Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 74
18 30. mars 2008 SUNNUDAGUR Það er oft ákveðinn höfuðverkur að ákveða um hvað þessir vikulegu pistlar eigi að vera. Stundum er of margt sem hægt er að tjá sig um og stundum ekki neitt. Núna væri til dæmis mjög auðvelt að tjá sig eitthvað um gengi krónunnar og efnahagsástandið, en það verður ekki gert í þetta skiptið. Þetta á nú einu sinni að vera svolítið skemmti- legt. Mér þykja afmæli alltaf skemmti- leg. Þá er ég ekkert að tala um mín eigin afmæli, heldur bara afmæli almennt. Ég geri mér samt grein fyrir því að það eru margir mjög ósammála mér í þessu – þola ekki afmæli og sjá bara ekkert skemmti- legt við það að verða árinu eldri. Ástæðan fyrir því að ég fór að velta fyrir mér afmælum er sú að á föstudaginn átti mjög merkileg kona stórafmæli. Svo stórt að það eru ekkert sérstaklega margir sem ná að halda upp á það. Hvað þá með slíkum stæl og þessi kona. Svo ég ákvað að kynna lesendur þessa pistils fyrir henni ömmu minni. Hún varð nefnilega áttræð á föstudaginn. Ég þekki ekki margt áttrætt fólk sem er eins og hún. Reyndar þekki ég ekkert mjög mikið af áttræðu fólki yfirhöfuð, en ég veit samt að hún er í algjörum sérflokki. Það eru ekkert margir á þessum aldri sem fara í sund á nánast hverjum morgni, passa mjög fjörug barna- barnabörn heilu dagana og næturnar og bjóða öllum afkomendunum í kaffiboð um hverja helgi, þar sem meðal annars eru heimabakaðar pítsur á boðstólnum. Ég fékk reyndar ekki að halda upp á stórafmælið með henni því amma skellti sér til London um helgina. Þar bjó hún og vann í sendiráðinu sem ung kona á eftirstríðsárunum, og alla tíð síðan hefur hún haldið tryggð við borgina og passað að heimsækja hana reglulega. Fyrir mér sýnir amma það vel að aldur er oftar en ekki bara hugarástand. Það ættu allar fjölskyldur að eiga allavega eina svona ömmu eins og mína. STUÐ MILLI STRÍÐA Aldur er bara hugarástand ÞÓRUNN ELÍSABET BOGADÓTTIR HÉLT UPP Á ÁTTRÆÐISAFMÆLI ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Kort 100 kr. Tja... Hvað get ég sagt? Líf mitt hefur tekið miklum breytingum! Til hins betra! Ég er fluttur að heiman, er komin með fasta vinnu og fluttur inn til yndislegrar konu! Það gengur allt vel! Í fyrsta skipti líður mér eins og ég hafi meðbyr! Ég er happy! Ég hélt kannski að þetta væru góðar fréttir? Þú ert bara að grínast í mér! Þú ert veikur! Veikur! Til hægri! Sagðirðu ekki að mamma þín væri í burtu? Ég sagði að hún hefði farið í göngutúr! Inn í reykinn! Flýttu þér, þá náum við að skrúfa dekkin af rúgbrauð- inu og setja þau á bílinn hennar aftur, áður en hún kemur heim! Við erum sloppnir, félagi! Sjáðu! Ég hef skrifað mjög spennandi lýsingu á lífi mínu! En þú gerir ekkert annað en að sofa! Ertu búinn að lesa hana? Vandamálið með svona heim- sóknir er að börnin fara aldrei að sofa á skikkanlegum tíma Þau eru vakandi svo lengi að þau eru þreytt og úrill restina af helginni! Auðvitað! Vakið alla nóttina! Skemmtið ykkur! Hver hefur áhyggjur af morgundeg- inum? Ég skal segja þér það að í rauninni eru það foreldr- arnir sem þjást! Ég get staðfest það! LIST VINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRK JU 26. STARFSÁR AÐGANGSEYRIR 2000 KR. MIÐASALA Í HALLGRÍMSKIRK JU S. 510 1000 Camerarctica og Marta Guðrún Halldórsdóttir T Ó N L E I K A R Í H A L L G R Í M S K I R K J U S U N N U D A G I N N 3 0 . M A R S 2 0 0 8 K L . 1 7 sópran l i s t v i n a f e l a g . i s ELÍN GUNNLAUGSDÓTTIR: Sálmar á atómöld ÞORKELL S IGURBJÖRNSSON: „Allir verði eitt“ - sálmur í þýðingu Sigurbjörns Einarssonar biskups fyrir sópran, flautu, klarinett og strengjakvartett - MAX REGER: Kvintett fyrir klarinettu og strengi í A dúr op.146 F R U M F LU T N I N G U R MENNTAMÁLA- RÁÐUNEYTIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.