Fréttablaðið - 30.03.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
16 ALLA SUNNUDAGA
SÍÐUR
12
30. mars 2008 — 86. tölublað — 8. árgangur
Velkomin í kreppuna
GÓÐ RÁÐ TIL AÐ HERÐA SULTARÓLINA
LÖGREGLUMÁL Nokkur órói er meðal
lögreglumanna á höfuðborgar-
svæðinu vegna fækkunar í lög-
regluliðinu. Frá því 1. janúar
2007, þegar nýtt embætti lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu tók yfir lögregluembættin í
Reykjavík, Kópavogi og Hafn-
arfirði, hefur lögreglumönnum
fækkað á sama tíma og íbúum
hefur fjölgað.
Lögreglumönnum á höfuð-
borgarsvæðinu fækkaði úr 347
1. febrúar 2005 í 339 1. febrúar
í fyrra. Af þeim hefur almenn-
um lögreglumönnum fækkað
úr 148 í 124 eða um 24 sem eru
rúm 16 prósent. Til viðmiðunar
voru almennir lögreglumenn í
Hafnarfirði átján talsins árið
2005 og fimmtán í Kópavogi svo sjá
má að fækkunin er umtalsverð.
„Okkur hefur fækkað, það er
alveg óhætt að fullyrða það,“ segir
Óskar Sigurpálsson, formaður
Lögreglufélags Reykjavíkur, en
það nær yfir félagssvæði lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Óskar staðfestir að fækkunin nái
yfir allar deildir lögreglunnar.
Hann bindur þó vonir við að fjölg-
að verði í liðinu í vor. „Lögreglu-
stjóri er búinn að lýsa yfir að aug-
lýst verði eftir fólki. Bæði þurfum
við menn út af sumarfríum og svo
vantar okkur tilfinnanlega fleiri
menn.“
Eins og áður nefna lögreglu-
menn fjárskort sem aðalástæðu
þess að fækkað hafi í liðinu. Að
almennar hækkanir, til dæmis á
eldsneyti, skili sér seint í hærri
fjárframlögum til rekstrarins.
Í tilkynningu á heimasíðu lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
frá 3. janúar 2007 segir að í drög-
um að grundvallarstefnumótun
embættisins hafi verið haft að
leiðarljósi að auka öryggi og
öryggistilfinningu þeirra sem búa,
starfa og dveljast á höfuðborgar-
svæðinu. Er aukin sýnileg lög-
gæsla efst á lista yfir lykilþætti
sem embættið telur mestu skipta
til að þeim markmiðum verði náð.
Heimildarmaður innan lögregl-
unnar sagði það sjálfsagt allt gott
og blessað en ekki sé hægt að
auka sýnileika ef lögreglumönnum
fækkar. - ovd
Lögregluþjónum hefur
fækkað eftir sameiningu
Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu eru ósáttir við fækkun í lögregluliðinu og kenna fjárskorti um.
Fækkað hefur um fleiri en alla almenna lögreglumenn í Hafnarfirði fyrir sameiningu. Á sama tíma fjölgar
íbúum. Formaður Lögreglufélags Reykjavíkur segir fækkunina ná yfir allar deildir lögreglunnar.
FJÖLDI LÖGREGLUMANNA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
2005 2006 2007
347 344
339
124
142
148
Heildarfjöldi
lögreglumanna
Heildarfjöldi lögreglumanna
Almennir lögreglumenn
BLÁA REIÐHJÓLIÐ
VINSÆLT Á NÓTTUNNI
Íslendingar virðast
síður en svo hafa
gleymt miðilsfundi
Dúdda í kvikmynd-
inni Með allt á
hreinu.
HELGARVIÐTAL 14
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
APRÍL 2008
DAGAR MEÐ LANDSLIÐS-MANNI Í KÖBENVIGNIR SVAVARSSON SEGIR FRÁ UPPÁHALDSSTÖÐUNUM SÍNUM
EYJALÍF Á EYSTRASALTIÆVINTÝRAEYJUR Í ANDA ASTRID LINDGREN
FYLGIR Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÁFRAM VINDASAMT Nú með
morgninum verður NA-hvassviðri
suðaustan til annars strekkingur.
Bætir í vind norðvestan til seint í
dag. Bjart veður syðra annars snjó-
eða slydduél. Heldur mildara veður.
VEÐUR 4
-1 0
2
31
5
UMHVERFISMÁL „Öryggismál mið-
borgarinnar og endurreisn Lauga-
vegarins eru mín hjartans mál,“
segir Ólafur F. Magnússon borgar-
stjóri sem kveður ástandið í miðbæ
Reykjavíkur óásættanlegt vegna
húsa sem þar drabbast niður.
„Ég lofa því að þessi mál verða
sett á dagskrá alveg á næstunni
og að snúa vörn í sókn. Þetta óvið-
unandi ástand er arfleið frá fyrri
meirihlutum sem við ætlum okkur
að bæta úr,“ segir Ólafur sem
boðar áætlun um stóraukið öryggi
og bætta umgengni á Laugavegi
og annars staðar í miðborginni.
Frank Michelsen úrsmíðameist-
ari sagði sig í gær úr stjórn Mið-
borgar Reykjavíkur vegna
óánægju með tök borgarstjórnar á
miðborginni. „Útigangsmenn,
ofdrykkjumenn og dópistar fara
um í flokkum, veitast að vegfar-
endum og angra verslunarfólk,
hræða það og stela vörum. Þetta
er algjörlega óviðunandi og
óásættanlegt,“ sagði í yfirlýsingu
frá Frank.
„Ég geri mér vel grein fyrir
alvarleika málsins og ætla mér að
bregðast við. Ég held að bæði
umræðan og tillögur í borgar-
stjórninni á næstunni muni leiða
það í ljós,“ segir borgarstjórinn
sem leggur áherslu á að vanda
þurfi til verka.
„Umræðan hefur leitt í ljós að
þeim borgum sem bera gæfu til
að sameina söguna og uppbygg-
inguna í miðborginni vegni betur
til lengra tíma litið,“ segir borg-
arstjóri og ítrekar verkin verði
látin tala. „Þess mun sjá stað
eftir tvö ár að það hefur orðið
veruleg umbreyting til hins betra
í miðborginni og sérstaklega á
Laugaveginum. Ég heiti því.“
- gar
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri segir óviðunandi ástand í miðbæ Reykjavíkur:
Heitir endurreisn í miðbænum
SLÖMMIÐ Í MIÐBORGINNI Birna Þórðardóttir, sem rekur fyrirtækið Menningarfylgd Birnu, lóðsaði gesti um slóðir
„slömmlordanna“ í miðborg Reykjavíkur í gær. Í gönguferðunum sýnir Birna yfirleitt menningarverðmæti borgarinnar, en í þetta
sinn var ferðinni heitið um niðurnídda ranghala Reykjavíkurborgar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ÞÝSKALAND, AP Svarti svanurinn
Petra hefur endurnýjað ástarsam-
band sitt við
árabát í
svanslíki í
dýragarðinum í
Münster í
Þýskalandi.
Petra varð
svo ástfangin af
bátnum fyrir
tveimur árum
að hún eyddi
öllum stundum við hlið hans.
Undanfarna mánuði hafði Petra
hins vegar gert sér dælt við
raunverulegan hvítan svan.
Þegar svanurinn yfirgaf hana
fyrir viku og kramdi hjarta hennar
ákváðu starfsmenn dýragarðsins
að kynna hana aftur fyrir ára-
bátnum geðþekka. - sgj
Ástin blómstrar á ný:
Svanur tekur
saman við bát
SÆT SAMAN