Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 34
ATVINNA
30. mars 2008 SUNNUDAGUR180
Bakkabraut 9 · 200 Kópavogur · Sími: 414-7777 ·Fax: 414-7779 · borg@evborg.is · www.evborg.is
BORG ehf. – Einingaverksmiðja og
Steypustöð hóf starfsemi í upphafi ársins
2005. Hjá fyrirtækinu starfa um 100
manns við framleiðslu, sölu og dreifingu
forsteyptra húseininga og steinsteypu.
Vöxtur fyrirtækisins hefur verið hraður og
hefur framleiðsla og þjónusta fyrirtækisins
fengið góðar viðtökur viðskiptavina.
Félagið leggur áherslu á gæði, áreiðanleika
og heildarlausnir.
Góður starfsandi er í fyrirtækinu og er
fjöldi spennandi verkefna framundan.
Óskum eftir að ráða verkfræðing í starf forstöðumanns hönn-
unardeildar. Fyrsta verkefni forstöðumanns er að byggja upp og
leiða nýja hönnunardeild fyrirtækisins. Hlutverk deildarinnar er
að vinna burðarþolsteikningar fyrir einingaframleiðslu og sinna
ráðgjöf til viðskiptavina. Viðkomandi aðili þarf að búa yfir skipu-
lagshæfileikum og vera sjálfstæður í vinnubrögðum. Stjórnunar-
reynsla er æskileg. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Óskum eftir tæknimenntuðum starfsmönnum í nýja hönn-
unardeild fyrirtækisins. Helstu verkefni er hönnun eininga fyrir
einingaframleiðslu, ráðgjöf til viðskiptavina, verkefnastjórnun og
önnur sérhæfð verkefni.
Til greina koma t.d. byggingafræðingar, byggingatæknifræðingar,
iðnfræðingar, tækniteiknarar o.fl..
Óskum eftir að ráða forstöðumann steypustöðvar
fyrirtækisins. Forstöðumaður hefur umsjón með
öllum daglegum rekstri steypustöðvarinnar, sér um
starfsmannamál, aðföng og innra skipulag. Viðkom-
andi hefur að auki umsjón með því að framleiðslan
uppfylli gæðakröfur og staðla. Leitað er að aðila með
skipulagshæfileika og reynslu af stjórnun. Háskóla-
menntun er kostur. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Bílstjórar óskast til starfa við steypustöð Borgar. Jafnt
er um að ræða störf á hefðbundnum steypubílum eða
steypudælum. Reynsla er kostur en ekki nauðsynleg.
Meirapróf er skilyrði.
Umsóknir með ferilskrá óskast sendar á netfangið atvinna@evborg.is eigi síðar en 7. apríl nk.
Fullum trúnaði er heitið.
Skólastjóri Gerðaskóla í Garði
Staða skólastjóra Gerðaskóla í Garði er laus til umsóknar. Nemendur Gerðaskóla
eru 245 í 1. – 10. bekk. Gott samstarf er við leikskóla og framhaldsskóla og
aðgangur greiður að góðri sérfræðiþjónustu.
Í skólastefnu Sveitarfélagsins Garðs eru eftirfarandi áherslur lagðar í skóla- og
æskulýðsstarfi bæjarins:
• Öll samskipti einkennist af gagnkvæmri virðingu.
• Fjölbreyttir hæfileikar barna séu viðurkenndir og sjálfsmynd þeirra styrkt.
• Aðstæður til náms séu góðar og hvetjandi.
• Samvinna heimila, skóla og æskulýðsstarfsemi sé góð og
samskiptaleiðir greiðar.
• Tengsl við umhverfi, fyrirtæki og stofnanir bæjarins séu virk.
• Gleði, metnaður og umhyggja einkenni allt starf með börnum og
ungmennum.
Leitað er að kraftmikilum og drífandi stjórnanda sem er tilbúinn til að starfa að
öflugri skólaþróun.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennarapróf og kennslureynsla.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar æskileg og reynsla af skólastjórnun.
• Frumkvæði, samstarfsvilji og góðir skipulagshæfileikar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Hafi áhuga á að leiða þróunarstarf í átt að einstaklingsmiðuðu námi.
Umsókn skal fylgja yfirlit yfir menntun og störf umsækjanda og hver þau
verkefni sem varpað geta ljósi á færni til að sinna skólastjórastarfi. Við ráðningu
í starfið verður tekið tillit til menntunar, kennsluferils, stjórnunarreynslu og
umsagna um starfshæfni umsækjanda. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2008.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 7. apríl og skal skila umsókn á bæjarskrifstofu Sveitar-
félagsins Garðs að Sunnubraut 4, 250 Garður.
Nánari upplýsingar veitir Oddný Harðardóttir bæjarstjóri
í síma 4227150, netfang oddny@svgardur.is.
þar sem
ferskir
vindar
blása H
en
na
r h
át
ig
n
08
-0
04
9
www.svgardur.is
Starfsmaður á Akureyri
Minkaveiðiátak
Umhverfi sstofnun auglýsir laust til umsóknar tímabundið
starf umsjónarmanns með minkaveiðiátaki til ársloka 2009
hjá stofnuninni á deild lífríkis og veiðistjórnunar,
sem staðsett er á Akureyri.
Megin verkefni starfsmannsins verður að hafa með höndum daglega
umsjón minkaveiðiátaks, vera í tengslum við minkaveiðimenn og taka
á móti gögnum frá þeim. Næsti yfi rmaður starfsmannsins er deildarstjóri
lífríkis og veiðistjórnunar, sem heyrir undir svið náttúruauðlinda
Umhverfi sstofnunar. Nánari upplýsingar um starfi ð veita Bjarni Pálsson,
deildarstjóri, sími 460 7900 og Sigrún Valgarðsdóttir, starfsmannastjóri,
sími 591 2000.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafi ð störf sem fyrst.
Eftirfarandi kröfur um menntun, reynslu og þekkingu eru hafðar
til viðmiðunar við val á umsækjendum:
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun
• Reynsla af veiðum
• Góð tölvukunnátta, þekking á landupplýsingakerfi er kostur
• Góð íslenskukunnátta
Við val á umsækjendum verður að auki lögð áhersla á að
væntanlegur starfsmaður:
• Sýni frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt
• Sýni lipurð í samskiptum
• Geti unnið undir álagi
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og
Starfsmannafélags ríkisstofnana.
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfi ð.
Umsóknir um ofangreint starf skulu sendar rafrænt á netfangið
ust@ust.is eigi síðar en 14. apríl 2008.
Sjá nánari upplýsingar um Umhverfi sstofnun á www.ust.is
Njótum umhverfi sins og
stöndum vörð um það saman.