Fréttablaðið - 22.03.2008, Blaðsíða 33
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ PÁKSAR O.FL.
Saga Svavarsdóttir líffræðinemi ekur um á
gömlum en glæsilegum Volvó sem vekur athygli
á götum borgarinnar. Hún hefur líka brunað á
honum vestur í Dali og í maí er stefnan sett á
Neskaupstað.
„Þessi væri flottur í páskablað,“ var það fyrsta sem
blaðamaður hugsaði þegar hann sá fjólubláan Volvo
station bruna eftir götunni. Hann gladdist því þegar
ökumaðurinn Saga Svavarsdóttir varð fúslega við
beiðni hans um viðtal og mynd. „Volvóinn er bara
æðislegur,“ segir hún brosandi. „Ég fékk hann í
hendur í haust, nýsprautaðan og yfirfarinn, og tek
eftir að hann vekur talsvert mikla athygli.“
Þó Saga sé viðræðugóð stúlka þá er henni saga
fjólubláa Volvósins hulin að nokkru leyti. Eitt veit
hún þó með vissu. Bíllinn er 1988 módel en ber ald-
urinn með prýði. „Það hefur greinilega verið hugsað
vel um gripinn,“ segir hún og upplýsir að fyrri
eigandi sé formaður Volvo-verkstæðis í Kópavogi
og var búinn að nostra mikið við hann.
Reyndar kveðst Saga ekki vera eigandi bílsins
heldur faðir hennar, Svavar Garðarsson sem býr
vestur í Búðardal. „Pabbi er svo almennilegur að
skaffa mér bíl meðan ég er í námi. Hann var búinn
að lána mér annan sömu gerðar áður en sá fjólublái
kom til sögunnar. Þegar hann sá svo þennan auglýst-
an stóðst hann ekki mátið heldur keypti hann. Pabbi
veit líka að þetta eru bílar sem eldast vel. Hann á tvo
Volvóa af árgerð ´87. Annar er ekinn 400 þúsund
kílómetra en gengur eins og klukka. Hann veit líka
að þótt svona bílar bili þurfa þeir ekki að fara í tölvu
til að hægt sé að finna út hvað amar að þeim.“
Saga kveðst finna sig örugga á hinum sænska far-
kosti og segir hann liggja vel á vegi. En spurð hvort
hann sé kraftmikill svarar hún. „Kraftmikill? Ég
segi það nú ekki. Hann er auðvitað þungur og maður
er ekkert að gefa í á ljósum ef maður ætlar ekki á
hausinn!“
gun@frettabladid.is
Pabbi veit að Volvó er
bíll sem eldist mjög vel
Saga segir Volvóinn liggja vel á vegi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
PÁSKALEGAR PÍUR
Nokkrar af helstu stjörnunum
eiga gula kjóla sem þær
geta skartað um páskana.
TÍSKA 4
FYRIR ÍSLENDINGA
Allt frá því að fyrstu Subaru-
bílarnir komu hingað til
lands hafa þeir notið
mikilla vinsælda. Jeppi
í líki fólksbíls segir
sölumaður Ingvars
Helgasonar.