Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 83

Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 83
SUNNUDAGUR 30. mars 2008 27 FÓTBOLTI Það verður stórleikur á Anfield í dag þegar nágrannarnir Liverpool og Everton mætast. leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport 2 og hefst klukkan 15.00. Það er alltaf mikið undir þegar þessi fornfrægu félög mætast en aldrei meira en einmitt nú þegar þau eru einnig í harðri keppni um fjórða sætið og þar með þátttökurétt í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Félögin hafa mæst 204 sinnum, Liverpool hefur unnið 78 sinnum á móti 64 sigrum Everton. Liverpool er með tveggja stiga forskot þegar sjö umferðir eru eftir og því ljóst að úrslit leiksins í kvöld geta ráðið miklu um þróun mála á endasprettinum. Everton má alls ekki við því að tapa þessum leik en félagið hefur ekki unnið á Anfield síðan 1999. Liverpool vann umdeildan 2-1 sigur í fyrri leiknum á Goodison Park þar sem Dirk Kuyt skoraði bæði mörk Liverpool úr vítaspyrnum. „Við höfum undanfarin ár ekki veitt þeim eins mikla keppni og við vildum en nú öndum við ofan í hálsmálið þeirra. Það væri frábært að komast í Meistaradeildina og þessi leikur ræður miklu um það. Sigurvegarinn verður kominn í lykilstöðu og ég er viss um að það myndi gera útslagið fyrir okkur að vinna. Við erum mjög spenntir fyrir því að fá að spila í stóru keppninni eftir að hafa verið í Evrópukeppni í vetur,“ sagði David Moyes, stjóri Everton. Bæði lið verða án lykilmanna í leiknum. Javier Mascherano hjá Liverpool tekur út leikbann í kjölfar rauða spjaldsins gegn Manchester United um síðustu helgi og þá er það ljóst að Tim Cahill hjá Everton verður ekki meira með í vetur. -óój 205. derby-leikurinn á Merseyside milli Liverpool og Everton hefur enn meiri þýðingu en vanalega: Berjast um fjórða Meistaradeildarsætið HVERJIR FAGNA? Fernando Torres, Steven Gerrard og Yakubu verða í stórum hlutverkum í dag. KÖRFUBOLTI Kobe Bryant skoraði 53 stig gegn Memphis Grizzlies en það var þó ekki til þess að koma í veg fyrir annað tap Los Angeles Lakers í röð. Fimm leikmenn Memphis skoruðu yfir tíu stig og liðið vann 114-111 sigur. „Við gerðum ekki það sem við eigum að gera í vörninni og eigum í miklum vandræðum með að halda okkur fyrir framan boltann. Við erum núna búnir að tapa fyrir tveimur liðum sem við mætum sem betur fer ekki í úrslitakeppninni,“ sagði Bryant eftir leikinn en hitt tapið var á móti Charlotte. Kobe fékk tæknivillu í leiknum og má ekki fá aðra í síðustu níu leikjunum því þá fer hann í eins leiks bann. Þetta var í 23. sinn á ferlinum sem Bryant skorar 50 stig eða meira en Lakers hefur unnið 16 af 23 leikjum sínum þegar Kobe er með svo mörg stig. - óój Kobe Bryant hjá LA Lakers: Einni tæknivillu frá leikbanni 15 TÆKNIVLLUR Kobe Bryant hefur látið dómarana heyra það í vetur. NORDICPHOTOS/XXX NFL Eigendur NFL-liða munu funda um ýmis mál í næstu viku og meðal þess sem er á dag- skránni er að taka afstöðu til þess hvort banna eigi leikmönnum að vera með sítt hár. Kansas City Chiefs hefur lagt fram tillögu um að leikmönnum verði bannað að hafa hár sem nær yfir nafn leikmannanna á baki búninganna. Leikmenn verða ekki neyddir í klippingu og sleppa ef þeim tekst að troða hárinu innan í hjálminn sinn. Nokkrir leikmenn í NFL- deildinni eru með mjög sítt hár og þeirra þekktastur er líklega Troy Polamalu hjá Pittsburgh Steelers en hárið á honum nær niður á mitt bak. Skal engan undra þar sem hann hefur ekki farið í klippingu síðan árið 2000. Hann fékk að kenna illa á því að vera með sítt hár fyrir tveim árum síðan er hann var tæklaður illa á hárinu. Hann sá þrátt fyrir það enga ástæðu til að fara í klippingu en hann gæti þurft að hitta rakara ef þessi tillaga nær í gegn enda kemst allt þetta hár aldrei undir hjálminn. - hbg NFL-eigendur funda: Verður sítt hár bannað í NFL? TROY POLAMALU Gæti þurft að fara í klippingu fyrir næsta vetur. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.