Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 11
SUNNUDAGUR 30. mars 2008 11 UMRÆÐAN Skipulagsmál Laugavegur er órjúfanlegur hluti af miðborgarmyndinni. Þar á að blómstra verslun í bland við ýmsa þjónustu og íbúabyggð. Því miður verð ég að segja að Laugavegurinn kemur mér nú dag fyrir sjónir sem skemmdur tanngarður. Auðvitað eru falleg gömul og ný hús við götuna en alltof mikið er af niðurníddum og auðum húsum. Inni á milli gapa við vegfarendum tómir grunnar húsa sem flutt hafa verið úr stað eða rifin. Stjórnvöld verða að skoða hvort herða beri reglur um skyldur eigenda húsa og lóða og nýta tiltæk viðurlög. Það er ekki hægt að leyfa eigendum að draga við sig eðlilegt viðhald og uppbyggingu. Borgaryfirvöld geta heldur ekki dregið eigendur á nauðsynlegum framkvæmdaleyfum. Veggjakrot bætir síðan gráu ofan á svart. Reynt hefur verið að sporna við því en betur má ef duga skal. Auð og niðurnídd hús bjóða heim sóðaskap og borgaryfirvöld verða að taka til hendinni. Það verður að einhenda sér í aðgerðir með aðkomu allra hagsmunaaðila. Það má engan tíma missa því ástandið hefur aldrei verið verra! Laugavegurinn hefur ekki það aðdráttarafl sem áður var og fyrr en við er litið hefur skapast vítahringur sem erfitt verður að brjótast út úr. Á undanförnum áratugum höfum við sveiflast á milli hugmynda um framtíð miðborgarinnar. Það hafa verið kynntar til sögunnar hugmyndir um að breyta þeirri götumynd sem við þekkjum í dag, nýir straumar og stefnur í húsagerðarlist fengið að leika um svæðið og ný hús skotið rótum inn á milli eldri húsa. Sitt sýnist hverjum um hvernig til hafi tekist og um ágæti þess að blanda saman mismunandi stílbrigðum. Einnig hafa verið uppi hugmyndir um að varðveita og viðhalda að mestu gömlu götumyndinni við Laugaveg. Eigendur húseigna, lóðaeigendur, verslunarrekendur, íbúar við götuna og borgaryfirvöld hafa því miður ekki alltaf gengið í takt. Nægir þar að nefna mismunandi hugmyndir um hæð húsa við götuna, varðveislu eldri húsa og þéttleika byggðarinnar. Í raun komum við Reykvíkingar okkur ekki saman um það hvernig við viljum sjá Laugaveginn þróast. Gildismatið er að breytast og sú hugsun að eitthvað hafi menningarlegt gildi vegur æ þyngra í hugum fólks. Jafnvel sérfræðingar á sviði húsafriðunar skipta nú um skoðun og raska þar með áður samþykktu skipulagi. Þar með erum við aftur komin á byrjunarreit. En þrátt fyrir mismunandi skoðanir megum við ekki sætta okkur við núverandi ástand. Í mínum huga er ótalmargt hægt að gera til að bæta ástandið. Það kostar fé en núverandi meirihluti í borginni hlýtur að vera tilbúinn til framkvæmda og sýna í verki raunverulegan áhuga og metnað fyrir hönd svæðisins í heild sinni. Mér finnst ekki sannfærandi að greiða himinháa fjárhæð fyrir tvö hús en leggja ekki fram í kjölfarið heildstæða stefnu um varðveislu, viðhald og uppbyggingu á öðrum húsum við götuna. Það er ekki hægt að eyrnamerkja allt þetta fé tveimur húsum en láta afganginn sigla sinn sjó. Höfundur er varaformaður Kjör- dæmasambands Framsóknar- félaganna í Reykjavík. Laugavegurinn er ljótur blettur á miðborginni SEND IÐ OKK UR LÍNU Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál efni líð andi stund ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn- orð. Ein göngu er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein- ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt- inga og til að stytta efni. FANNÝ GUNNARSDÓTTIR UMRÆÐAN Fiskveiðistjórnun Hún hefur farið nokk- uð hátt, sú umræða meðal Vest- firðinga og annarra þeirra sem er annt um byggðina að helsta ráðið til að snúa við byggðaþróuninni, eða rétt- ara sagt byggðahnignuninni, sé að stofna fríríki eða sjálfstjórnarhér- að. Mér er mjög annt um byggðirn- ar fyrir vestan og fannst á tíðum ferðum mínum sárt að koma til staða þar sem ég sá byggðunum greinilega hnigna frá ári til árs. Ég hef miklar efasemdir um að það sé rétt eða árangursríkt fyrir þá sem vilja breytingu að leiða talið að einhverju sjálfstæði Vestfjarða og leiða þá talið frá meginmeinsemd- inni sem er fiskveiðióstjórnin. Þá verður að segja eins og er að mikill meirihluti þeirra stjórnmálamanna sem hafa komið frá Vestfjörðum hefur stutt kvótakerfið sem hefur grafið undan byggðinni. Það hafa þeir gert þrátt fyrir loforð um annað fyrir kosningar og jafnvel eftir að hafa gengið undir borða á fjölmenn- um fundum þar sem á hefur verið letrað að orð skuli standa. Eitt síðasta voðaverk stjórnmála- mannanna var að setja minnstu bát- ana inn í alræmt kvótakerfi og það var gert þrátt fyrir viðvaranir og vissu um voveiflegar afleiðingar þess fyrir vestfirskar byggðir. Mun minna hefur heyrst frá bæjarstjórn- inni á Ísafirði um að verða við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna en að beita sér fyrir mögu- legri byggingu olíuhreinsistöðvar innan einhverra ára. Samt sem áður liggur fyrir að íslensk stjórnvöld þurfa að bregðast við áliti Samein- uðu þjóðanna eftir örfáar vikur. Skynsamleg breyting sem opnaði leið Vestfirðinga til sjávarins á ný yrði gríðarleg lyftistöng fyrir vest- firskar byggðir. Þá ríður mikið á að þeir sem óska Vestfjörðum og hinum dreifðu byggðum bjartrar framtíð- ar leggist á árar um breytingar í átt að frelsi til fiskveiða á Íslandi. Höfundur er líffræðingur. Frjálsir Vestfirðir SIGURJÓN ÞÓRÐARSON Ítarlegri og öruggari tjónask‡rslur ÓKEYPIS A‹STO‹ VI‹ GER‹ TJÓNASK†RSLU G O T T F Ó LK Ví›tækari Vegavernd tryggir vi›skiptavinum Sjóvá ókeypis a›sto› vi› ger› tjónask‡rslu, lendi fleir í umfer›aróhappi á höfu›borgarsvæ›inu. Hringdu í síma 440 2222 og sérhæf›ir, en jafnframt hlutlausir starfsmenn Aðstoðar og öryggis ehf. mæta á staðinn, taka ljósmyndir af vettvangi, skrá nákvæma atvikal‡singu og senda sk‡rsluna a› lokum rafrænt til trygginga- félagsins. fijónustan er í bo›i milli kl 7.00-18.30 alla virka daga. VEGAVERND – ENN EINN KOSTUR fiESS A‹ VERA Í STOFNI VÍ‹TÆKARI VEGAVERND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.