Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.03.2008, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 30.03.2008, Qupperneq 10
10 30. mars 2008 SUNNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Ríkisstjórnin þekki sín takmörk Með aðild okkar að evrópska efnahagssvæð-inu urðu miklar breytingar á fyrirkomu- lagi stjórnsýslunnar og stjórnunarhátta á Íslandi. Með innleiðingu frelsis í viðskiptum og flutning- um fjármagns opnuðust nýir möguleikar sem ekki höfðu áður verið fyrir hendi. Það sem breytti þó mestu var að stjórnvöld fengu nýtt og gjörbreytt hlutverk við þessar nýju aðstæður, þ.e. að setja lög og reglur fyrir frjálst viðskiptalíf og hafa síðan eftirlit með því að farið sé að þeim lögum og reglum. Þær stofnanir sem því hlutverki gegna eru svo- kallaðar eftirlitsstofnanir og má í því sambandi nefna Samkeppniseftirlitið, Fjármálaeftirlitið og að hluta til talsmann neytenda. Aðrar stofnanir sem hafa mikilvægu hlutverki að gegna og heyra undir Alþingi eru umboðsmaður Alþingis og Rík- isendurskoðandi. Þessi embætti hafa eftirlit með framkvæmdavaldinu og eiga að aðstoða Alþingi við að sjá til þess að ráðherrar misnoti ekki vald sitt. Sjálfstæði eftirlitsstofnana Það ætti að vera augljóst að sjálfstæði og fag- leg vinnubrögð eftirlitsstofnana er mjög mik- ilvægt. Í upphafi ferils míns sem viðskiptaráð- herra stóð ég frammi fyrir þeirri spurningu hvort sameina ætti Landsbankann og Búnaðarbankann áður en sala færi fram. Í samkeppnislögum var ákvæði sem heimilaði forúrskurð Samkeppnis- stofnunar í tilfellum sem þessum. Það varð því úr að ég óskaði formlega eftir forúrskurði um það hvort slík sameining samræmdist ákvæðum sam- keppnislaga. Niðurstaðan var sú að svo væri ekki og barst mér sú frétt sem viðskiptaráðherra um klukkustund áður en hún var gerð opinber. Þetta er að mínu mati dæmi um vinnubrögð sjálfstæðra samkeppnisyfirvalda. Núverandi ríkisstjórn og eftirlitsstofnanir Ég hef ástæðu til að vantreysta núverandi ríkis- stjórn í sambandi við sjálfstæði eftirlitsstofnana. Í fyrsta lagi er mér kunnugt um að sjálfstæðismenn eru lítið gefnir fyrir stofnanir sem þeir geta ekki stjórnað pólitískt og í öðru lagi benda upphlaup sumra Samfylkingarmanna á síðustu kjörtímabil- um til hins sama. Má þar nefna Jóhönnu Sigurðar- dóttur sem fór ófáar ferðir í ræðustól til að óska eftir því að ég, sem viðskiptaráðherra, beindi því til Fjármálaeftirlitsins að rannsaka gjörðir hinna ýmsu fjármálastofnana. Svar mitt var alltaf það að Fjármálaeftirlitið væri sjálfstæð eftirlitsstofn- un og ég segði henni ekki fyrir verkum. Þess má geta að Jóhanna var talsmaður Samfylkingarinnar í efnahagsmálum. Sá atburður sem átti sér svo stað nú í vikunni af hálfu fjármálaráðherra gagnvart umboðsmanni Alþingis keyrir þó um þverbak. Þar er valdhrok- inn í algleymingi og einnig vanþekking á stöðu ráð- herra gagnvart sjálfstæðri eftirlitsstofnun. Það er því eðlilegt að spurt sé hvort ríkisstjórnin ætli að hunsa sjálfstæði faglegra eftirlitsstofnana. Hvað segir t.d. formaður Samfylkingarinnar nú sem talað hefur svo oft um meðferð opinbers valds og að þar þurfi að standa faglega að málum? Sjálfstæðið er lífsnauðsyn Í flóknu samfélagi skiptir miklu að eftirlit með viðskiptaháttum og stjórnsýslu sé skilvirkt og vandað. Við höfum á undanförnum árum byggt upp sífellt fleiri sjálfstæðar eftirlitsstofnanir, í því skyni að sinna því eftirliti. Það er jákvæð þróun. Nú síðast hefur Samfylkingin beitt sér fyrir verulegri aukningu framlaga til Samkeppnis- eftirlitsins. Tilvist eftirlitsstofnana leysir stjórnmálamenn hins vegar ekki undan ábyrgð á stefnumörkun í viðskiptalífi og stjórnsýslu. Tökum dæmi: Þótt Samkeppniseftirlitið hafi verið eflt og stutt við starf þess eru það stjórnmálamenn sem setja þær reglur sem Samkeppniseftirlitinu er ætlað að hafa eftirlit með og ráða því þeim mælikvörðum sem eftirlitsstofnunin vinnur eftir. Þannig geta stjórn- málamenn ekki afsakað aðgerðaleysi með því að vísa á sjálfstæði eftirlitsstofnana – ef eftirlitið nær ekki fullnægjandi árangri þurfa stjórnmála- menn að axla ábyrgð af ófullnægjandi regluverki. Sjálfstæði og hlutleysi Sjálfstæði eftirlitsstofnana er mikilvægt til að tryggja hlutleysi þeirra við meðferð mála. Það er sérstaklega mikilvægt í litlu landi eins og okkar, þar sem mýmörg dæmi eru um misbeit- ingu opinbers valds af hálfu stjórnvalda frá fyrri tíð, að tryggja að pólitískt kjörnir fulltrúar fari ekki með beint eftirlit með leikreglum á flóknum mörkuðum. Þetta er ekki síður mikilvægt í opinberri stjórn- sýslu. Þess vegna heyra embætti umboðsmanns Alþingis og Ríkisendurskoðun undir Alþingi en ekki framkvæmdavaldið. Fram til 1986 var Rík- isendurskoðun hluti af fjármálaráðuneytinu og enginn umboðsmaður Alþingis var til. Hvar var eftirlit með framkvæmdavaldinu þá? Til- urð þessara stofnana sem sjálfstæðra eftirlits- stofnana bar upp á sama tíma og aukins áhuga varð vart á stjórnfestu í opinberri stjórnsýslu og vildarréttarviðhorf voru á undanhaldi í samfé- laginu. Fram að þeim tíma var almennt talið að stjórnvöld hefðu umtalsvert frjálst mat við töku stjórnsýsluákvarðana. Í dag er almennt viður- kennt að við slíkar ákvarðanir sé svigrúm stjórn- valda mun takmarkaðra en áður var talið og að allar ákvarðanir þurfi að byggja á faglega boðleg- um forsendum sem sætt geti endurmati umboðs- manns og dómstóla. Fagleg vinnubrögð Það er nefnilega grundvallaratriði að fagleg vinnubrögð ráði ferðinni í stjórnsýslu ríkisins og að íþyngjandi eða ívilnandi ákvarðanir séu mál- efnalegar og vel rökstuddar. Eins og Ingibjörg Sólrún sagði í janúar á allt vald að lúta eftirliti og almenningur á að vera óhræddur við að skjóta málum til úrskurðarnefnda og umboðsmanns. Stjórnmálamenn eiga til dæmis að líta á embætti umboðsmanns sem velviljaðan stuðning og sækja í samskipti og álit hans sem lærdómsbrunn. Sjálfstæðar eftirlitsstofnanir eru forsenda sið- legs samfélags, þar sem réttindi allra borgara eru tryggð. Án sjálfstæðra eftirlitsstofnana bjóðum við heim hættu á misbeitingu valds og geðþótta- ákvörðunum. Þannig stjórnarhætti viljum við ekki. BITBEIN Valgerður Sverrisdóttir spyr: Er sjálfstæði eftirlitsstofnana mikilvægt? VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR ÁRNI PÁLL ÁRNASON Ó löf Nordal alþingismaður opnaði greinaflokk um Evrópumálefni hér í Fréttablaðinu í liðinni viku með þörfum ábendingum um aðferðafræði þessarar mikil- vægu umræðu. Vilji menn uppbyggilega rökræðu um slík viðfangsefni er mikilvægt að að glöggva sig sem best á því í upphafi hvernig ræða skuli. Segja má að umræður um Evrópumálefnin hefi verið út og suður og reyndar eins og án fyrirheits í allmörg ár. Ólöf Nordal bend- ir réttilega á að umræða um Ísland og Evrópusambandið þurfi að byrja á réttum enda eigi hún að vera á skynsamlegum nótum. Í því sambandi tekur hún af skarið um að Ísland eigi ekki að sækja um aðild fyrr en nauðsynlegar breytingar hafi verið gerðar á stjórn- arskránni. Þingmaðurinn telur að það sé frekar tímaspursmál en hitt hvenær við stöndum frammi fyrir þessari ákvörðun. Flest bendir til að það sé rétt pólitískt mat. En það breytir ekki þeirri staðreynd að hjá því verður ekki komist að byrja á byrjuninni. Eins og sakir standa er Evrópusambandsaðild andstæð stjórnarskránni. Þar af leiðir að ljóst má vera að uppbyggileg umræða um framtíðar stöðu Íslands í Evrópu þarf að hefjast með umræðum um stjórnarskrárbreytingar og ákvörðunum þar að lútandi. Bjarni Benediktsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, tók merkilegt frumkvæði í febrúar síðastliðnum með ábendingum um mikilvægi þess að koma þessari umræðu í ákveðinn markvissan og tímasettan feril. Dómsmálaráðherra reifaði nýverið með svipuð- um hætti hugmyndir af þessu tagi og kallaði eftir vegvísum í því samhengi. Óraunhæft er að ljúka stjórnarskrárbreytingu fyrr en við lok kjörtímabils með því að hún kallar á samþykki tveggja þinga með kosningum á milli. Mikilvægt er að allar leikreglur í þessu efni liggi fyrir áður en þjóðin þarf endanlega að gera upp hug sinn um það mat á íslenskum hagsmunum sem eðlilega hlýtur að liggja til grundvallar ákvörðun af þessu tagi. Ætla verður að ágreiningslaust sé að löggjöf um aðild öðlist ekki gildi nema þjóðin samþykki hana í allsherjaratkvæðagreiðslu. En hinu þarf að svara hvort gera eigi kröfur um aukinn meirihluta og lágmarks stuðning allra atkvæðisbærra manna. Margt mælir með því að fyrirfram sammælist menn um að þetta skref verði því aðeins stigið að rúmur meirihluti þjóðarinnar standi þar ótvírætt að baki. Annað álitaefni snýr að því hvernig taka á ákvörðun um að óska eftir aðild og leita eftir samningum þar um. Á Alþingi að taka þá ákvörðun? Eða á ákvörðun Alþingis að vera háð samþykki þjóðar- innar? Skynsamleg rök eru fyrir því að láta gildi slíkrar ákvörðunar velta á úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslu. Verði nauðsynlegar breytingar gerðar á stjórnarskrá við lok þessa kjörtímabils vaknar spurningin hvenær rétt væri að bera málið undir þjóðina. Eins og mál horfa við í dag ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að slík atkvæðagreiðsla færi fram þegar á haust- dögum eftir næstu þingkosningar. Allar tímasetningar varðandi formlegan framgang málsins eru á hinn bóginn háðar því að á þeim tíma sem fram undan er náist jafn- vægi í þjóðarbúskapnum og umræða fari fram á breiðum grund- velli um mat á framtíðar hagsmunum Íslands í breyttu alþjóðlegu umhverfi. En kjarni málsins er sá að verði ekki byrjað á réttum enda er líklegast að umræðan fari út um víðan völl sem fyrr. Að byrja á réttum enda: Evrópuumræðan ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR Borgarstjórinn rekur lestina Það verður seint sagt að festa fylgi stjórnmálunum í Reykjavíkurborg. Langvarandi hringlandaháttur með flugvöllinn er nú farinn að reyna á þolrif sveitarstjórnarmanna á lands- byggðinni eins og Birna Lárusdóttir, formaður bæjarstjórnar á Ísafirði, hefur bent á. Ekki tekur því að byggja samgöngumiðstöðvar við flug- völlinn sem fararsnið hefur verið á í árafjöld og þetta er Birna ósátt við. Svo virðist vera ósam- staða í lestarmálinu þar sem borgarstjórinn hefur efasemdir um slíkar samgöngur en borgarráð vildi leita lags í þessu máli í fjarveru hans síðastliðinn fimmtudag og samþykkti þá að láta kanna fýsi- leika lestarsamgangna milli höfuð- borgarinnar og Keflavíkur. Borgin missir af lestinni Í Reykjanesbæ hefur hins vegar þegar verið gert ráð fyrir lestarsamgöng- um á aðalskipulaginu. Aðspurður sagðist Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, ekki hafa neinar áhyggjur af því að þeir yrðu háðir tregðu borgaryfirvalda í þessu máli. „Borgin hlýtur að sjá sér hag í því að fólk komist sem hraðast frá alþjóðaflugvellinum og í höfuðborgina. Nú og ef einhver tregða er í þeim þá bara tengjum við þetta við Suðurlandið,“ sagði hann og brosti þegar Fréttablaðið spurði hann út í þessa hluti. Borgin rekur lestina Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, sem og Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á Akranesi, segja að íbúum fjölgi þar gríðarlega og komi þeir margir úr borginni. Sagði Aldís að í Hveragerði hefðu menn alla kosti borgarinnar en væru lausir við ókosti hennar. Eflaust kysu mun fleiri að vera lausir við ókosti borgarinnar um þessar mundir. Borgin er í rusli, er að missa af lestinni og nær ekki flugi. jse@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.