Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 18
ÞAÐ HEITASTA Í ...
HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR
ferðalög kemur út mánaðarlega
með sunnudagsblaði Fréttablaðsins.
Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is
Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir
Forsíðumynd Frá Finnlandi, Getty Images
Pennar Anna Margrét Björrnsson, Júlía Margrét
Alexandersdóttir, Freyr Gígja Gunnarsson
Ljósmyndir Fréttablaðið, Áslaug Snorradóttir
Auglýsingar Stefan P.Jones spj@frettabladid.is
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
APRÍL 2008
+ SKRALLAÐ Í SKANDINAVÍU, HVÍTAR STRENDUR Á BARBADOS, VOR Í PARÍS, VALPARAÍSO Í CHILE OG DÁSEMDIR PROVENCE-HÉRAÐS
FINNLAND
UNDAN FELDINUM
ÁSLAUG SNORRADÓTTIR MYNDAR VORGLEÐI Í HELSINKI
DAGAR MEÐ
LANDSLIÐS-
MANNI Í KÖBEN
VIGNIR SVAVARSSON SEGIR FRÁ
UPPÁHALDSSTÖÐUNUM SÍNUM
EYJALÍF Á
EYSTRASALTI
ÆVINTÝRAEYJUR Í ANDA
ASTRID LINDGREN
Á VEIÐUM Vefsíðan www.thecoolhunter.co.uk er algjör snilld
fyrir forvitna ferðalanga sem hafa unun af fallegri hönnun, góð-
um veitingastöðum. áhugaverðum sýningum og nýjum verslun-
um um heim allan. Það er hægt að verða áskrifandi að frétta-
bréfi nu með tölvupósti og ætti það að verða skyldulesning fyrir
alla sem eru að
leita að fegurð
í heiminum.
Ritstjóri vefsins,
Bill Tikos, er svo
að gefa út bók
sem heitir The
World‘s Coolest
Hotel Rooms
og er væntanleg
með vorinu.
O
ft þarf nú ekki að leita langt yfir skammt
þegar kemur að ferðalögum. Skandinavía
er skammt undan og við gleymum oft að í
henni búa ótal ferðamöguleikar. Norður-
lönd eru ekki bara djammferð til Köben eða Stokk-
hólms. Þessi frændlönd okkar búa yfir ótrúlegri nátt-
úrufegurð, heitum sumrum (á okkar mælikvarða að
minnsta kosti) og skemmtilegri afþreyingu. Sjálf
fæddist ég í Stokkhólmi og man ekki eftir fyrstu
árum ævi minnar þar nema í óljósri þoku þar sem
bregður fyrir gulum húsum og stórum trjám. Á árun-
um sem komu í kjölfarið upplifði ég Norðurlöndin,
eins og mörg önnur börn, í gegnum ævintýraheim
barnabókmenntanna. Ég týndist klukkustundum
saman í skógum með Ronju, í fjöllum Nangijala, í
dölum Múmínálfanna, á Sólbakka með Madditt og
Betu og jafnvel í blokkum Óla Alexanders. Í heilan-
um á mér geymdi ég ávallt þessa mynd af hinu
exótíska norðri þar til ég loks byrjaði að sækja þessi
lönd heim löngu síðar á ævinni. Ég varð síður en svo
fyrir vonbrigðum. Það er ekkert skrýtið að hið und-
ursamlega landslag, skógar, vötn, firðir og fljót, hafi
veitt svo mörgum rithöfundum innblástur. Og bæirn-
ir minna í raun og veru á Astrid Lindgren bók. Öll
börn heillist af skógum. Það er ekkert nema ævintýri
fyrir smáfólk að fá að fara í langar gönguferðir innan
um ævaforn tré og finna lyktina af laufum og frjó-
samri jörð. Í skógum búa allskyns dýr og líka vel
hægt að ímynda sér að ýmislegt annað og dularfyllra
leynist á milli greinanna. Í þessu tölublaði skoðum
við Helsinki með augum Áslaugar Snorradóttur sem
er mikil áhugakona um finnska menningu. Ég heim-
sótti Helsinki í fyrsta sinn fyrir um fimm árum síðan.
Sú borg kom mér mest á óvart af öllum norrænum
borgum. Af einhverjum ástæðum var hún líka minnst
„norræn“ af þeim öllum og eitthvað við stemninguna
minnti mann á Ísland. En Finnar búa svo líka yfir
einhverju allt öðru og mun exótískara: þessum slav-
neska, melankólíska anda sem hefur gefið þeim stór-
fenglega hönnun, kvikmyndir, bókmenntir og arki-
tektúr... jú... og vodka!
Hvernig væri því að sækja frændur heim í sumar.
Leigja til dæmis lítið hús á eyju, fara í sánu, synda í
stöðuvatni eða leyfa krökkunum að leika í endalaus-
um skógum. Við þurfum ekki að ferðast langt til þess
að finna ævintýrin.
HIÐ EXÓTÍSKA NORÐUR
Anna Margrét Björnsson skrifar
NÝTT
2 FERÐALÖG
E
f þú vilt ferðast til hjarta
Frakklands er Provence-
héraðið dásamlegt fyrir öll
skynfæri. Og hvað er betra
en hótel sem matarmeistarinn Alain
Ducasse hefur endurskapað og gætt
stórfenglegri matargerð og fallegri
hönnun? Hótelið Domaine des Andeols
er í Luberon-hæðunum og er í raun sam-
sett af níu gistihúsum sem hægt er að
leigja og eru öll innréttuð á ólíkan hátt.
Eitt heitir til að mynda listamannshúsið,
annað elskendahúsið og hið þriðja eilífð-
arhúsið. Öll eiga þau það sameginlegt að
vera rúmgóð og einstaklega smekk-
lega hönnuð og þar að auki hafa
gestir aðgang að tveimur sameigin-
legum húsum þar sem er að finna
veitingastað og tyrkneskt baðhús. Í bað-
húsinu er hægt að fara í sund, nudd og
gufubað og njóta ýmissa fegrunarmeð-
ferða en á veitingastaðnum ræður mats-
eld Ducasse ríkjum. Þar blandar hann
saman hinum dásamlegu kryddjurtum
og hráefnum Provence-héraðsins eins og
til dæmis tómötum, lambi, smjörbaun-
um, ólífum, fíkjum og apríkósum úr
garðinum. Að sumri til er að sjálfsögðu
hægt að snæða utandyra við kertaljós en
að vetri til er snætt í hituðu glerhýsi þar
sem er samt sem áður hægt að njóta
útsýnis yfir grænar hæðir héraðsins.
Eitt það skemmtilegasta við Luberon er
allur sá fjöldi markaða sem þar er að
finna, meðal annars markað sem selur
aðeins trufflur, annar sem selur einung-
is lífrænar vörur og svo eru einnig for-
vitnilegir antíkmarkaðir þar sem alltaf
er hægt að grafa upp einhverja fjársjóði.
Bókanir og fleiri upplýsingar er að finna
á www.domaine-des-andeols.com
-amb
SÆLUDAGAR Í PROVENCE
Matur og slökun í Luberon-hæðum
Leiðsögn íslensks listfræðings um Parísarborg
er sniðug lausn fyrir byrjendur í borginni.
VOR OG HAUST Í PARÍS
Séu farþegar Ice-
landair staddir í París
og langi að fá frekari
innsýn í borgina býðst
þeim aðstoð Laufeyjar Helgadóttur
listfræðings við að kynnast borginni.
Á tímabilinu mars til maí og frá sept-
ember til desember skipuleggur hún
kynnisferðir og af þeim má nefna
sérstaka kynnisferð um París þar
sem stoppað er á helstu merkis-
stöðum borgarinnar, gönguferð um
Mýrina - eitt af elstu hverfum París-
arborgar - kvöldverður snæddur við
Signu og sjálfir Versalir heimsóttir.
Áhugasömum Parísarferðalöngum er
bent á að bóka ferðir í gegnum tölvu-
póstinn laufey@noos.fr
BÓKAÐU
NÚNA