Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 24
48 STUNDIR Í KÖBENBORGARFERÐIR 8 FERÐALÖG FÖSTUDAGUR 09.00-12.00 Smörrebröð að morgninum og ekki sakar að fá sér einn grænan Tuborg. Uppáhaldsstaðurinn minn til þess er Ida Davidsen í Nyhavn sem er náttúrlega alveg stór- kostlegur á þessum tíma dags. Ekki skemmir fyrir útsýnið yfir alla smábátana og skúturnar og fyrr en varir er maður kominn í siglingu á framandi slóðir. 12.00-16.00 Kaupmannahöfn er ekki bara „hygge“-borg því þar er urmull af flottum verslunum. Ég mæli sjálfur með Elmegade uppi á Nörrebro, þar í kring eru margar skemmtilegar búðir sem gaman er að kíkja í. Hið íslenska Laundromat er í næsta nágrenni og þar er hægt að fá alvöru kaffi, jafnvel hægt að þvo nýju fötin ef þannig liggur á manni. 18.00-20.00 Söfnin í Kaupmannahöfn eru mörg hver ótrúleg. Eitt af þeim skemmtilegri og fræðandi er safnið um seinni heimsstyrjöldina í einni af hliðargötu Striksins. Þar er hægt að sjá misskemmtilegar myndir og minjar um þau áhrif sem hernám Þjóðverja hafði á danskt þjóðlíf. 21.00-23.00 Einn af fjölmörgu sushi-stöðum sem spretta upp eins og gorkúlur í höfuðborg Dana. Einn af mínum eftirlætisstöðum er án nokkurs vafa staðurinn með skemmtilega nafnið Sachi Sushi á Vesterbrogade, huggulegur staður þar sem hægt er að snæða einn af bestu sushi- réttum borgarinnar í góðra vina hópi 23.00-03.00 Mexi-bar, ódýrasti kokteilbarinn í Danmörku og þó víðar væri leitað. Myndast alltaf skemmtileg stemning á slíkum knæpum og menn hafa látið flakka ótrúleg gullkorn eftir að hafa sötrað á suðrænum vökva. 03.00 Pylsubílarnir á Strikinu eru bestu vinir svangs ferðalangs eftir langan dag. LAUGARDAGUR 08.00 Yfirleitt reyni ég að rífa mig á fætur klukkan átta og stekk út í næsta bakarí, þau eru nánast á hverju horni og alltaf með nýbakað góðmeti. 10.00 Fer út að skokka og kýs þá helst að hlaupa í garðinum í kringum Fælledparken og reyni að koma blóðrásinni af stað. 12.00 Ferðinni er heitið í siglingu á Nyhavn í síkjunum kringum Kaupmannahöfn. Þar fær maður einstaklega skemmtilega sýn á borgina og fróðleik um hana á ýmsum tungumálum. 15.00 Tilvalið að skjótast í Tivólíið ef það er opið. Maður er hreinlega aldrei of gamall fyrir rússíbana. Annars er gaman að geta þess að ég er ákaflega lofthræddur en píni mig í tækin til að halda karlmennskunni. Skammt undan er síðan vaxmyndasafnið þar sem hægt er að sýna ungviðinu allar helstu stjörnur samtímans. 18.00 Museum Erotica við Købmager- gade 24 er opið til átta á kvöldin. Og alveg kjörinn staður að kíkja á fyrir kvöldið. Alveg merkilegt hvað það er hægt að hafa gaman af kynlífsvenjum fólks í gegnum tíðina. 20.00 Hviids Vinstue er tilvalinn fyrir fordrykkinn. Hinn þrjú hundruð ára gamli staður hefur síður en svo glatað sjarma sínum, þjónarnir hafa ekkert breyst síðan íslensku námsmennirnir sátu þar og lögðu drög að sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Ekki skemmir að sjá má glitta í mynd af sjálfum Jóni Sigurðssyni. 22.00 Rölt eftir Nyhavn og það skiptir eiginlega engu máli inn á hvaða stað maður fer, alltaf er jafn huggulegt að sitja undir hitalömpunum í byrjun vorsins og fylgjast með mannlífinu, skrautlegum persónum ásamt því að borða góðan mat. Mæli sérstaklega með því að fólk fái sér „stjerneskud“, sem er fiskur í raspi, rækjur og þess háttar. 00.00 Alveg kjörið að finna góða tónleika í miðborg Kaupmannahafnar sem eru nánast á hverju strái. Gott að kíkja á Billetnet.dk og athuga hvort einhverjir áhugaverðir tónlistar- menn séu að spila í nágrenninu. Oft eru ágætis tónleikar á Vega sem er á Vesterbro. POTTÞÉTT LEIKKERFI FYRIR GÓÐUM DEGI Í KÖBEN Vignir Svavarsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur um þriggja ára skeið búið í smábænum Skjern á Vestur-Jótlandi. Þrátt fyrir að frítími atvinnumanns í handbolta sé ekki mikill þá nýtir Vignir sér þær fáu stundir sem hann hefur afl aga og skellir sér í helgarferð til vina og kunningja í Kaupmannahöfn. Vignir féllst á að upplýsa lesendur Ferðalaga um hvernig draumahelgin í kóngsins Kaupinhavn væri í hans huga. Gamla höfuðborgin Kaupmannahöfn hefur síður en svo glatað sjarma sínum og er alltaf kjörin fyrir helgarferðir á vorin jafnt sem haustin. Snilld Líkt og í öðrum stórborgum heimsins hafa sushi-veitingastaðir sprottið upp eins og gorkúlur í Kaupmannahöfn. Smörrebrauð Varla er hægt að ímynda sér ferð til Danmerkur án þess að hafa gætt sér á gómsætu smörrebrauði. Nyhavn Einhver ákaflega skemmtilegur andi svífur yfir vötnum við Nyhavn og þar er iðandi mannlíf á nánast hverju kvöldi. Vignir Svavarsson fer ekki ofan af því að Kaupmannahöfn leyni alltaf á sér þrátt fyrir að hafa komið þangað oftar en einu sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.