Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 22
ÞAÐ HEITASTA Í ... HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR 6 FERÐALÖG UPPÁHALDSVERSLUNARGATAN / HVERFIÐ: Gaman að rölta um Wudaokou-hverfið sem er hluti af háskólahverfinu. Bæði verslunarmiðstöðvar og einnig pínkulitlar bútik búðir þar sem þú getur fundið ýmislegt skemmtilegt. En annars hefur það reynst mér best hérna að fara til skraddarans Toby og fá saumað á mig það sem hugurinn girnist fyrir frekar lítinn pening. SKEMMTILEGASTA KAFFIHÚSIÐ TIL AÐ STOPPA Á: The Book- worm er frábært kaffihús í SanLiTun-hverfinu, samansett af bókasafni, bókabúð og kaffihúsi. Allir veggir eru þaktir bókum og hægt er að kaupa enskar bækur og blöð sem er ekki hægt alls staðar hér í borg. Mæli með salati með grilluðu grænmeti og pönnusteiktum geitaosti. SMARTASTI BARINN: West Bar. Mjög flottur bar sem býður upp á frábært úrval af drykkjum sem hægt er að sötra við lifandi djasstónlist. EKKI MISSA AF... Listahverfinu 798, magnað hverfi, var verksmiðjuhverfi sem breytt var í listahverfi með áherslu á nútímalist. Fullkomin blanda af hráu verksmiðjuumhverfinu sem hefur fengið að halda sér fullkomlega en inniheldur nú fullt af listagalleríum, kaffihúsum og veitingastöðum. NEFNDU TVO BESTU VEITINGA- STAÐINA Í BORGINNI: Jap- anski veitingarstaðurinn Isshin í Wudaokou-hverfinu býður upp á æðislegt sushi og annan japansk- an mat á ótrúlega ódýru verði. Flottur staður sem alltaf er gaman að koma á. Xianmanlou Restaurant í Chao Yang-hverfinu, býður upp á dásamlega pekingönd með öllu tilheyrandi í heimilislegu umhverfi á mjög góðu verði. NÝJASTA UPPGÖTVUNIN ÞÍN: Bohdi Sense er nýtt spa í Chao Yang-hverfinu sem býður upp á nudd og annað dekur í ljúfu umhverfi sem fær mann til að slaka algjörlega á. ÞAÐ SEM KEMUR MEST Á ÓVART VIÐ PEKING ER: Hversu miklar andstæður eru hérna, þú getur fengið frábæran mat fyrir 160 kr. eða fyrir 30.000 kr. Það eru himinháar byggingar hérna en á öðrum stöðum eru bara kofar. Þú sérð hlið við hlið í umferðinni stórglæsilega bíla og illa ryðguð reiðhjól. Endalausar andstæður sem gerir borgina mjög lifandi og sjarmerandi. SKEMMTILEGASTA DAGSFERÐIN: Houhai-garðurinn er yndislegur staður, stór og fallegur garður þar sem líka er hægt að ganga um kínverskt hverfi , Hutongs, sem er eins og Peking var í gamla daga. Fullt af flottum veitingastöðum og börum. Einnig hægt að kíkja í tehús og fá te eftir öllum kínverskum kúnstarinnar reglum. Frábær staður hvort sem það er að degi til eða um kvöld. HEIMAMAÐURINN Peking KOLBRÚN ÓLAFSDÓTTIR, HÁSKÓLANEMI Í ALÞJÓÐASAMSKIPTUM OG KÍNVERSKU Ímyndið ykkur eyju þar sem hvítar strendur virðast óendanlegar, pálmatré ber við túrkís- bláan himin og hitastigið er alltaf hlýtt og notalegt. Á eyjunni Barba- dos má sjá virðuleg hús í nýlendu- stíl og heimamenn, sem kallast Bajans, dreypa á tei eða Pimms með klaka og gúrkusneið. Það er ekki skrítið að breskt andrúmsloft ríki á þessari paradísareyju þar sem Bar- bados var bresk nýlenda fram á sjö- unda áratuginn og hefur oft verið nefnd „Litla Bretland“ Karíbahafs- ins. En þetta er aldeilis ekki það sveitta og sólbrennda andlit Bret- lands sem við sjáum stundum bregða fyrir í massavís á spænsku ströndum. Barbados-eyjan er sótt af vel ættuðum og efnuðum Bret- um, og ekki óalgengt að sjá frægum andlitum bregða fyrir. Það er held- ur ekkert skrítið að Barbados sé ferðamannaparadís. Hér líður tím- inn hægt, andrúmsloftið er dásam- lega rólegt og notalegt og laust við ys og þys. Náttúran er stórbrotin, hvort sem það er við strendurnar eða þjóðgörðum innan eyjunnar þar sem gefur að líta mikla skóga og náttúrulíf eins og páfagauka, apa og græneðlur. Þeir sem nenna ekki að liggja í sólinni allan daginn geta brugðið sér á sjóstangaveiðar, í köf- unarferð eða á sjóskíði. Lífsnautna- seggir hafa einnig af nógu að taka því að það eru ógrynni dásamlegra veitingahúsa á eyjunni. Svo geta áhugasamir dreypt á rommi en hér, eins og annars staðar í Karíbahaf- inu er ræktaður sykurreyr og það er meira að segja hægt að heim- sækja rommverksmiðjuna sem heitir því skemmtilega nafni Mount Gay. Hægt er að komast til Barba- dos frá til dæmis London eða Kaup- mannahöfn en Íslendingum býðst líka sá þægilegi kostur að fljúga beint þangað með Heims ferðum í október og nóvember. www.heimsferdir.is BRESKAR HEFÐIR Á HVÍTUM STRÖNDUM Barbados er sannkölluð paradísareyja. www.ultimathule.is Spennandi ferðir um allan heim BÓKAÐU NÚNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.