Fréttablaðið - 30.03.2008, Síða 12
12 30. mars 2008 SUNNUDAGUR
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
Nýlega komu út þrjár raðir nýrra
frímerkja hjá Íslandspósti. Íslenskur
útsaumur, þjóðsögulegir staðir og
gömul landbúnaðartæki eru myndefnin
en Íslandspóstur hefur í nokkur ár gefið
út raðir frímerkja með myndum úr
atvinnusögu þjóðarinnar.
Hlynur Ólafsson, grafískur hönnuður,
hannaði fjögur nýju merkjanna með
myndum af landbúnaðarstörfum fyrri
ára. „Ég hef verið að teikna fyrir
Íslandspóst síðan 1993 og ætli ég sé
ekki búinn að teikna yfir fimmtíu
merki,“ segir Hlynur sem rekur
teiknistofu í Hamraborg í Kópavogi.
„Landbúnaðartækin urðu ofan á núna
en ég vann merkin upp úr gömlum
ljósmyndum frá landbúnaðarsafninu
á Hvanneyri í samvinnu við Bjarna
Guðmundsson safnstjóra. Öll tækin
eiga sér sögu og Bjarni var mér innan
handar svo allt væri rétt.“
Þúfnabani, Ferguson dráttarvél,
plógur og jarðýta eru tækin sem prýða
frímerkin en sex þúfnabanar komu til
landsins á árunum 1921 til 27 og voru
notaðir við túnsléttun. International
Harvester jarðýtan var fyrsta
beltavélin með ýtutönn sem reynd var
við jarðvinnslu á Íslandi og árið 1949
kom fyrsta Ferguson-dráttarvélin til
landsins og er sú mest selda hérlendis.
Skoskur plógur kom svo fyrir tilstuðlan
fyrsta búnaðarskólans, í Ólafsdal við
Gilsfjörð, fyrir aldamótin 1900.
Við vinnslu frímerkjanna studdist
Hlynur við þá gömlu aðferð þegar
svarthvítar ljósmyndir voru handlitaðar,
til að ná fram birtu og frískleika.
Frímerkin vinnur hann þó í tölvu og
eru þau jafnvel samsett úr mörgum
ljósmyndum til að gefa raunsanna mynd
af bústörfum fyrri ára.
„Þúfnabanann staðsetti ég til dæmis
með Esjuna í baksýn því það er vitað
til að samskonar tæki var notað uppi á
Korpúlfsstöðum og þar í kring. Vinnan við
frímerkin krefst mikils undirbúnings og
rannsókna þannig að þetta er gríðarlega
skemmtileg vinna og algjör forréttindi
fyrir grafískan hönnuð,“ segir Hlynur.
Sjálfur ólst hann upp í Vestmannaeyjum
við sprang en var þó sendur í sveit sem
strákur svo hann er ekki ókunnugur
sveitastörfunum. „Ég var í sveit á
Hornafirði á Volaseli í Lóni hjá Trausta
Jónssyni, fór þangað tíu ára svo ég
þekki aðeins til. „Frímerkin eru prentuð
erlendis í öryggisprentsmiðjum eins
og peningaseðlar en frímerki eru talin
ígildi peninga og undirbúningsvinna og
nákvæmni er mikil í frímerkjahönnun.“
Hlynur segir íslenska hönnuði
framarlega hvað varðar tæknivinnu og
þeir hafi ávallt staðið sig vel í þessum
verkefnum. En á hann sér einhver
uppáhaldsfrímerki?
„Það er nú erfitt að gera upp á milli
frímerkjanna því þetta er svo skemmti-
leg vinna. Dagsdaglega á teiknistofunni
hönnum við veltiskilti og vefsíður og í
þannig verkefnum er alltaf verið að
keppa við klukkuna og redda hlutum
á síðustu stundu. Frímerkjavinnan er
því hálfgert gæluverkefni sem ég er að
grípa í marga mánuði og það er mikill
metnaður í útgáfunni hjá Íslandspósti.
Gríðarleg fjölbreytni í myndefnum og
hlutirnir gerðir af fullri alvöru þannig
að það er algjört draumaverkefni að fá
að teikna frímerki.“ heida@frettabladid.is
HLYNUR ÓLAFSSON: TEIKNAR NÝ FRÍMERKI FYRIR ÍSLANDSPÓST
Frímerkið er draumaverkefni
Við sendum innilegar þakkir til allra sem
sýndu okkur samúð og vináttu vegna
andláts elsku föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
Jens Péturssonar
Grettisgötu 72, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks A6 Landspítala Fossvogi.
Þröstur Jensson Hanna Kr. Hallgrímsdóttir
Stefanía Jensdóttir Geir Garðarsson
Gíslína Jensdóttir Sigurður Einarsson
Svava Jensdóttir Kristófer Pálsson
Höskuldur Jensson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir þeim sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar móður okkar, tengdamóður
ömmu, langömmu og langalangömmu,
Petreu Aðalheiðar
Rögnvaldsdóttur
Háaskála, Ólafsfirði.
Ásta Axelsdóttir Valgeir Ásbjarnarson
Sveinbjörn Axelsson
Sæunn Axelsdóttir Ásgeir Ásgeirsson
Lára Axelsdóttir Ómar Þórisson
Hanna Brynja Axelsdóttir Jón Þór Björnsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær uppeldismóðir mín, tengdamóðir
og amma,
Jenný Clausen Ward
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
21. mars sl. Jarðarförin fer fram í Kristskirkju,
Landakoti, mánudaginn 31. mars kl. 13.00.
Eva Lísa Ward Crawford
Peter Crawford
Stefán Laurence Stefánsson
Sigríður Jenný Svansdóttir
Patrick Herbert Svansson
og aðrir aðstandendur.
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengda-
faðir,
Gunnar V. Arnkelsson
fyrrv. kaupmaður, Hrafnistu, Reykjavík,
lést föstudaginn 28. mars. Að ósk hans fer jarðarförin
fram í kyrrþey.
Sigríður Símonardóttir
Valgerður K. Gunnarsdóttir Guðmundur S. Sveinsson
Símon Á. Gunnarsson Guðrún M. Benediktsdóttir
Kristján Gunnarsson Sjöfn Sigþórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega öllum þeim sem auð-
sýndu okkur samúð og hlýju vegna andláts
og útfarar elskulegrar fósturmóður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Hólmfríðar Þóroddsdóttur
Hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Jafnframt sendum við starfsfólki 3. hæðar á Skjóli
bestu þakkir fyrir umönnunina.
Jóhanna Gunnþórsdóttir Brynjólfur Lárentsíusson
Sveinmar Gunnþórsson Kristín Pálsdóttir
Þórey Skúladóttir Jón V. Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Birnu Halldórsdóttur
Dalalandi 1, Reykjavík.
Laufey Vilhjálmsdóttir Samir Bustany
Halldór Vilhjálmsson Bryndís Helgadóttir
Sigríður Vilhjálmsdóttir Þórarinn Þórarinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við til allra sem
sýndu okkur samúð og vináttu vegna and-
láts ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
J. Sigurðar Gunnsteinssonar
Vogatungu 45, Kópavogi, fyrrverandi
starfsmanns Loftleiða/Flugleiða.
Margrét Anna Jónsdóttir
Gunnsteinn Sigurðsson Dýrleif Egilsdóttir
Þorgerður Ester Sigurðardóttir Einar Ólafsson
Jón Grétar Sigurðsson Sveinbjörg Eggertsdóttir
Anna Sigríður Sigurðardóttir Guðni Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
ERIC CLAPTON TÓNLISTARMAÐUR
63 ÁRA.
„Í skóla var maður
bólugrafinn og enginn
leit við manni. Svo byrjar
maður í hljómsveit og þá
þyrpast um mann þúsundir
stúlkna.“
Eric Clapton, gítarleikari og
söngvari, er einn farsælasti
tónlistarmaður heims.
Hann var meðal annars í
hljómsveitinni Cream en á sér
einnig langan sólóferil.
Þann 30. mars 1949 brutust
út óeirðir á Austurvelli en
þennan dag samþykkti Alþingi
inngöngu Íslands í Norður-
Atlantshafsbandalagið.
Andstæðingar samþykktarinnar
og stuðningsmenn flykktust
á Austurvöll og létu skoðanir
sínar í ljós. Grjóti, eggjum og
mold rigndi yfir Alþingishúsið
og var varalið lögreglunnar
kallað út. Mannfjöldanum
var dreift með táragasi.
Lögregluliðið var klætt
hermannahjálmum og gekk
fram með kylfum. Þessi átök
milli andstæðinga tillögunnar
og lögregluliðsins urðu mestu
óeirðir sem orðið hafa á Íslandi.
Áætlað er að á Austurvelli hafi
þá verið milli 8 - 10 þúsund
manns. Alls þurftu tólf manns
að fara á Landspítalann eftir
ryskingarnar og voru nokkrir
alvarlega slasaðir.
ÞETTA GERÐIST: 30 MARS 1949
Óeirðir á Austurvelli
timamot@frettabladid.is
HLYNUR ÓLAFSSON
GRAFÍSKUR HÖNNUÐUR
segir algjör forréttindi að
fá að teikna frímerki fyrir
Íslandspóst.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON