sjá
óvin í öllum drengjum eldri en tólf
ára, þannig eru femínistar. Öfga-
hópur sem svífst einskis og kemur
beinlínis óorði á jafnréttisbarátt-
una. Það sem þessar kellingar
þyrftu einkum eru náin kynni við
alvöru karlmenn sem kunna til
verka og rétta hjá þeim kúrsinn.
EN fáir sverja þó núorðið af sér
jafnréttisbaráttuna, henni vilja
flestir gangast við... þannig lagað.
Hér á landi er ástandið nefnilega
bara alveg ágætt, sjáið bara
hvernig farið er með konur í
öðrum löndum. Á meðan mey-
barnamorð og umskurður á stúlku-
börnum viðgangast annars staðar
er hlægilegt að þessar feminínsta-
kerlingar séu að væla eitthvað um
heimilisofbeldi, kjaramál og
stjórnarsetur. Eins og eitt útiloki
annað.
ÞVÍ skoðanaarfurinn sleppir ekki
takinu sjálfkrafa hversu afdráttar-
laus og kúgandi sem hann er.
Okkar verkefni er einfaldlega að
halda áfram. Þetta kemur.
Húmorslausar
trukkalessur
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
12
87
0
3/
08
Athyglin er á
Avensis
Upplifðu Avensis í dag
Það getur verið erfitt að einbeita sér að hversdagslegum hlutum þegar
maður hefur kynnst Avensis. Hugurinn er alltaf fullur af tilhlökkun fyrir
næstu ökuferð. Þetta er skemmtilegt vandamál. Ennþá skemmtilegra er að
njóta reynslunnar og upplifa útlit bílsins, auk allra þeirra þæginda sem
einkenna Avensis meira en nokkru sinni fyrr.
Avensis verður ekki lýst með orðum.
Komdu og reynsluaktu Avensis í dag.
Ps. Ekki gleyma að þú komst á öðrum bíl í reynsluaksturinn.
Verð frá 2.895.000 kr.*
*Verð miðast við Avensis Wagon Sol - 5 dyra.
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070